Í fyrra bloggaði ég um verki sem KBB var með í annarri tánni. Nenni nú ekkert að lýsa þessu í smáatriðum, það er búið og gert. En nú er framhald - hin táin. Allt voða skrýtið eitthvað og við mæðgur reynslunni ríkari svo nú var ekkert beðið. Pantaði tíma á Miðvikudagsmorgni og fékk tíma um kl. 11. Dreif krakkann úr skólanum og við á heilsugæsluna og nú töluðum við við Þengil. Þetta lýsir sér allt eins og síðast - bara verkur í liðnum, hvergi annars staðar. Þengill gat flett upp síðustu tásuheimsókn og Baldvin, sem tók á móti okkur síðast, hafði skráð allt samviskusamlega. Þannig að nú var ekki talið að þetta væri sýking, frekar kannski einhver gigt, en samt ótrúlegt.
Ég minntist á að við mæðgur værum hognar í herðum af fyrri reynslu og það kom sér vel því daman ákvað að borða ekkert um morgunin og var því á fastandi maga. Það kom sér vel því hægt var að taka blóðprufu í hvelli og var það gert. Hún fékk engin sýklalyf, bara bólgu og verkjaeyðandi Volterane til að skemma ekki ef þyrfti að athuga eitthvað meira.
Ég hringdi í lækninn aftur í morgun eins og um var beðið og gat sagt honum að verkirnir væru minni og hún væri ekki kvartandi og kveinandi í hverju skrefi. En finnur þó aðeins til ef hún verður þreytt í fætinum og hlífir sér þá. Sagði honum frá hnénu, sem er þekkt vandamál meðal krakka sem vaxa á einhverjum ofurhraða, og spurði hvort þetta gæti ekki verið bara eitthvað svipað? Jú hann útilokaði það ekkert og bað um að ég kæmi með hana í janúar til að skoða þegar allt væri eðlilegt og verkjalaust.
Nú spyr ég - á maður að hafa áhyggjur þegar barnið manns vex svo hratt að það fær vaxtaverki í stóru tánna LoL?
Það kannski skýrir af hverju skórnir hennar nr. 35-38 voru nánast ónotaðir þegar þeir urðu of litlir! Sem betur fer er hún farin að nota skóna sem maður kaupir á hana lengur en 9 mánuði núna. Hef trú á að hún stækki ekki um mörg númer í viðbót því hún er komin í stærð 39. Við ræðum ekki skóstærð annarra fjölskyldumeðlima og þá alls ekki móðurinnar.
Later

Ummæli