Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá janúar, 2020

Rúmföt og lágvaxið fólk

Þegar börnin okkur eru lítil þá segja þau alls konar krúttilegt og skemmtilegt og við, sum alla vega, höldum því til haga - alla vega einhverju af því. Og það er mjög gaman að rifja það upp öðru hverju og gaman fyrir þau að heyra seinna... eða ekki. En þegar börnin okkar verða stór? Það kannski er ekki endilega krúttilegt lengur en það getur verið bráðskemmtilegt... eða ekki, eftir því hvernig maður lítur á það sennilega. Dóttir mín, rúmlega tvítug... tæplega 21 - hún segir ennþá alls konar sem mér finnst bráðfyndið. Og strákurinn líka - ég gæti kafnað þegar þau byrja stundum. Um daginn hugsaði ég - af hverju er ég hætt að skrifa svona niður? Komst að þeirri niðurstöðu að það er engin ástæða - maður einhvern veginn bara hættir því. Svo nú ætla ég að henda tveimur samtölum niður á blað. Desember 2019 Jólagjafapælingar í algleymingi og bara almennt verslunaræði í gangi - alveg sama hvað maður reynir að hemja sig. KBB hafði velt fyrir sér hvar hún fengi rúmföt - langaði að eignast...