Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2011

AAwww

Þegar maður fer í göngutúr með tvo loðbolta sem toga mann áfram (og til hliðar og afturábak) þarf maður að halda vel áfram og vera aðeins meðvitaður um umhverfið. En þegar maður klikkar á því og hrynur í götuna því maður misstígur sig þegar malbikið er ekki slétt og fellt eins og gerist þegar maður fer af nýju götunni yfir á þá gömlu (á Lágafellinu)þá er svo gott að þessir sömu togarar snarstoppa og líta við. Og þegar ferfætlingarnir sjá að hlunkurinn rís ekki strax upp aftur heldur stynur aðeins og kvartar yfir að þetta hafi verið viðbjóðslega vont þá kom þau í snatri og knúsa mann og reyna að segja að allt verði nú í lagi. Þetta gera þau með því að koma sitthvorum megin við mann og reka trýnið í andlitið á manni og svo kemur blaut tungan og sleikir kinnarnar :o) Viss um að ef það hefðu komið tár (komu ekki, maður er kominn af víkingum) þá veit ég að þau hefðu tekið þau öll í burtu ! Með svona ferðafélaga er ekki hægt annað en að drífa sig á fætur aftur og harka af sér. Veit líka að þ...