Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá apríl, 2009

Frambjóðendur og kjósendur

Á leiðinni í Skorradalinn var verið að ræða kosningarnar eitthvað og KEB vildi meina að þetta væru kjánar þessi þingmenn og frambjóðendur. Hmm hvaðan skyldi hann hafa það??? Við foreldrar hans sögðum að hann yrði bara að bjóða sig fram þegar hann hefði aldur til svo það yrði alla vega einn með viti þarna á þingi eftir einhver ár :o) Já og hann vissi alveg hvað ætlaði að gera: "Ég myndi bara aflýsa kreppunni og kaupa rússíbana" Myndu ekki allir kjósa hann?? Ég mundi gera það - hvað er betra en að kreppunni væri aflýst og í stað tilfinningalegs rússíbana sem margir Íslendingar eru í, þá myndum við bara fara í alvöru græju :o) Heyrðum líka af 17 ára dömu sem var að spjalla við móður sína. Hún vildi ekki sjá það að fá evruna til Íslands - bara alls ekki. Móðirin var hissa á ákveðni stúlkunnar og spurði um ástæðu. Kom í ljós að þessi unga snót nennti bara ekki að fara að reikna hvað allt kostaði hérna :o) Móðirin var dauðfegin að dóttirin væri ekki enn komin með kosningarétt! Late...

Helgin

Þá er það búið - vona að fólk sé ánægt með útkomu kosninganna, fátt sem kom á óvart eða bara ekkert sem kom á óvart. Verður spennandi að sjá hvernig þau klambra saman þessari ríkisstjórn og hvernig þeim gengur að stjórna landinu. Ég vona að þau nái að halda haus og gera eitthvað gáfulegt. Vona líka að stjórnarandstaðan sjái sóma sinn í að styðja verðandi ríkisstjórn til góðra verka eins og þau orða það svo hátíðlega sjálf. Er ekki bjartsýn á að þetta takist hjá þeim áfallalaust en vona samt hið besta. Við nenntum ekki að vaka lengi frameftir á kosninganótt - tvær fermingar daginn eftir. Skottuðumst til Agnars í veisluna hans sem haldin var í Borgarnesi á Hótel Hamri. Glæsileg veisla í alla staði og í svo fallegu umhverfi - mjög skemmtilegur staður. Brunuðum svo til Péturs og þar var ekki síður glæsilegt allt saman. Bjartur og skemmtilegur salur með útsýni í allar áttir. Fermingardrengir dagsins voru svo flottir og ánægðir með daginn - allt eins og best verður á kosið. En þá er líka fer...

Sálarkreppa...

Kosningar á morgun og ég veit ekkert hvað skal kjósa - hvað hentar mér og mínum best? Hvaða flokkur er skítskástur? Það er rúm vika síðan að fíflið ég uppgötvaði að allt röfl og jaml og japl og fuður í öllum fjölmiðlum um kosningar áttu við mig líka - ég þarf að kjósa og þarf að ákveða mig. Fékk smá sjokk, nennti ekki að spá í þetta. Fannst mátulega fyndið að hlusta á fólk froðufella yfir lélegum þingmönnum - eða stjórnmálamenn froðufella til að fá fólk til að styrkja sig. Mjög fyndið þar til ég uppgötvaði að ég var hluti af vitleysunni. Ég þarf að hlusta á frambjóðendur og ákveða hvaða flokkur fær mitt atkvæði. Síðan þá hef ég verið með kvíðahnút í maganum - og hann stækkar bara því ekki eru þeir að standa sig vel á veiðunum þessir aðilar sem tala fyrir flokkana! Sú ríkisstjórn sem verður sennilega mynduð hérna eftir kosningar eru lélegt grín að mínu mati - hvernig ætla þeir að vinna saman? Það er svo mörg stór mál sem þeir eru gjörsamlega á öndverðum meiði. Það er nóg að nefna eitt d...

Gleðilegt sumar

Vaknaði snemma í morgun og sá að sólin skein úti - alla vega smá fyrir utan gluggan hjá okkur. Nennti ekki framúr samt til að kíkja - svaf meira. Þegar ég vaknaði aftur þá var komin þessi fína hressandi rigning. Alla vega allt skýjað og svona suddalegt bara. Við rifum okkur á fætur og fórum að gera okkur tilbúin í að drífa okkur út. Planið var að fara að hitta Husky-lið. KBB kom með okkur og við brunuðum til Suðurnesja - Háabjalli var áfangastaðurinn, rétt við Grindavíkurafleggjara. Við vorum þokkalega búin - í hlífðarfötum með húfu, trefil og vettlinga. Eða nei ekki alveg. Börnin mín voru alin upp berrössuð á Indlandi í mikilli fátækt - eða það hlýtur að vera því aldrei geta þau klætt sig almennilega. Og eru verulega hneyksluð þegar ég skipa þeim í föt - hlífðarföt, vettlinga, trefil, húfa o.s.frv. Já já reyni þau bara að segja mér að sumarið sé komið. KBB var semsagt illa klædd blessunin - enginn trefill, rétt mundi eftir húfu, engir vettlingar, aulaðist í vind/regnbuxur bara því ég ...

Hlunkar

Fór að gamni áðan í Dýramiðstöðina í Grafarholti - þar er stór vigt og mig langaði að vigta krílin mín. Sjá hvort Ronja hafi þyngst síðan í des/jan og hversu rosalega Úlfur hafi þyngst á þessum fáu mánuðum. Það er sjáanlegur munur á þeim, Úlfur hefur stækkað mikið og er nú orðinn stærri en tíkin. Og þyngri - jamm ÞYNGRI. Hún hefur alveg haldið þyngd síðan um átta mánaða aldurinn - er enn 19,7 kg. En hann er orðinn 20,4 kg. og hann á bara eftir að þyngjast þessi elska. Úlfur hefur þyngst hratt - 22. des var hann 6 kg. - 12. jan 9,1 kg - 13. feb 13,7 kg. og svo núna 22. apr er hann orðinn 20,4 kg. Og samt er hann bara músin mín :o) Ferlega fyndinn flækjufótur :o) Fékk upplýsingar í leiðinni um ófrjósemisaðgerðir fyrir tíkur - Ronja verður sennilega tekin úr sambandi í maí. Það er góður tími fyrir hana og gott að hún sé bara búin að lóða einu sinni. Minnkar líkur á krabbameini í leginu ef það er gert svona snemma! Eftir annað lóðarí eða þriðja þá skiptir það ekki lengur máli - þ.e. minnka...

Einu sinni skáti...

já eða þannig því við BH vorum aldrei skátar. Hefðum kannski þurft á því að halda í æsku. Læra að vera ávallt tilbúin! Þegar börnin okkar komu í heiminn vorum við alls ekki tilbúin - það voru bara níu mánuðir sem við höfðum til stefnu - döh. Þetta er nú kannski heldur ýkt en samt skemmtilega nálægt sannleikanum. KEB kom eins og allir vita mánuði fyrr en áætlað var og BH fór með fyrrverandi mágkonu sinni í verslunarferð til að kaupa bleiur og þetta helsta. Náði í rúmið sem við fengum lánað - setti það saman og svona. Það var svo æðislegt þegar það var komið upp. Fötin sem ég fékk lánuð voru þvegin og strokin fyrir mig og sett í kommóðuna sem ég hafði undir fötin. Þetta var kommóðan sem mamma fékk þegar ég fæddist :o) Svona var þetta hjá okkur - helgast helst af gamalli hjátrú um að hafa ekki allt tilbúið of snemma. Auðvitað vorum við búin að gera ráð fyrir öllu og hugsa þetta allt - fá lánað ýmislegt sem átti bara eftir að sækja! Reynslunni ríkari var þetta nú kannski ekki svona slæmt þ...

Þrautseigja

VG orðin stærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt nýrri könnun. Þeir búnir að bíða lengi og oft verið hlegið að þeim þannig að þetta hlýtur að gleðja flokksmenn. Ég kaus flokkinn síðast en verð að viðurkenna að ég er ansi tvístígandi núna. Ég veit satt að segja ekki hvað á að kjósa núna - finnst enginn góður kostur í stöðunni. Er hrædd um að VG velti mér og minni fjölskyldu yfir til verri vega. Sjálfstæðisflokkurinn er sennilega skásti kostur okkar á þessu heimili en það er ekki séns að ég vilji kjósa hann - bara ekki. Samfylkingin hefur aldrei verið raunhæfur kostur á mínu heimili, hef því miður ekki trú á þeim. Ástþór og Lýðræðishreyfingin - já ræt, eru í besta falli gott skemmtiatriði í þessari annars þunnu kosningabaráttu. Frjálslyndir? - Nei vá það er ekki lið sem ég nenni einu sinni að hlusta á, verulega ótrúverðugur leiðtogi þar. Framsóknarflokkurinn er ekki að rokka neitt þrátt fyrir endurnýjun að einhverju leyti - spurning hvort þau þurrkist út núna? Þá er það Borgarahreyfingin -...

Jambo

Hér er búið að vera nóg að gera að vanda og þegar líður svona langt á milli þess sem ég skrifa þá nenni ég ekki að byrja. Það er bara svo margt sem ég hef að segja :o) Get ekki látið hjá líða að segja frá síðasta laugardegi - þessum fyrir viku síðan - vorum þá enn í sumarbústaðnum. Við fjölskyldan slökktum á sjónvarpinu eftir matinn og ákváðum að spila Trivial - eins og í gamla daga þegar ekkert var sjónvarpið í bústaðnum. En við erum öll svo tæp á þessum gömlu spurningum úr íþróttum og krakkarnir ekki að ná að svara miklu þannig að við hættum fljótlega að spila Trivial og KEB vildi endilega spila Actionary. Hann bauðst til að skrifa orð á miða sem við ættum svo að leika og giska og okkur öllum skipt í lið. SBK hjálpaði honum að skrifa orð á miða, miðunum svo hrúgað ofan í hatt. Tveir í hverju liði - ég og pa, SBK og KBB, KEB og ma! Þetta gekk svona og svona - KBB og SBK náðu best saman og rúlluðu inn stigum. KBB nokkuð góð í giskinu og leikrænir tilburðir hafa aldrei vafist fyrir drot...

Fjör

Erum í sumarbústaðnum með ma og pa - SBK komin líka með Týra sinn. Mér líður ponsu svona eins og í baðstofunni í torfkofunum hérna. Þ.e. plássið er ekki mjög mikið hérna. Sjö manneskjur og þrír hundar. Minnsti en jafnframt elsti hundurinn er að fara á límingunum. Urrar stanslaust, rétt nýhættur að láta í sér heyra. Ronja nennti honum ekki lengi - þefaði af honum og eftir litla stund lagðist hún bara niður að hvíla sig, leyfði honum bara að pirra sig í friði. Úlfur hins vegar kann ekki að skammast sín. Eða skilur ekki alveg hvað er í gangi því þó hann lagðist niður þá hætti Týri ekkert að láta í sér heyra. Loks þegar Týri hætti og lagðis niður með Úlf fyrir aftan sig - jámm hann kann ekki að skammast sín, hékk í rassinum á Týra bara, KEB þurfti þá endilega að veita Týra athygli, smá spjall og knús. Þá byrjaði Týri aftur og er á urrvaktinni núna. Bara fyndinn! Það var smá púsl að komast af stað í hádeginu - fjórar manneskju, tveir hundar og svo farangur. Farangri var haldið í algjöru lág...

Fermingardagurinn

KEB fermdist á pálmasunnudag, 5. apríl. Hér var allt meira og minna tilbúið þegar dagurinn rann upp. Mín vaknaði klukkan sex um morgunin til að fara í sturtu og setja upp andlitið og greiða flókann úr strýinu. Best að vera fyrst svo ég geti stjórnað hinum í fjölskyldunni og sinnt þeim. Lilja og Gunna voru hér mættar klukkan sjö um morgunin til að reiða fram veitingarnar á bakka og gera þær tilbúnar fyrir gestina sem væntanlegir voru um kl. 13. Þær sáu alveg um eldhúsið þannig að ég gat einbeitt mér að því að allir væru hér hreinir og komnir í spariföt með hárið í lagi kl. 9:45. þá áttum við að vera mætt upp í kirkju - alla vega KEB. Við KBB settumst inn í kirkjuna til að halda frá sætum fyrir okkur og fjölskyldu okkar. Kirkjan er lítil og því best að koma tímanlega til að fá sæti framarlega. Fékk sæti á öðrum bekk og þriðja - var nógu tímanlega til að geta valið, hver hefði trúað því? Þannig að við vorum ánægð með okkar sæti, hefði orðið verulega skúffuð ef ég hefði þurft að sitja afta...

Með mynd af bílnum í vasanum...

Það skal skjalfest hér að snillingurinn eiginmaður minn fékk skoðun á bílinn í gær. Skipti út ljósasettinu hægra megin að aftan og rúllaði bílnum í skoðun. Töldum best að fá bara endurskoðun á gripinn frekar en að borga þessa sekt sem annars hefði verið send til okkar í dag. En nei nei - BH gerði sér lítið fyrir og fékk skoðun á bílinn. Snillingur! Svo það sé á hreinu þá er ekkert að bílnum. Smá líknarbelgsljós sem logar, þarf sennilega bara að rífa bílstjórasætið úr og setja víra í samband aftur og þá er þetta komið. Nú líður mér töluvert betur á bílnum og ekki spillti fyrir að hann var þrifinn hátt og lágt í dag :o) Later

Skriðdrekar

Hér var þrifið hátt og lágt í dag. Allar gardínur þvegnar og burstaðar. Húsgögn færð til og ruðst inn til krakkana og rifið út dót og fíneserað. Alls konar dóti hrúgað út í bílskúr til að létta á öllu hérna. Er að spá í að selja þetta bara og fá pening í staðinn. Við eigum of mikið af dóti og drasli. Lilja og mamma komu hérna og hjálpuðu mér. Hvað gerði ég án þeirra. Algerir skriðdrekar og þær neituðu bara að fara. Þegar ég sagði að ég myndi bara dunda í að klára herbergin var svarað - ÞÚ HEFUR ENGAN TÍMA Í NEITT DUND, við bara klárum þetta núna. :o/ hvað gerir maður þá annað en að hlýða bara og áfram héldum við eftir matinn :o) BH kom með pizzur handa okkur þegar hann kom frá því að sækja soninn í fimleika. Tengdó var eitthvað að æsa sig við mömmu - svona eins og við gerum hérna, grínumst í því að siða aðra til og skipa fyrir. KEB fannst það eitursniðug - amma að skamma ömmu :o) Tengdó setti blátt BANN við hundum í stofunni til mánudags. Finnst eitthvað nóg um hundahár hérna. Efni í t...