Spangirnar voru teknar í burtu hjá Karlottu 20. desember, tekið var mót fyrir góm til að koma fyrir í dag. Við mæðgur fórum því til Tannréttingarlæknisins í hádeginu og hún fékk góminn sinn afhentan. Vill einhver giska á litinn?? Hún fékk að velja sjálf sko. KEB fékk ekki að velja er hann fékk sinn - fékk bara glæran snyrtilegan góm sem hann er laus við í dag. En drottningin valdi sér BLEIKAN með GLIMMERI. Of course. Og nú talað hún baða þvona - á eðfitt með að þegja EÞÞÞ og EÐÐÐ (S og R). En það kemur strax - ágætt að vera búin að venjast þessu aðeins áður en skólinn byrjar aftur. Hálf svona kjánalegt að heyra svo stórt barn tala þvona! Ég sagði líka við BH - gott að hún fór til talmeinafræðings til að hjálpa til með R-ið þarna um árið. En það var nú bara einn tími - þetta er svo klár stelpa að ekki þurfti meira - svo æfðum við okkur bara heima. Þetta voru nú ekki alveg útgjöldin sem okkur vantaði í jólamánuðinum - en reddast eins og alltaf áður. Var svo bjartsýn að halda að kannski h...