Gleðilegt nýtt ár öll sömul, vona að þið hafið haft það jafngott og við yfir hátíðina. Takk fyrir það gamla og vona að ég hitti sem flesta sem oftast á nýja árinu. Við hérna á heimilinu ætlum að vera bjartsýn á árinu 2010 þrátt fyrir allt og hlökkum til nýrra ævintýra sem bíða okkar alls staðar. T.d. í dag fórum við á Reykjavíkurtjörn sem er frosin, þar hittum við fullt fullt fullt af fólki með sína huskies - það var svo gaman. Allir að láta draga eitthvað, stigasleða, alvöru hundasleða, fólk, fólk á skautum. Bara stuð. Við tókum eitthvað á fimmta hundrað myndir held ég og BH er búinn að setja nokkrar inn á flickr hjá sér - endilega kíkið á þær. Nú hlakkar okkur bara til þegar búið verður að smíða okkar hundasleða - hann er í bútum inni í bílskúr. Þ.e. búið að kaupa og saga niður timbrið - askur varð fyrir valinu. Og ég sem vildi að rakkinn minn fengi nafnið Askur :o) Er reyndar kominn með nafn á einn rakkann til - en hér verður varla bætt við fleiri hundum, við höfum alveg nóg með þes...