Þar fór það - mér tilkynnt í gær er ég græjaði matinn að við værum nú aldeilis öll að fara á skíði fyrir norðan og svo á Óvitana í leikhúsinu - já já mín fékk aldeilis upplýsingar í skólanum frá öllum sérfræðingunum í málefnum Akureyrarbæjar. Spurning um að skella sér í Janúar - reyndar förum ekki á skíði nema leigja þau á alla fjölskylduna - mín skíði eru verulega sködduð í geymslunni hjá pabba og mömmu. Skíði okkar hjóna eru síðan við vorum unglingar og börnin okkar eiga ekki skíði - það var ekki alveg að vefjast fyrir dömunni - bara skella sér á skíði, við finnum út úr þessu!
Later
Later
Ummæli
það er nú gott að eiga góða vini stundum :D
kv. ellen