Fara í aðalinnihald

Svo þreyttur...

Er ég aulaðist í rúmið í gær sagði ég manni mínum að ég myndi svo bara vakna á fimmtudaginn - of lítill svefn undanfarinna daga farinn að segja til sín. Ákvað að sofa út í morgun eftir að krakkarnir voru farin í skólann. Ég vaknaði ekki fyrr en á hádegi - og hefði alveg getað sofið lengur, hafði bara ekki samvisku til þess. Ég grínast ekki með það - hefði farið létt með að sofa fram á fimmtudagsmorgun.

Vinnan fékk forgang í dag - virðisauki 5 desember og þá er betra að vera búin að græja sept og okt í bókhaldið. Hef verið sæmilega dugleg þannig að ég ætti ekki að lenda í vandræðum með þetta. Nú er bara að klára ritgerðina sem ég er að skrifa í Lýðræðisþróun á 20. öld og verkefnið um Lúðvík XVI, vera búin með þetta um helgina og þá er ég í ágætum málum. Þá næ ég auðveldlega að klára bókhaldið og vera dugleg að lesa fyrir prófið í frönsku stjórnarbyltingunni sem verður 12. desember.

Síðasti tíminn er á föstudaginn í skólanum - Ragnheiður svona líka hugguleg, bauð okkur að koma í Nýja Garð stofu 301 og hún ætlar að hafa kaffi og morgunverð. Í stað þess að mæta kl. 8:20 þá mætum við kl. 9:00, nice. Við erum í raun búin með námsefnið og ætlum bara að fara yfir ritgerðapælingar - þess vegna fer dagurinn hjá mér í það á morgun að fara yfir athugasemdirnar sem hún gerði við uppkastið og finna efni til að klára þetta. Þá nýtist tíminn mér ef það er eitthvað sem ég er að vandræðast með.

Síðasti tíminn í frönsku stjórnarbyltingunni var í gær, farið yfir restina og prófpælingar. Þetta ætti ekki að vera of mikið mál - ef ég næ að klára verkefnin þá hef ég ágætan tíma til að fara yfir efnið fyrir próf. Er búin að vera þokkalega dugleg að lesa fyrir tíma svo ég er ekkert að stressa mig of mikið á þessu - ekki strax alla vega.

Nú verður bara farið snemma í rúmið í kvöld svo ég aulist snemma framúr og haldi mig frá rúminu þegar krakkarnir eru farnir í fyrramálið. Alltaf svo góðar fyrirætlanir í kollinum á mér - gengur verr að fara eftir þeim.

Pollýanna

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...