Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá mars, 2009

Kvöldganga

Sat við tölvuna í gærkvöldi og heyrði opnað út - spáði ekkert í það. Fann svo að það var frekar kalt hérna inni, svona eins og gluggi væri opinn og að það blési inn. Spáði heldur ekkert í það. Svo var lokað töluvert seinna - var ekki með hugann við þetta. Krakkarnir eru alltaf eitthvað að brasa en við hjónin sátum bæði inni í stofu með annað augað á sjónvarpinu. Töluvert seinna hringir síminn og BH svarar. Ég er á vappinu hérna frammi í holi og sé að það eru bílljós beint inn hjá okkur - fór út í glugga til að athuga hvort komnir væru gestir. Heyri BH eitthvað tala um hundinn en var enn að spá hvort það væru gestir úti. BH kallar þá til mín hvort hundurinn sé úti? HA - Ronja liggur bara og kúrir eins og snúður í bælinu sínu en ég sé hvergi Úlfinn. Fer inn í Þvottahús, hurðin ólæst en lokuð. Ég gái út og sé að Harpa og Gummi voru að koma heim eftir sumarhúsaferð um helgina - með ljósin kveikt á bílnum ennþá. Svo sé ég Úlf á skoppi hérna úti fyrir framan í beðinu. Ég kallaði á hann og ha...

Vangaveltur 10 ára dömu

Á leiðinni í fermingarveisluna í gær tilkynnti KBB að hennar fermingarveisla (eftir FJÖGUR ár) yrði miklu flottari en veislan hans KEB. Nú nú við vildum vita ástæðuna - Já sko þá verður kreppan búin og svona... :o) Held að hann KEB verði nú ekkert sérstaklega var við það að veislan sé í einhverjum kreppubúningi. Held að við hefðum ekki gert mikið, ef þá nokkuð, öðruvísi en við erum að gera nú þegar. Daman samdi ljóð í skólanum í síðustu viku, það endaði uppi á vegg á kennarastofunni. Er ekki með það hérna hjá mér - skrifa það kannski hérna inn seinna. En það er kreppuskotið með tilvísun í mjög skuldsetta þjóð - einhver kennarinn hafði á orði að það væri greinilegt hvað væri talað um á heimili þessa barns. Tengdó hélt nú ekki - ekkert meira en annars staðar. Það er rétt hjá henni - börnin mín sjá bæði fréttir í sjónvarpi og svo fletta þau blöðunum á morgnana. Það þarf ekki foreldra til, svo þau fái kreppu-umræðuna beint í æð. Hins vegar spyrja þau bæði reglulega um eitthvað sem þau heyr...

Bloggíblogg

Blogga jú jú - nei ekkert hætt en eitthvað léleg undanfarið samt. Nóg að gera í þrifum og undirbúningi fyrir fermingu frumburðarins. Baðherbergið orðið skínandi hreint, svo mjög að börnin spurðu bæði undrandi hvað hefði eiginlega gerst þegar þau opnuðu skápana um kvöldið til að bursta tennur. Allt svo snyrtilegt og á sínum stað. Eldhúsið hálfnað, nú á ég bara eftir að taka neðri hlutann af innréttingunni. Krakkarnir tóku herbergin sín vel í gegn í gær - ég á nú eftir að taka þetta út hjá þeim og leggja lokahönd á herbergin en þau voru ansi dugleg. Það er allt að smella fyrir veisluna. Gestirnir verða nú töluvert fleiri en ég hafði fyrst gert ráð fyrir. Í haust skrifaði ég lista og á honum voru um 52 - fín tala bara. Svo einn daginn nú nýlega hafði fjölgað mikið á listanum fína og rúmlega 70 skráðir. Veit eiginlega ekki hvar ég fann allt þetta fólk en þetta verður bara gaman. Hugmyndin er að byrja klukkan 13 og þeir mæta sem geta þá og svo eru nokkrir sem komast ekki fyrr en aðeins sein...

Skattskýrslan

Hin árlega skattskýrsla gerir mig alltaf jafn pirraða og nett þunglynda. Það er alveg sama hvað maður borgar - skuldirnar aukast samt. Þá meina ég ekki að við séum að taka fleiri lán - niii lánin okkar hækka þrátt fyrir afborganir. Ekki öll, en sum gera það. Við hjónin erum samt á ágætisróli miðað við ástandið í þjóðfélaginu og vona ég að við höldumst á floti í gegnum þessar þrengingar allar. Undur og stórmerki - ég er alveg yfir mig gáttuð að við fáum vaxtabætur í ár. Já já, BH vill bara fara til útlanda. Fáum sitt hvort rúmlega ellefu þúsund krónur - já já. Og þegar búið er að draga það frá sem við eigum að borga þá stendur ekkert eftir - reyndar þurfum við að borga þegar upp er staðið - en hey, við fengum vaxtabætur í fyrsta sinn í þrjú eða fjögur ár :o) Nú er bara að reyna að kría prozac út úr heimilislækninum, leysa það út úr apótekinu og halda syngjandi sæll áfram út árið :o) dæjræjræjræj

Skatturinn og fleira skemmtilegt

Varð drulluveik (í orðsins fyllstu merkingu) á miðvikudaginn, nokkuð hress á fimmtudaginn en svo bara frekar svona slöpp og er enn í dag. Er frekar lystalaus, svöng en langar ekkert í neitt að borða. Gerir mann frekar pirraðann, meira pirraðann en venjulega ;o) Eina góða við þetta lystaleysi er að ég er ekki að háma í mig á meðan - góður bumbubani. Nú er maður að hafa sig í skattskýrslugerðina - búin að græja allt til og taka aðeins til hérna á borðstofuborðinu til að hafa pláss fyrir ósköpin. Ætla að rumpa þessu af og be done with it - nenni ekki að fá frest. Ætlaði reyndar að vera búin að þessu fyrir löngu - en hey þetta er ekki beint verkefni sem kallar mann að borðinu. Ekki alveg það skemmtilegasta svona. En verður að viðurkennast að þetta hefur orðið miklu auðveldara með tímanum og netvæðingu skattsins. Man eftir fyrstu skattskýrslugerð minni. Mamma var ekkert að taka þetta að sér neitt - neibb mín mátti sjá um þetta sjálf með hennar góðu hjálp. Allt á pappír og gert uppkast og út...

Voffamál

Var eitthvað að myndast við að sinna hundunum hérna í dag - á svona hundaþraut - leikfang. Maður felur mat í því og svo eiga þau að leysa þrautina til að komast í matinn. Lét Úlf bíða á meðan Ronja spólaði á þessu og fann bitana sem ætlaðir voru henni. Hún kann þetta allt saman - svo vön! Svo var komið að Úlfi að fá að reyna sig og Ronja átti að bíða - ekki hennar sterka hlið en hún kann það alveg samt. Hann svona trítlaði í kringum þetta og var að skoða málið, sjá hvað ætti eiginlega að gera við þetta og til hvers. Allt í einu tek ég eftir því að hann urrar lágt í átt að Ronju sem enn sat og beið. En hún hafði sett hausinn svona niður samt og horfði stíft á hann. Svona eins og hún vildi segja honum að hypja sig - þetta væri hennar og hennar einnar. Ég fer að skammast í þeim - neija á hann og hvæsi á hana - missti allt í bál og brand og þau sýndu tennur og réðust á hvort annað í miklum ham. URR - VOFF og mikil læti, og líka NEI og hvæs í mér. Allt í bland. Það hefur örugglega verið gam...

Okei bæ...

Ronjaskagonja lætur ekki að sér hæða - dálítið svona að gá hvað hún kemst upp með. Heldur manni á tánum og það er eins gott að gleyma ekki hvernig ljúflingurinn er skapi farinn. Fór með þau út í gerði í morgun og nennti ekki að setja á þau ólar og taum. Upp í hugann kom samt svona viðvörun - hvað ef þau stökkkva, ómerkt! Hristi það burt og hljóp með þau út. Úlfur fór beint út í garð en Ronja rauk beint út á götu. Það var auðvelt því ég hleypti þeim út um forstofudyrnar. Og svo hljóp hún beint út á aðalgötu og hljóp meðfram garðinum. Úlfur inni í garði alveg æstur í að komast til hennar. Ég hastaði á hana og skipaði henni að koma og við endann á lóðamörkunum ákvað hún að skella sér á milli trjánna inn í garðinn - hjúkk. En nei sko um leið og hún kom inn í garðinn rauk hann hinum megin við runna í gegnum trén og út úr garðinum. Þvílíkir gaurar sem þau eru. Það er svo gaman að vera til - laus og í snjónum. Hann hins vegar tók U og elti hana inn í garðinn. Aftur hjúkk. Nú var sprett að ger...

Fermingarstúss

Í dag fórum við í stúdíó A6 og tókum fermingarmyndir af KEB. Það gekk ágætlega, hann svona spriklandi fínn í jakkafötunum sínum. Tókum með honum hversdags föt líka og smelltum af nokkrum myndum. KBB kom með og var í fötum sem við mæðgurnar fundum í Oasis fyrir ferminguna á hana. Það var smellt af nokkrum myndum - klarinettið var tekið með, hundarnir og Lubbi líka - ekki má gleyma Lubba sínum :o) BH situr sveittur núna að vinna myndirnar og finna þær bestu. Því svo á ég eftir að raða þeim í scrap-albúmið, ætlum að reyna að hafa þetta tilbúið fyrir veisluna. Anton kom líka og BH smellti af fullt af myndum af honum. Algjör töffari og fyrirsæta - það verða flottar myndirnar hans líka. Það voru teknar yfir 700 myndir í dag, þannig að það hljóta að leynast nokkrar nothæfar þarna innan um. Hvað gerði fólk fyrir stafræna tækni? Later

Úlfurinn og Ronjan

Fór með Úlfinn minn í Lágafellið á fimmtudaginn var í göngutúr. Við BH ákváðum að skipta liði og BH tók Ronju í göngutúr í Grafarvoginum á meðan við Úlfur fórum í lausagöngu. Hann var nú ekki alveg að skilja það að vera settur einn í skottið. Vældi pínu, svona til að minnna mig á að stóru stelpuna vantaði í ferðina. Hann var fljótur að gleyma henni þegar hann fékk að hlaupa frjáls í fellinu. Þau eru svooo ólík, hann fór aldrei lengra en tíu metra frá mér. Alltaf þegar ég kallaði í hann sneri hann sér við á punktinum og kom hlaupandi. Svo voru teknar hlýðiniæfingar nokkrum sinnum - aðeins að láta krílið bíða. Það þarf alvarlega að vinna í því að kenna krílinu. Hann er voða duglegur en við erum ekki nógu dugleg að kenna honum markvisst grundvallaratriðin. Þegar ég kom tilbaka niður í vinnu sáum við BH og Ronju koma eftir göngustígnum. Hann var svo kátur að sjá þau - gat ekki togað mig nógu hratt í áttina að þeim. Hún er algerlega öryggisnetið hans. Við ætlum að reyna að vera dugleg að v...

Sýningin

Fórum á sýninguna Æskan og hesturinn áðan kl. 13. Ég var mætt með KBB rétt eftir kl. 12 í hesthúsin svo þær frænkur gætu gert sig tilbúnar. Ég fór 12:20 í Reiðhöllina til að taka frá sæti fyrir hersinguna. Ég, BH, SBK, KBB, tengdó, ma og pa - allir spenntir. Það voru þó nokkrir komnir og búnir að taka sér sæti og taka frá sæti. Eins gott að mæta tímanlega. Sýningin byrjaði eins og venjulega á fánareið og svo komu grímuklæddir krakkar sem teymt var undir, svo grímuklæddir krakkar sem gátu riðið sjálf. Þau voru öll svo frábær, mikið lagt í búninga og hestarnir skreyttir líka mikið. Yndislegt að horfa krakkana þau voru svo flott. Indíánar, kúrekar, prinsessur, einn rosa flottur konungur, Hulk, Spiderman, bóndakona, knapi (í hátíðarbúning) og alls kyns fleiri furðuverur. Svo komu atriðin hvert á eftir öðru og þau voru svo flott og skemmtileg. KBB var eftir hlé og þau voru tuttugu og fjögur á vellinum að gera sitt atriði. Það tókst ljómandi vel hjá þeim. Mamman á vídeóvélinni og pabbinn á m...

Æskan og hesturinn

Sýningin æskan og hesturinn er um helgina - tvær sýningar hvorn daginn. Allir að mæta. Búin að fara þarna s.l. tvö ár og þetta er mjög gaman. Klárir krakkar og klárar líka. KBB fær að taka þátt í atriði í fyrsta sinn í ár. Þau eru búin að æfa stíft í janúar og febrúar og í mars. Þau eru orðin svo flott að það er gaman að horfa á þau. Atriðið hennar er fyrst eftir hlé, en hún er bara á laugardaginn. Það eru svo mörg félög og margir krakkar 10-12 ára sem taka þátt í þessu atriði að þau skipta því á milli sín hvorn daginn. Ég ætla að sjálfsögðu að mæta og með videocameruna! Við fjölskyldan ætlum að vera þarna kl. 13 á morgun. Hvet alla með börn til að kíkja þarna annan hvorn daginn - þetta er mjög góð skemmtun. Og það besta við þetta er að skemmtunin er ÓKEYPIS. See you there

BWAHAHAHAAHA

Er ekki fokið í flest þegar Vinstri grænir saka Sjálfstæðisflokkinn um málþóf á Þingi. Hitti þar skrattinn ömmu sína eða hvað? Sýnir bara það sem ég hef alltaf sagt - það er sami rassinn undir öllu þessu liði, verði okkur að góðu! Later

Smá update

Fórum um helgina með hundana að Helgufossi. Það var svo fínt veður hérna í bænum, ætlaði ekki að nenna að klæða mig almennilega minnug þess að vera að kafna á Helgafellinu um daginn. Sem betur fer tók ég vettlinga og var með buffið um hausinn. Það gustaði vel þarna uppfrá og eins gott að vera sæmilega klæddur. Tókum fullt af skemmtilegum myndum - nokkrar þeirra setti ég á flickr. BH setur líka inn hjá sér svona eina og eina eftir að hafa unnið þær og gert þær úber flottar :o) Það er svo gaman að þessum voffum, þau eru svo ólík. Hún valtar yfir hann reglulega, kemur á seinna hundraðinu og keyrir hann niður. Greyið var farið að trítla að fótum okkar ef hann spottaði hana koma. Vitandi að hún myndi ekki reyna að keyra okkur niður. En mest voru þau þau í eltingaleik - hann elti hana á röndum þar sem hún flaug yfir snævilagðan móan (vá smá skáldleg bara). Litli flækjufóturinn minn endasteyptist reglulega í snjóinn. Þarna var mest harðfenni og því auðvelt fyrir þau að hlaupa. En víða var mjú...

Myndir

Var að setja nýjar myndir á síðuna mína - og já ég veit... meira og minna hundamyndir. Mér finnst þeir æði - hvað get ég sagt??

Hmm

Jæja (: ég held við þekkjum öll þegar foreldrar okkar eru að fylgjast með msninu okkar og það er svona allveg nett mikið BÖGG ! Vinir ykkar vita ekkert af því og byrja auðvitað að tala um eitthvað sem þau meiga ekki vita ! Þá er komið nýtt "sistem". Þegar Foreldrar ykkar eru að horfa þá skrifið þið töluna : ,,9". og vinir ykkar tala um eitthvað annað (: sendu þetta aftur til mín þá veit ég að við getum skipt um ummræðu efni þegar anna hvor okkar segir 9.. :)og svo þegar þau eru farin aftur geriru 99 þá getum við byrjað á eðlilegum samræðum. Þetta fékk ég í tölvupósti áðan - stílað á KEB. He he, við BH fáum allan tölvupóstinn hans svo hann á ekki séns í þetta 9 dæmi. EEn sko ehe ég fylgist aldrei með honum á MSN, klikkaði alveg á því! ps. KEB veit vel að við fáum allan hans póst - já eða við sögðum honum það alla vega. Ef ég þekki hann rétt þá er hann búinn að gleyma því - hefur gleymt því svona 10 sekúndum eftir að við tilkynntum honum það! Later

Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið...

Þegar ég las í mogganum um daginn um strákfíflið í Sandgerði sem var einn af nokkrum sem gengu í skrokk á skólafélaga sínum varð ég pirruð. Gormurinn svona flottur íþróttamaður - í boxi. Notaði það sem hann hefur lært til að valda sem mestum skaða á fórnarlambinu. Ég minntist á það við Baldvin að gaurinn er með þessu athæfi sínu að eyðileggja fyrir öllum þeim sem vilja iðka þessa íþrótt og þeim sem börðust fyrir því að fá hana leyfða aftur eftir áratuga bann. Og nú var ég að lesa þessa frétt á mbl.is . Vona að þessi drengur sé stoltur af afreki sínu. Held að það séu margir sem æfa box hugsi honum þegjandi þörfina þessa dagana. Vona að hann fái hiksta blessaður. Ég ætla að leyfa mér að halda fram að box sé ekki endilega mikið ofbeldisfyllri íþrótt en karate, tae kwon do og fleiri bardaga íþróttir. KEB var að æfa karate á sínum tíma og trúið mér, trikkin sem hann var að kenna systur sinni og lýsa fyrir henni skaðanum sem hvert þeirra veldur voru ekki falleg. Og á sýningum léku þau eftir ...

Ferming

Nú nálgast fermingardagur drengsins ískyggilega hratt. Veislan heima svo það verður nóg að gera til að allt verði tilbúið. Sófasettið sem ég ætlaði reyndar að kaupa í fyrra er komið í hús. Fórum mæðginin í smá leiðangur í síðustu viku til að finna heppilega liti í kerti og skreytingar. Grænn varð fyrir valinu sem aðallitur - búin að kaupa kerti, sálmabók, servíettur og fleira smálegt. Svo á ég örugglega eftir að bæta við þetta eitthvað þegar ég verð búin að átta mig á uppröðun hérna. KEB var að deyja drottni sínum með mér og mömmu í Garðheimum - hann var ekki að ná þessu - þetta er ekki svona mikið mál - bara pikka eitthvað og málið dautt. Við KEB fórum svo saman í Kringluna áðan til að skoða fermingarföt. Ég er búin að ætla með drengnum í bæinn í tvær vikur núna. Við erum bara of busy people - nenni ekki þarna um helgar þegar ALLIR eru á staðnum. Held jafnvel að ég sé fólksfælin eða með innilokunarkennd innan um of mikið af fólki. I need my space. Svo er hann svo upptekinn alltaf á vi...

Silly stupid

Það er opinbert - við erum klikk. Rifum okkur upp úr bælinu og fórum út úr húsi fyrir klukkan níu í gærmorgun, sunnudagsmorgun. KBB kom með okkur en KEB ákvað að vera sá eini með fullu viti og var heima með voffana sína. För okkar var heitið í Reiðhöllina í Víðidal til að fylgjast með Husky hundum á sýningunni sem var um helgina. Jebb - klikk æ nó! KBB hafði fengið skýr fyrirmæli um að ef hún kæmi með þá nennti ég ekki að hlusta á neitt röfl um leiðist, svöng, þyrst kjaftæði. Hún yrði að halda út með okkur ef hún kæmi með. Það tókst nú svona og svona - hún alla vega gerði mig ekki geðbilaða - vissi betur. En hún kemur nú sennilega ekki með næst :o) nema hún ákveði að sýna Ronju sína eða Úlf. Skemmtilegast þótti mér þegar sú stutta var að velta fyrir sér Kvennahlaupinu. Spurði mig hvenær það væri - er það á hverju ári? Jú jú ég fræddi hana á því að Kvennahlaupið sé í júní á hverju ári - svona í kringum 20. júní. Hmm - nú er það ekki í febrúar? Nei nei alltaf í júní. Hmm ég hélt að það v...