Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá nóvember, 2007

Skreytum hús...

með grænum hænum fa la la la la - við KBB sitjum heima búnar að þrífa allt og nú erum við að klára að setja upp jólaskrautið á milli þess sem við sitjum og glápum á Tekinn og Stelpurnar í sjónvarpinu. Strákarnir stungu af í bíó, tóku Agnar og Pétur með sér, fóru að sjá Beowulf nýju þrívíddar teiknimyndina. Sá fyrir mér að ég myndi ekki nenna að taka ritgerðina upp og gera eitthvað af viti hér í kvöld þannig að ég ákvað að drífa þetta af. Rétt náði að plata BH út í Bermúda (bílskúr) að finna jólakassana svo ég þyrfti ekki að gera þetta á morgun. Nice - verður búið á morgun og ég get unnið samviskusamlega í ritgerðinni. Sé til hvort ég kíki á KEB keppa á aðventumóti Ármanns. Verst að nú veit ég ekki hvað ég á að setja í eldhús- og stofugluggana. Komnar nýjar gardínur í eldhúsið og nú get ég ekki notað sama ljósadót og áður, það passar bara ekki . Ekki það skemmtilegasta sem ég geri að versla svona dót - sérstaklega þegar ég veit eiginlega ekki hverju ég er að leita að. Ég hlýt að detta n...

Hlaðan

Sit á hlöðunni að vinna í ritgerðinni um stjórnarskrána - alveg að skríða í 4000 orðin - takmarkið er 5000 orð. Þetta lítur allt mjög gáfulega út hérna hjá mér - sit á handbókasafninu og legg undir mig heilt borð, tölvan hérna í hægra horninu hjá mér - bækur og blöð flæðandi um borðið og svo á hinum endanum eru þrjú Alþingistíðindi opin og fjórða hér við hliðina á mér. Síminn ekki of langt í burtu ef krílin þurfa að ná á mig - búin að heyra aðeins í þeim og svo stílabókin hérna til að krota punkta ef á þarf að halda. Sem sagt það lítur út fyrir að vera mjög mikið að gera hérna hjá mér, mikið atriði að líta gáfulega út - annað svo hvernig gengur að koma þessari óreiðu minni gáfulega á blað þannig að aðrir fái eitthvað samhengi í þetta allt saman. Kemur í ljós þegar einkunnin birtist Later

My point of view

And I do have one - or two Allt að verða vitlaust hérna - stundum væri ég til í að vera einræðisfrú (ekki herra). Þá myndi ég náttúrulega beygja alla undir mína skoðun í hverju máli og það væri að sjálfsögðu rétta skoðunin, hin eina rétta. Byrjum á Steinunni Valdísi, hún leggur fram frumvarp þess efnis að kannski væri rétt að athuga hvort breyta ætti nafninu á embætti ráðherra. Þessar konur - þvílík framhleypni. Allir búnir að gleyma að heitum á dæmigerðum kvennastörfum hefur verið breytt til að bæði kynin geti verið sátt. T.d. Hjúkrunarfræðingur - ekki vilja karlar vera hjúkrunarkonur, skil það vel. Flugfreyjur og flugþjónar - engin spurning, menn vilja helst ekki vera freyjur og við skiljum það vel líka. Fóstrur eru nú leikskólakennarar, því ekki vilja karlarnir vera fóstri - skil það nú reyndar ekki, það gæti alveg gengið. Nema þá heitinu hafi verið breytt vegna þess að það er flottara að vera kennari en fóstra/i. Voðaleg viðkvæmni er þetta í fólki, af hverju má ekki ræða það að kon...

Svo þreyttur...

Er ég aulaðist í rúmið í gær sagði ég manni mínum að ég myndi svo bara vakna á fimmtudaginn - of lítill svefn undanfarinna daga farinn að segja til sín. Ákvað að sofa út í morgun eftir að krakkarnir voru farin í skólann. Ég vaknaði ekki fyrr en á hádegi - og hefði alveg getað sofið lengur, hafði bara ekki samvisku til þess. Ég grínast ekki með það - hefði farið létt með að sofa fram á fimmtudagsmorgun. Vinnan fékk forgang í dag - virðisauki 5 desember og þá er betra að vera búin að græja sept og okt í bókhaldið. Hef verið sæmilega dugleg þannig að ég ætti ekki að lenda í vandræðum með þetta. Nú er bara að klára ritgerðina sem ég er að skrifa í Lýðræðisþróun á 20. öld og verkefnið um Lúðvík XVI, vera búin með þetta um helgina og þá er ég í ágætum málum. Þá næ ég auðveldlega að klára bókhaldið og vera dugleg að lesa fyrir prófið í frönsku stjórnarbyltingunni sem verður 12. desember. Síðasti tíminn er á föstudaginn í skólanum - Ragnheiður svona líka hugguleg, bauð okkur að koma í Nýja Gar...

Hlíðarfjall og Óvitarnir

Þar fór það - mér tilkynnt í gær er ég græjaði matinn að við værum nú aldeilis öll að fara á skíði fyrir norðan og svo á Óvitana í leikhúsinu - já já mín fékk aldeilis upplýsingar í skólanum frá öllum sérfræðingunum í málefnum Akureyrarbæjar. Spurning um að skella sér í Janúar - reyndar förum ekki á skíði nema leigja þau á alla fjölskylduna - mín skíði eru verulega sködduð í geymslunni hjá pabba og mömmu. Skíði okkar hjóna eru síðan við vorum unglingar og börnin okkar eiga ekki skíði - það var ekki alveg að vefjast fyrir dömunni - bara skella sér á skíði, við finnum út úr þessu! Later

Gleymdi...

að segja hver aðalvinningurinn var í gær á Bingóinu - hún vann flugferð fyrir tvo til Akureyrar, gistingu á Hótel KEA og miða hjá leikfélagi Akureyrar fyrir tvo á almenna sýningu. Ekki slæmt það. Spurning hvort við BH mútum henni og fáum að nota þetta fyrir okkur tvö og gerum eitthvað spennandi fyrir hana í staðinn - eða athugum hvað kostar að fara bara fjögur og hafa það huggulegt fyrir norðan. Ferðalangar

Dregur björg í bú...

Karlotta sá um það þessa helgi. Hún tók þátt í skákmóti á laugardaginn, vann þrjá vinninga og fékk verðlaun, 3000 kr. í blómabúð í Grafarvogi. Hún telfdi fjórar skákir og vann tvær - sá fimmti mætti ekki og því "vann" hún þá skák. Jólabingó Lágafellsskóla var svo í gær og daman gerði sér lítið fyrir og fékk Bingó í 3. umferð - ein með Bingó og því fékk hún þann vinning án þess að þurfa að draga um hann á móti öðrum. Svo var 10. umferðin mest spennandi, þau systkin voru bæði með eina tölu eftir, útséð með að hún ætti séns því það kom G..... og svo hennar tala - hann átti eina eftir í I og því útséð með að hann fengi ekki Bingó - svo hann studdi litlu systur sína og þokkalega sem þau voru ánægð. En nú voru fimm með Bingó - ekki bara hún og þá var dregið um vinninginn. Bara einn sem fær og hinir fengu aukavinning. Og hún gerði sér lítið fyrir og dró hæsta númerið, verð að viðurkenna að ég var verulega hissa. Það er ekki venjan að við fáum svona stóra vinninga þó KEB hafi nú stun...

Ræflar og aumingjar

Brotist inn í hesthús hjá Svandísi síðustu nótt. Stolið hnökkum og beislum og alls konar meira sem ég kann ekki að nefna. Tjónið fyrir hana sennilega um 200 þúsund. Brotist inn í næsta hús líka - og nóttina þar áður í tvö hús í Víðidalnum. Vona að þetta finnist allt saman - hennar dót er meira og minna merkt og ætti því að þekkjast aftur. Verst að hestarnir eru ekki góðir varðhundar - hefðu þá getið bitið í rassgatið á þessum aumingjum, best ef stykki hefði farið úr bara. Hver hefur áhuga á að kaupa svona þýfi, fólk kannski áttar sig ekki á þessu - eða vill ekkert vita. Þið vitið alla vega ef einhver býður ykkur hnakk á góðu verði - extra góðu verði - að minnast þess að innbrotafaraldur hefur verið í hesthúsin í Reykjavík og kannski víðar. Það verður spennandi að vita hvort VÍS bæti henni tjónið því eins og landsmenn fá að heyra á hverju kvöldi þá færðu það bætt ef þú ert tryggður. Það kemur vonandi í ljós eftir helgi - sjáum til og vonum það besta. (Best ef kvikindin myndu detta dauð ...

Jólamáltíð

Fengum svo góða kjötsúpu um daginn hjá Ernu og Begga. Karlotta missti sig alveg þetta var svo æðislegt fannst henni. Hún vildi endilega að ég myndi læra að kokka svona fína súpu. Jaaaá kannski bara. En sko við tölum bara við Brynju ömmu, hún á svo mikið lambakjöt alltaf frá Svandísi og gerir oft kjötsúpu. Semjum kannski bara við hana - er það ekki bara. Jú litlu leist vel á það. Næst er við hittum foreldra mína þá spyr Karlotta ömmu sína, "Amma viltu búa til kjötsúpu og bjóða okkur í mat - kannski bara á jólunum, ha amma?" Mamma kom af fjöllum - kjötsúpa á jólunum? Ég skal bjóða ykkur í kjötsúpu, en kannski fyrir jól væri meira við hæfi. Þannig að amman stóð við loforðið og við fórum öll í kjötsúpu í Álfheimana í kvöld. Hentaði fínt á miðvikudegi. Kippti KBB með okkur úr íþróttahúsinu er hún var búin í fimleikum, brunaði með hana til mömmu fór svo í Badminton og þaðan labbaði KEB í fimleika hjá Ármanni eftir að hafa spilað nokkra leiki með okkur. Fór svo í Álfheimana, þar var...

Þroski barna

Það er sagt að börn sem hagræði sannleikanum aðeins þegar þeim finnst það eiga við séu eðlileg og þetta séu merki um að þau séu að þroskast eðlilega. Ég get alveg verið róleg því mín börn eru mjög eðlileg. Ég hef ekki tölu á öllu því sem þau hafa glatað í haust af fatnaði og dóti. Búið að vera extra slæmt haust hvað það varðar. Í einni viku núna glataði KBB þremur húfum og einu pari af vettlingum. Buffklútar hafa horfið, hettupeysa, handklæði, sjampóbrúsi, legghlífar og ýmislegt smálegt sem ég hef ekki tölu á lengur. Maður skyldi ætla að maður fengi eitthvað af þessu aftur, því ég þekki börnin mín ágætlega og merki allt með nafni og símanúmeri. Annað hvort með fatamiða eða áprentuðum límmiða. Það er mjög fátt sem ekki er merkt frá þeim. Engu að síður fáum ekkert tilbaka - og já ég leita mig oft dauða hlaupandi á milli íþróttahúsa, bæði við Lækjarhlíð og Varmá, og svo skóla. Trúið mér það ÉTUR einhver draslið þeirra og ég er orðin svo leið á þessu. Allir þessir staðir eru með heilu fjöl...

Kökukvikindið

Tók ósköpin með til Lilju sem hafði boðið okkur í mat í kvöld. Ég velti því samt mikið fyrir mér hvort ég ætti að vera að því - nennti ekki að vera aðhlátursefni kvöldsins. Ákvað samt að kyngja stoltinu og mæta með mistökin. Sá framá að við fjölskyldan myndum deyja úr súkkulaði og rjóma eitrun - svona kaloríusjokki ef við borðuðum þetta bara fjögur. Þau voru alsæl að fá eftirrétt og létu sig hafa það að fá sér eina stóra kökusneið - ekkert hægt að taka litla. Það var mikið hlegið að þessu öllu og fólki bar ekki saman um hvort kakan liti vel eða illa út. Davíð var þó á því að ekki væri einu sinni þorandi að smakka - honum leist ekki svo á - sagðist bara vera alveg að springa eftir matinn. Það kláraði enginn eina sneið því maginn þoldi ekki allann þennan rjóma og súkkulaði. Nema jú Guðbjörn greyið - hann sko klárar ALLTAF matinn sinn, hvort sem hann er vondur eða góður - borðar allt sem er á disknum. Er af þeirri kynslóð að matnum er ekki leift - sama hvað. Hann var orðinn vankaður eftir...

Baka vandræði

Við KBB vorum að baka köku sem við höfum ekki smakkað áður. Lítur voðalega vel út í litlu Nóa og Síríus hefti. Leist nú ekki alveg á það að skera einn botn í fjóra - en lét mig hafa það og það tókst ágætlega. Hver botn er heldur þunnur samt. Svo átti að búa til svona súkkulaðirjóma á milli - þrjár týpur, dökkt súkkulaði, rjómasúkkulaði og hvítt súkkulaði. Bara girnilegt - við redduðum þessu mæðgurnar í þrjár skálar og ég fór í það mál að skella þessu á milli. Fannst heldur mikið af rjóma miðað við hversu þunnir botnarnir voru. Oh well - látum þetta virka. Svo þegar ég var búin að þessu sá ég aðeins á uppskriftina - já nefnilega það. Tveir og hálfur dl rjómi + súkkulaði. Hmmm og ég búin að skella súkkulaðinu saman við hálfan lítra af rjóma. Þannig að í stað þess að vera um þrír fjórðu af rjóma á blessaðri kökunni þá er einn og hálfur lítri. Varð nett pirruð á sjálfri mér fyrir að lesa ekki uppskriftina betur - beit bara í mig að svona ætti þetta að vera þegar ég keypti allt í þessa köku...

Ómissandi?

Til allra þeirra sem eru svo ómissandi í vinnu sinni að þeir mæta fársjúkir með eyrnabólgur og hita (lesist Svandís) og allra hinna sem eyða öllum stundum í vinnu, bæði um helgar og kvöld. Smá svona - hlusta nefnilega, eða réttara sagt heyri sjaldnast texta í lögum. Hef ekki nóga þolinmæði eða einbeitningu sennilega. En þar sem ég sit, skrifa ritgerð, og hlusta á Helga Björnsson syngja þægileg íslensk lög datt mér eiginmaðurinn í hug. Þessi sem þarf að gera allt og fyrir alla. Gleymir dálítið okkur hérna heima stundum í þeirri þráhyggju sinni að vinna og vinna. Það hefur nú samt skánað síðustu árin. Textinn síaðist aldrei þessu vant inní heila og mér fannst þetta eiga ágætlega við. Allsnakinn kemurðu í heiminn allsnakinn ferðu burt frá þessum dauðu hlutum sem þér, fannst þú hafa dregið a þurrt og eftir lífsins vegi fer það sem hann fer og veistu á miðjum degi dauðinn, tekur mál af þér ofmetnastu ekki af lífsins móður mjólk kirkjugarðar heimsins geyma, ómissandi fólk Allsnakinn kemurðu ...

Nei þýðir nei...

Nei þýðir já og nauðgun er kækur - verulega fyndið, eða eiginlega ekki. Miðað við fréttirnar síðustu daga þá velti ég því fyrir mér hvort þetta sé mottó hjá einhverjum gaurum. Það flæða yfir okkur fréttir af nauðgunum og misnotkun á börnum. Spurning hvort þetta sé að aukast svona mikið núna eða hvort fréttamenn veiti þessum glæpum bara meiri athygli í bili. Verð að viðurkenna að manni er ekki sama þegar þetta flæðir svona yfir í öllum fjölmiðlum dags daglega. Þessir glæpir eru svo alvarlegir að ef það er rétt að tíðni þeirra er að aukast þá er eins gott að laganna verðir og allir bregðist hratt við. Það er staðreynd að fólk sem verður fyrir svona árásum upplifir glæpinn sem sálarmorð - það er enginn leið að setja sig í spor fórnarlambanna nema hafa upplifað slíkt sjálfur. Fór í göngutúr í gær í myrkrinu milli kl. 21 og 22, ein á labbinu með tónlist glymjandi í eyrunum. Eftir að hafa lesið allar þessar fréttir þann daginn var ég að velta þessu fyrir mér öllu saman. Var á gangi á göngust...

Allir góðir í einhverju...

en enginn góður í öllu. Fór í foreldraviðtöl áðan með krökkunum - BH kom með okkur í þetta sinn. Allt gekk ljómandi vel - það eru reyndar alltaf sömu athugasemdirnir. Þau virðast ekki bæta úr því á milli ára. KEB flýtir sér oft einum of og gerir klaufamistök - eins klár og hann er þá koma klaufavillur honum stundum um koll - pirrar kennarana oft meira en hann. KBB eldklár og námið liggur vel fyrir henni - en hún á það til að nenna ekki, reynir að komast upp með að gera sem minnst. Þau eru bæði til fyrirmyndar í skólanum og hegðun þeirra alltaf góð. Þá er það komið á hreint. Á leiðinni heim voru þau að plana hvað væri hægt að gera skemmtilegt og málið var að ég átti að sjá um að skemmta þeim. Varð að gera þeim ljóst að ég væri að vinna ritgerð sem yrði því miður að ganga fyrir. KBB: Og hvað á hún að vera margar bls.? LBK: um 20 bls. eða 5000 orð um það bil. KEB: og um hvað ertu að skrifa? LBK: Stjórnarskránna, endurskoðun hennar, umræður og þróun KEB: HVAÐ ERTU BÚIN AÐ KOMA ÞÉR Í? Í stu...

Þriðjudagar til þrautar

Er það ekki annars þannig sem þetta á að hljóma? Alla vega þessi þriðjudagur er til þrautar á heimilinu. Krakkarnir í fríi í dag, sem er ekki stórt mál - Ég þurfti að mæta í skólann í morgun og Kjartan Elvar er hundlasinn, 39,1°C þegar ég mældi hann kl. 7. BH varð að fara og við ákváðum að skilja KBB eftir í klukkutíma með veikann eldri bróður heima. Þetta reddaðist nú allt saman - kom bara heim um 10 og fékk svo að fara aftur í tíma 11:30 til 13:10. Þau kúrðu sig bara fyrir framan sjónvarpið og höfðu það náðugt. Ég er núna fyrst að setjast niður til að vinna í ritgerðinni - smá sjokk, leit á klukkuna og sá 16:15, fattaði þá að KBB á að mæta eftir korter í fimleika - sem væri allt í góðu nema ég fór með hana í flýti 15:30 í íþróttahúsið - fannst við vera of seinar. Hvað getur ein mamma verið vönkuð? Greyið búin að hanga þarna í klukkutíma. Fór í verslunarleiðangur áðan - Bónus, Krónan, bakaríið, pósthúsið - þetta er ekkert lítið leiðinlegt. Ef ég væri billjónamæringur þá myndi ég ekki...

Meistarastykki í smíðum

Þreytt eftir helgina - gerði samt ekkert að viti. Sit við að læra - græja ritgerð um þróun stjórnarskrárinnar - umræður um hana og breytingar - þ.e. Gefa breytingar á stjórnarskránni, og umræður um breytingar á henni hugmyndir á þróun í íslensku þjóðfélagi? Þar hafið þið það - ef einhver er með góðar hugmyndir um þetta mál þá eru þær vel þegnar, já eða lesefni til að koma mér áfram :o). Annars gengur mér ágætlega - bara mikil vinna og mikið að lesa, svo endalaust pússl að koma þessu saman á gáfulegan hátt. Búin með framsöguna sem ég flyt í næstu viku, svo á ég eftir að skrifa nokkrar blaðsíður um Lúðvík XVI. Frí í Lágafellsskóla á morgun, starfsdagur kennara, líka á miðvikudaginn, foreldraviðtöl. Það er nú eins gott að það sé frí, púff krakkarnir uppgefnir bara því Vetrarfríið var fyrir þremur vikum síðan - það má nú ekki ofbjóða þeim. Annars er mér slétt sama um þessi frí, hef alltaf náð að redda mér með lítilli fyrirhöfn. Finnst helst fúlt þegar kemur að sumrinu hversu lengi skólinn ...

Rólegheit á Sunnudegi

Í framhaldi af matarboði hjá Tengdó kom Anton til Kjartans og gisti hjá honum frá föstudegi til laugardags. Una gisti svo næstu nótt hjá Karlottu - fínt að fá svona aukabörn í heimsókn. Þetta eru svo stórir krakkar að við vitum ekki af þeim. Kjartan tók þátt í fimleikamóti í Bjarkarhúsinu í Hafnarfirði. Hann stóð sig vel drengurinn, eins og alltaf. Hann komst ekki á pall, en það var nú enginn að halda það fyrirfram. Það kemur helst til af því að hann fór fyrir um þremur vikum í fyrsta sinn á þessi áhöld sem hann síðan keppti í áðan. Hringir, gólf, slá og hvað þetta heitir allt saman. Hann verður töluvert flottari að ári, þá búinn að ná betri tökum á þessu öllu saman. Sunnudagurinn verður annars bara svona rólegheit - ég er að lesa og læra, BH að vinna, KEB búinn að læra og kría út úr mér að fá að fara í Playstation vélina eftir viku bann, KBB hjá Unu, eflaust að leika sér með PetShop leikföng. Er svona að velta fyrir jólafötum á krakkana - KEB nennir ekki svona fatakaupum og stakk uppá...

Leggur og skel

Nei kannski ég hafi ekki leikið mér með legg og skel - og þó. Við fjölskyldan fórum í Flatey ásamt Jönu og Óðni þegar ég var um 7-8 ára gömul. Mamma kenndi mér að leika með kjálka og skeljar sem við fundum í fjörunni. Veit ekki af hverju kindakjálkar voru í fjörunni - en þeir voru það samt. Hún sýndi mér hvernig fólk hafði farið að í gamla daga áður en herbergi barna voru að springa úr litríku plastdóti. Ég átti töluvert mikið af dóti - skorti ekkert, Svandís átti jafnvel enn meira enda fjórum árum yngri. Það byrjaði að flæða alls konar spennandi Barbiedót inn í stórmarkaðina og hún naut góðs af. Börnin mín komast varla fyrir í herbergjum sínum fyrir leikföngum og á það kannski betur við dömuna á heimilinu. Það gjörsamlega flæðir út um eyrun á okkur leikföng af öllum gerðum og stærðum. Samt er það þannig að ég hef ekki gefið þeim leikföng í jóla- og afmælisgjafir í nokkur ár. Reyni að finna eitthvað annað en eina enn dúkkuna, barbie eða Bratz fylgihluti - fjarstýrða bíla o.s.frv. Síðas...

Murphy´s Law

When it is too good to bee true... It is! Hringdi í BH eftir skóla kl. 10 í morgun - enn í sæluvímu með hreinu rúðurnar. Ákvað að drífa í að fá gölluðu batteríi skipt út í tölvunni minni. Búin að humma þetta framaf mér í nokkrar vikur. Hann hringdi í EJS og þeir sögðu að ég mætti bara koma strax og skipta. Wow og ekkert vesen, trúði ekki hvað ég var heppin. Hundfúlt að fá stæði þarna á Grensásveginum, ákvað að láta reyna á heppni mína inn á plani hjá þeim þarna sem lagerinn er. Fékk þetta líka fína stæði beint við innganginn. Yikes, minns heppinn í morgunsárið. Fór inn og spurði gaurinn hvort hann kannaðist við símtal frá Rögg í sambandi við Batterí - neibb það gerði hann ekki. Ok ég kom til að skipta út batteríi - dró upp vélina mína og hann kíkti undir hana - ekkert mál fékk nýtt batterí. Hann bauðst til að setja það bara í vélina - flott þáði það bara. Spurði hvort ég vildi halda því gamla áfram - má ég það, þvílíkt nice, komin með tvöfalt batterí fínt maður. Kvittaði fyrir mótttöku...

I can see!!!

Held ég hafi komið því að hérna að ákveðin verkaskipting er á heimilinu. Svona opinbert, þegjandi samkomulag. Ég sé um húsið (og garðinn að mestu) og BH fær að sjá um bílana, líka þann sem ég keyri. Bíllinn minn er mjög sjaldan þrifinn, hvorki að innan né utan. Pirrar mig ekkert sérstaklega - grár bíll þannig að lítið sést hvort hann sé skítugur eða ekki. Að innan er hann ekki svo skítugur því við göngum ágætlega um hann bara. Hins vegar eru rúðurnar vandamál hjá mér ár eftir ár. Þegar svona mikil rigning er þá keyri ég við hálfa sjón - mesta furða hvað það hefur gengið ágætlega. Rúðuþurrkurnar gera oft illt verra - yfirleitt drulluskán sem ekki fer akkúrat í minni sjónlínu og bara bílstjóramegin. Svo núna er myrkrið er skollið á bæði á morgnana og seinnipartinn þá fór sú litla sýn sem ég þó þóttist hafa - nú sér maður ekki allt í móðu heldur keyri ég bara eftir minni. Sé ekki baun í bala, frekar slæmt. Og þar sem ég ætla ekki að sjá um að þrífa rúðurnar (næ varla almennilega upp á mið...

Rík eða fátæk

Dag nokkurn tók mjög efnaður maður son sinn með sér í ferð út á land í þeim tilgangi að sýna honum hvernig fátækt fólk býr. Þeir dvöldu tvo daga og nætur á sveitabýli sem myndi teljast fátæklegt. Á leiðinni til baka spurði faðirinn son sinn hvernig honum hafi þótt ferðin. "Hún var frábær Pabbi." "Sástu hvernig fátækt fólk býr?" spurði faðirinn. "Ó já," sagði sonurinn. "Jæja, segðu mér, hvað lærðir þú af þessari ferð?" spurði faðirinn. Sonurinn svaraði: "Ég sá að við eigum bara einn hund en þau eiga fjóra. Við eigum sundlaug sem nær útí miðjan garð en þau eiga læk sem engan enda tekur. Við erum með innflutt ljósker í garðinum en þau hafa milljón stjörnur á næturnar. Veröndin okkar nær alveg að framgarðinum en þau hafa allan sjóndeildarhringinn. Við eigum smá blett til að búa á en þau eiga akra sem ná eins langt og augað eygir. Við höfum þjónustufólk sem þjónar okkur en þau þjóna öðrum. Við þurfum að kaupa okkar mat en þau rækta sinn. Við erum...

Little Johnny

A new teacher was trying to make use of her psychology courses. She started her class by saying, "Everyone who thinks they're stupid, stand up!" After a few seconds, Little Johnny stood up. The teacher said, "Do you think you're stupid, Little Johnny?" "No, ma'am, but I hate to see you standing there all by yourself!" Little Johnny watched, fascinated, as his mother smoothed cold cream on her face. "Why do you do that, mommy?" he asked. "To make myself beautiful," said his mother, who then began removing the cream with a tissue. "What's the matter?" asked Little Johnny. "Giving up?" The math teacher saw that little Johnny wasn't paying attention in class. She called on him and said, "Johnny! What are 2 and 4 and 28 and 44?" Little Johnny quickly replied, "NBC, FOX, ESPN and the Cartoon Network Little Johnny's kindergarten class was on a field trip to their local police station w...

Same old, same old

Skóli kl. 8 í gærmorgun, hafði gleymt að taka bensín og vonaði (vissi) það besta. Fór í vinnuna eftir skóla og svo heim að sinna börnum og búi. Endaði í Bónus og svo í N1, á þeim tíma var bíllinn farinn að ganga fyrir bensíngufunni, eflaust verið mjög kátur er tankurinn var fullur, rúmir 80 lítrar sem hann svolgraði. Þá var haldið í Krónuna og verslað meira, vantar orku í heimilisfólkið líka. Heim var komið og raðað í skápa - aðeins tekið til (virðist vera sú eina sem hef þörf fyrir það á þessum bæ) og svo eldaði ég matinn. Svandís borðaði með okkur og svo sátum við frameftir kvöldi og sinntum Scrap albúmum. Helena og Ellen komu og sátu hjá okkur. Helena var alveg hissa að barnapíuna vantaði því hún gat lítið gert með Aron Frosta á handleggnum, BH hafði skroppið í bæinn að vinna og í líkamsrækt. En þegar hann kom heim mátti Helena þakka fyrir að hann reif ekki drenginn úr höndunum á henni. Eins og litlu börnin, má ég, má ég - þið vitið halda á barninu! Svona líða dagarnir hérna í Mosfe...

Að vita meira og meira...

Ég er á kafi í frönsku stjórnarbyltingunni, las til klukkan 2 í nótt og átti að mæta klukkan 9 í morgun. Mikið lagt á sig - gat alla vega aðeins tekið þátt í umræðum eins og stefnt var að. Þessi saga byltingarinnar er mjög áhugaverð. Vildi að ég hefði tíma til að sökkva mér ofan í þetta og lesa meira en bara námsefnið - en það kemur með betri tíð og blóm í haga. Það er svo óendanlega margt sem mig langar að lesa meira um eftir þessa þrjá vetur í sagnfræðinni. Ekki alveg hægt að segja að námið sé einhæft, alla vega ekki efnið sem við erum að lesa. Allt frá torfkofum á Íslandi til trúabragða deilna nútímans. Er svona að gera það upp við mig hvort ég lesi aðeins meira núna eða drífi mig að klára verkefni sem ég er að leggja lokahönd á. Það er alltaf svo miklu einfaldara að setjast bara niður og lesa dálítið. Dóttir mín komst að því í morgun að mamma hennar er ekki alveg að bulla þegar hún leggur áherslu á mikilvægi hreinlætis. Fór inn og ýtti við barninu í morgun, bað hana um að drífa sig...

Það er leikur að læra...

Verð víst að lesa fyrir morgundaginn - vill til að þegar ég loksins sest niður og sökkvi mér í þetta þá er þetta ekki leiðinlegt. Við krakkarnir þrifum hérna aðeins hjá okkur áðan - voða fínt að fá aðstoð að venju þá tekur þetta mun styttri tíma. Kjartan er búinn að vera að suða í mér að baka með honum rúllutertu sem honum þótti svo góð í heimilisfræði - hann kom heim með bókina núna fyrir helgi þannig að við létum verða af því. Gerðum tvöfalda uppskrift og þegar ég var búin að hella því á bökunarpappírinn á plötunni þá fer ég að yfirheyra drenginn hvort einfalda uppskriftin hefði ekki líka þakið heila plötu. Hann hélt það nú - yeb þannig að við fengum ansi þykka og veglega rúllutertu sem hefði vel dugað á tvær plötur. Þetta var ekkert verra - vitum bara betur næst þá gerum við tvær kökur úr þessu. Ma og Pa komu við hjá okkur á og hjálpuðu okkur með kökuna. Nú er ekki mikið eftir, spurning hvort BH fái nokkuð að smakka því hann var farinn að vinna. Farin að lesa...

Lítið lært í dag

Vaknaði seint - las uppí rúmi - aulaðist framúr og við mæðgur fengum okkur hádegismat. Fórum í göngutúr út í Leikbæ og keyptum afmælisgjöf fyrir Huldu Karen. Heim í bað og rukum svo allt of seinar í afmæli. Þar var stútfullt útúr dyrum, brjálað fjör. Spjallaði við Fríðu og Helgu meðan Karlotta lék sér með krökkunum. Svo var haldið heim á leið og svo farið beint aftur í partý til Björgvins og Ernu. Fengum geggjaða kjötsúpu og svo var kjúklingur með frönskum í boði líka - eftirrétturinn var eins mikið nammi og fólk gat í sig troðið. Spiluðum Scene it spilið - DVD spil um bíómyndir, ferlega skemmtilegt. Sérstaklega því við BH burstuðum hin þrjú liðin og tvö þeirra voru með spjöld til að stoppa okkur af, en voru alltaf að geyma þau til betri tíma - þokkalega sem þau voru spæld er við lentum beint á lokareitnum og gátum svarað spurningunni sem að okkur var rétt - Yeb - minns reddaði því aldrei þessu vant. Svo sátum við allt kvöldið og spiluðum spurningarnar og klippur úr bíómyndum og reyndu...

Fyrst þú heyrnartólið tekur...

Fór til mömmu í gær - endaði með ma og pa til ömmu, Freyja er í heimsókn. Við fórum öll í sama bíl og ég keyrði - pabbi var að skoða handsfree-símagræjurnar í bílnum hjá mér og spyrja út í þetta, ákvað að sýna honum bara hvernig þetta virkar og hringdi í Baldvin. BH: Haaalllóóóó LBK: hæ og útskýri strax fyrir honum að ég sé að sýna pabba símann í bílnum. BH: Já já eins gott að ég svaraði ekki eins og ég ætlaði að svara HAHAHAHAHA. Það hefði verið vandræðalegt. Það er nefnilega ekki alltaf gott að hafa símanúmerabirti, stundum dettur manni í hug að svara eins og fífl og það getur komið manni um koll. Fyrir þó nokkru síðan hringdi síminn minn frammi einhvers staðar, BH var að vinna með Óskari eitthvað, ég lá eins og skata uppi í sófa undir teppi að glápa á sjónvarpið. Glætan að ég nennti að standa upp og svara. Sé að það er BH að hringja svo ég læt vaða: ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÞÚ HAFIR SKOTHELDA ÁSTÆÐU TIL AÐ RÍFA MIG UPP Á RASSGATINU UPP ÚR SÓFANUM FRÁ SJÓNVARPINU. (Þarf ég að taka fram að...

Október

Október er bleikur mánuður, sonur minn verður ánægður þegar hann uppgötvar það :o). Í þessum mánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini og öllu krabbameini bara held ég. Ég var að heyra af konu sem greindist með heilaæxli í fyrravor. Þessi kona hefur unnið í Lágafellsskóla svo ég var óskaplega miður mín síðasta haust þegar í ljós var komið að ekkert væri hægt fyrir hana að gera. Áðan frétti ég af henni aftur, hún er búin að vera í fríi frá vinnu allt síðasta ár. Meðferð hennar gekk út á að minnka æxlið til að hægt væri að skera það í burtu, það virtist ganga ágætlega og fyrr í vikunni átti hún að fara undir hnífinn. Læknar tóku myndir af lunganu hennar og í ljós kom að þar var æxli sem ekki var vitað um áður. Í framhaldinu komust menn að því að aldrei hafi verið um heilaæxli að ræða, heldur bara æxlið í lunganu. Skil þetta ekki alveg en svo virðist sem boðefni frá æxlinu berist til heilans og verði til þess að heiladingullinn bólgnar upp og líti út fyrir að vera æxli. Í stuttu máli v...