Erum í sumarbústaðnum með ma og pa - SBK komin líka með Týra sinn. Mér líður ponsu svona eins og í baðstofunni í torfkofunum hérna. Þ.e. plássið er ekki mjög mikið hérna. Sjö manneskjur og þrír hundar. Minnsti en jafnframt elsti hundurinn er að fara á límingunum. Urrar stanslaust, rétt nýhættur að láta í sér heyra. Ronja nennti honum ekki lengi - þefaði af honum og eftir litla stund lagðist hún bara niður að hvíla sig, leyfði honum bara að pirra sig í friði. Úlfur hins vegar kann ekki að skammast sín. Eða skilur ekki alveg hvað er í gangi því þó hann lagðist niður þá hætti Týri ekkert að láta í sér heyra.
Loks þegar Týri hætti og lagðis niður með Úlf fyrir aftan sig - jámm hann kann ekki að skammast sín, hékk í rassinum á Týra bara, KEB þurfti þá endilega að veita Týra athygli, smá spjall og knús. Þá byrjaði Týri aftur og er á urrvaktinni núna. Bara fyndinn!
Það var smá púsl að komast af stað í hádeginu - fjórar manneskju, tveir hundar og svo farangur. Farangri var haldið í algjöru lágmarki, við erum vön! Ronja var sett í búr og Úlfur var settur í bílbelti á milli krakkanna. Það þótti þeim nú ekki leiðinlegt. Þetta slapp allt svona ljómandi vel - hélt að við myndum ekki koma draslinu í bílinn en BH er atvinnupakkari. Spá í að senda hann út á flugvöll að hjálpa við að þjappa í vélarnar.
Keyrðum svo sem leið lá úr sólinni í Mosfellsbænum og í skýin og snjóinn í Skorradalnum. Þetta vakti misjafnar tilfinningar meðal fjölskyldumeðlima. Úlfur var alveg sáttur, bara á meðan við erum ekki í Hvalfjarðargöngunum þá er hann alveg góður. Hann fór að röfla þar, var ekki alveg sama í myrkrinu - algjört krútt.
Planið á morgun er að fara eitthvert í göngutúr og sleppa hundunum lausum. Jafnvel kíkja í sund kannski. Svo getur vel verið að við höngum bara hérna í dalnum og leikum okkur, nóg við að vera hérna. Alveg magnað hvað þessir 50 fermetrar duga okkur stórfjölskyldunni ágætlega.
Later

Ummæli