Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá janúar, 2011

ó já ég gleymdi...

Montið - má ekki gleyma montinu. Foreldrarnir á þessu heimili eru að rifna úr monti yfir flottu krökkunum á heimilinu. Þau komu heim með einkunnir í dag eftir janúarprófin. Þarf ég að segja meira? Nei hélt ekki. Fyrirmyndarbörn með ágætiseinkunnir bæði tvö. Meðaleinkunn beggja var 9,5 :o) Þau skora hærra en foreldrar þeirra gerðu það er klárt mál :o) Later

á skíðum skemmti ég mér...

Vona það alla vega - fer í nótt út á völl og flýg snemma í fyrramálið. Öll svör mín við spurningum um þessa ferð hafa verið á einn veg "ég bara veit það ekki" - "ég man það ekki" - "ég hef ekki gáð að því" og "nei ekki ennþá". Nei ég var ekki byrjuð að pakka, fyrr en seinnipartinn í dag. Ég man ekki hvað staðurinn heitir þar sem við verðum, það er samt búið að segja mér það alla vega þrisvar og ég veit að það er í Ítalíu. Nei ég veit ekki hvenær er flogið í fyrramálið, veit að ég þarf að vakna snemma og verð sótt um fimmleytið. Nei ég veit ekki hvenær dags ég kem 5. febrúar. Mikið verð ég bara glöð þegar ég verð búin að pakka almennilega og ákveða hvað fer ofaní töskuna, komin út á völl og get bara tjillað aðeins. Öll vikan hefur snúist um að klára allt í vinnunni fyrir mánaðarmót, vsk og áramótadót eitthvað. Svo hefur maður aðeins verið að reyna að hafa þvottakörfuna tóma, aðeins að halda í horfinu hérna þó ég hafi nú ekki nennt að þrífa sérstak...

Eniga meniga

Fór í Office 1 áðan og meðal þess sem ég ætlaði að kaupa var gulur yfirstrikunarpenni. Ætti ekki að vera vandamál í svona verslun að finna einn slíkan. Og satt best að segja hélt ég að þeir yrðu þarna í röðum, nokkrar týpur og svona. En ég fann bara eina týpu í einum kassa innan um aðra liti í hillunni. Fannst þeir líta illa út, upplitaðir og óspennandi. Svo ég tók einn upp, opnaði hann og sá að hann var skrýtinn á litinn. Svona eiginlega dökk gulur... nánast út í orange. Svo ég ákvað að prófa kvikindið á blaðinu sem til þess hangir þarna hjá pennunum öllum. Og eins og mig grunaði var yfirstrikunarpenninn uppþornaður og það kom lítið gult á blaðið sem ég reyndi að strika á. Eins var með næstu þrjá penna. Leitaði dálítið að annarri týpu, svona týpu sem kannski myndi koma eitthvað úr, væri ekki uppþornuð. Nei fann ekkert, nema jú það var svona penni í pakka ásamt öðru pennadóti sem mig vantar bara ekkert. Vildi því ekki kaupa þannig. Prófaði fleiri penna úr vafasama kassanum og fann ein...

Hugaður

Farkas er áræðinn og mátulega hugaður. Hélt reyndar að ég myndi enda með dauðan hvolp i morgun og það væri algjörlega hans eigin heimsku að kenna. Hann tekur stóran sveig framhjá Ronju, hörfar ef hún er að ferðinni og leggur ekki í að mæta henni viljandi. En litla kvikindið lét sig þó hafa það að stela beininu hennar. Hún hafði legið á miðju gólfinu í holinu og nagað í góða stund. Fylgst með öllu og öllum þaðan sem hún lá. Svo hvarf hún inn í forstofu og fékk sér að drekka smávegis. Þá tók ég eftir að litla gerpið stökk af stað og náði sér í beinið hennar og rauk inn í stofu með það. Ég ákvað að bjarga lífi hans og ná honum til að taka beinið. Of sein. Ronja mjakaði sér fram, sá að beinið var horfið og hún var ekki sekúndu að vita hver sökudólgurinn var. Þarf engan Sherlock Holmes í málið neitt. Svo hún fór á eftir honum inn í stofu og ég ákvað að ég nennti ekki undir borðstofuborð og beið eftir því sem verða vildi. Hvolpurinn var ekki heimskari en svo að hann sleppti beininu og forðað...

Hálfleikur

Lupo farinn útaf og Farkas settur inn í staðinn. Farkas var alveg sama þó Lupo hefði fengið að vera lengur. Og held að Lupo hafi bara verið feginn að fá smá time alone núna. Hann var nú búinn að temja kvikindin mín aðeins. Þau orðin þokkalega vön honum. Svo vön að Ronja nennir ekki að eltast við Farkas þarna úti í gerði. Lætur hann eiginlega alveg eiga sig bara. Verður spennandi að kynnast honum betur og knúsa dálítið... svona eftir að ég blæs af honum mestu drulluna þegar hann kemur inn á eftir :o) Later

Vígalegt

Það er voðalega gaman að horfa hérna út í garð. Tveir virðulegir hundar sem fylgjast með öllu. Og svo eitt hvolpaskott að reyna sitt besta að líkja eftir þeim. Hann er svo mikill hvolpur samt að hann platar engan. Svo mikið krútt þar sem hann situr hjá þeim og fylgist líka með. Svo er tekið í hann öðru hvoru. En honum verður ekki meint af. Hlýðir bara og þá eru allir sáttir. Verra þegar þau eru hérna inni. Ronja á það til að vera ansi aðgangshörð. Manni stendur eiginlega ekki á sama. Lupo búinn að læra það að vera ekki fyrir gribbunni. En Úlfur hins vegar er engin ógn. Fínt að vaða í hann og athuga hvort hann sé ekki í stuði... sem hann er eiginlega alltaf :o) Þetta lúkkar svo vel þarna úti að það er spurning hvort maður láti ekki vaða og endi með sitthvort teymið. Sex á mann, tólf hundar - hljómar vel. Alveg þar til ég hugsa um alla göngutúrana og að hirða upp eftir þá. Þá virkar raunveruleikatékkið vel og ég er alveg læknuð :o) Later

you snooze you loose !

Þar sem ég er svefnpurka og á auðvelt með að sofa endalaust, þá er gott að hafa eitt lítið hvolpaskott sem rekur mann framúr. Út með Lupo að pissa og svo inn aftur. Það er ekki nóg til að ég skríði ekki aftur upp í rúm á laugardagsmorgni þó klukkan sé orðin hálf níu. Neinei þeir félagar (Ronja enn í búrinu sínu) hlupu hér eins og berserkir framogtilbakaframogtilbakaframogtilbaka... og alltaf á spegilinn sem má ekki við meira eftir átök heimilishundanna í den. Svo Ég skoppaði með þá bræður út í gerði þar sem þeir mega djöflast og hamast eins og þeir vilja. OG ÞÁ er ég sæmilega vöknuð og þarf ekki að hvíla mig meira. Geispa bara doldið og næ mér þannig í súrefni. Húsið er ónýtt eftir lélega umgengni heimilisfólkskins svo það er sennilega best að byrja á því að tjasla því saman. Svo verð ég víst að vinna dálítið til að vera ready áður en ég fer út. VSK, laun, reikningar, áramót og mánaðarmót... hvaða hálfviti sagði já við útlandaferð á þessum tímapunkti? Later

Here we go again...

Sömu trikkin - nýr hvolpur Hann er fjögurra mánaða, hálfbróðir Úlfs og skuggalega líkur þessum stóra. Sömu litir í þeim báðum. Fullur af fjöri, búinn að klóra aðeins í handabakið á mér þegar ég var að leika við hann. Nú eru þeir hálfbræður úti í gerði að takast á. Þessi stóri að kenna þeim litla að hemja sig, og að sá stóri ræður. Sá litli að takast á við hræðslukastið og færa sig upp á skaftið. Kominn upp á kofa að spóka sig með þeim stærri og horfa á lífið í kringum sig. Ronja fékk ekki að vera með í leiknum að sinni. Mér fannst of mikið að hafa tvo stóra úlfa níðast á þeim minni. Hún liggur hérna hjá mér frekar fúl að þurfa að vera inni. Tók hana góða stund að sætta sig við að ver hér hjá mér þegar fjörið er klárlega úti. Ætli ég taki Úlf ekki inn í smá stund á eftir og setji Ronju hjá krílinu í staðinn. Vona að þau taki út þörfina fyrir að siða greyið til þarna úti. Nenni ekki svona látum hérna inni :o) Later

Dauð á morgun

Búið að vera nóg að gera undanfarna daga. Aldrei nein lognmolla hér. Barnapössun, hvolpapössun yfir nótt og svo fáránlega skemmtilegur dagur í dag. Ég skemmti mér svo vel að það er varla hægt að toppa þetta nema náttúrulega með annarri ferð bara. Vaknaði kl. 7 í morgun (harkan maður). BH henti hvolpaskottum og Úlfi út í gerði (vissara að hafa tíkina inni bara) svo við fengjum frið til að pakka okkur fyrir daginn og smyrja nesti (sem kom heim aftur). Drifum okkur að ná í Sisku og svo brunuðum við í Norðlingaholtið þar sem álíka bilað lið safnaðist saman. Hægt að þekkja hálfvitana á sleðum á toppi bíla þeirra. Takmarkið var að komast í snjó. BH og Olga fóru í gær, fundu snjó við Vatnfallsvirkjun og þangað var stefnan tekin. Þau fengu útrás í gær í verulega vel heppnaðri ferð. Tveir Kúskar, tveir sleðar og sex hundar, þrír á hvorn sleða. Þau fóru þrettán km. Gott veður, þokkalegur snjór og rosa gaman. Í dag var fullt af fólki með fullt af hundum, slatta af sleðum og nokkur gönguskíði. Við...

Nesti og nýja skó...

Kannski ekki nýja skó en örugglega nesti. Förum í fyrramálið og keyrum austur þar til við finnum snjó. Baldvin og Olga fóru í dag á einum bíl með sex hunda og fundu snjó eftir tvo og hálfann tíma. Voru með tvo sleða og voru á sitthvorum og fóru þrettán kílómetra. Brosið náði allann hringinn þegar þau komu tilbaka. Á morgun ætlar fólk úr sleðahundaklúbbnum að drífa sig af stað og við með. Ég var heima í dag og ætlaði að vinna. Það varð eitthvað minna úr því en ég ætlaði. vaknaði seint og var í snatti með krakkana. Fékk svo Lupo og Farkas í heimsókn og þeir verða hér í nótt. Tökum þá með okkur á morgun. Pikkum Sisku upp líka, best að hafa nóg af hundum til að draga sleðana, auðveldara fyrir þá. Hlakka mikið til og kannski best að hypja sig í rúmið svo ég hafi orku til að opna augun klukkan sjö til að vera komin í Norðlingaholtið klukkan níu :o) Later PS - velti því fyrir mér hvort ekki sé rétt að flytja til Akureyrar á veturna... alla vega eiga íbúð þar og litla flugvél til að skottast þ...

Hafið yfir allann vafa

Þannig er að þegar Úlfur kemur og sest hjá manni, t.d. þegar maður situr við sjónvarpið eða við tölvuna, og horfir upp til manns biðjandi augum þá verður maður að sinna honum. Stundum vill hann bara athygli, smá klapp og knús. En stundum fer ekkert á milli mála að maður þarf að standa upp úr sófanum og fara með honum fram og hleypa honum út. Ef maður skilur ekki alveg í hvelli að það er málið... að hann þarf að fara út... gefur hann skýrar til kynna að honum sé mál. Hvernig? Jú hann situr á rassinum og prumpar með hljóðum. Voða pent en nógu greinilega til að maður áttar sig á að teppið er í vondum málum ef maður sinnir ekki krílinu. Later

Segðu aaaa

Þar kom að því - fyrsta stóra skemmdin í tönnunum. Og það dálítið mér að kenna. Dæmigert að þær séu að skemmast núna þegar ég var svona að skipta um tannlækni og vissi ekki hvert ég átti að fara. Minn læknir er orðinn of gamall - hættur að sjá nokkuð held ég. Tvö ár síðan ég fór síðast og þá var mér sagt að það þyrfti að gera við fljótlega :o/ Þá hefði þetta verið minna. En þetta slapp - engin rótfylling eða neitt slíkt. Kann ekkert á þetta og hélt að ég myndi núna líta tannlækna hornauga eins og margir aðrir. En það er nú ekki raunin. Var ekki mikið mál. Skoppa þarna áhyggjulaus að ári. Var deyfð, hjúkk - spurði eftir aðfarirnar hvort fólk væri í alvöru að gera þetta án deyfingar. Hann vildi nú meina að svo væri ekki, það væri bara ef verið væri að laga smáskemmdir. Alls konar járnarusl á tennurnar og svona... frekar óþægilegt nema af því ég var dofin. Get kannski sagt núna að ég sé dofin í hausnum, dofin í vinstri efri kjálkanum og ennþá dofin hægra megin í neðri kjálkanum og niður á...

BArnið mitt

Þá er ég enn og aftur orðin skráð stúdína við Háskóla Íslands. Spurning hvort ég klári þetta ekki núna og ljúki grunn-námi í Sagnfræði. Eins gott að ég taki mig á og ljúki við að búa til BArnið mitt. Það verður þá júníbarn eins og ég :o) Getur ekki klikkað fæ örugglega TÍU - eins og hin börnin mín eru tíur líka ;o) Engin búinn til úr afgöngum hérna neitt LoL Fékk leyfi til skráningar í skólann, skráði mig og borgaði, fór í VR sem borgar helming á móti mér skráningargjaldið. En þarf svo að fara aftur í dag til að fá að skrá mig í BA-ritgerð þar sem nemendaskrá lokar kl. 15, vissi það ekki og var 17 mínútur yfir þrjú á staðnum í gær :o/ Svo er smá togstreita í gangi í hausnum á mér því ég gæti tekið eitt námskeið sem gæti komið sér ágætlega að hafa lokið... but it is hard :o/ Er frekar slöpp í að læra lesa aftur og ekki viss um að ég nenni að sitja langt fram á kvöld að ljúka við verkefni. En Ritgerðin sjálf hins vegar er að mótast í hausnum á mér og ég er vongóð um að geta haft gaman að...

Nýtt ár - ný verkefni

Þeim tókst það loksins, mikið hljóta þau að vera glöð! Nú þarf ég að vinna hratt í því að hrista á mér rassinn (allann kropinn) og ná mér í smá þol. Byrja strax núna, ef ekki þá alla vega á Sunnudaginn. Þá verður gengið á Úlfarsfellið. Pabbi hringdi áðan og ég fékk nákvæmlega tíu mínútur til að ákveða hvort ég myndi ekki bara skella mér á skíði með þeim 29. janúar - 5. febrúar. Neee veit ekki sko. Talaði svo við Magneu sem sagði mér að hypja mig upp í vél og út. BH sagði það sama. Svo ég þori ekki annað en að hlýða og er því búin að segja já takk ég ætla að skella mér með. Þau eru búin að reyna í mörg ár að drífa mig með, og alla mína fjölskyldu. Það er ekki eins og mann hafi ekki langað en við höfum ekki látið verða af því. Þannig að nú hefur sá sögulegi árangur náðst í fjölskyldunni að drífa mig á skíði í útlöndum. Veit ekki alveg hvert en geri ráð fyrir Ítalíu. Verð bara að treysta þeim. Verður áhugavert því ég hef ekki skíðað síðan áður en ég fékk bílpróf og gömlu skíðin mín eru ek...

Nýtt ár - sömu verkefni

Þetta er orðin spurning um að snúa sólarhringnum við aftur :o/ Ómögulegt að hefja daginn svo seint sem ég geri þessa dagana og fara svona seint að sofa. Maður gerir minna á kvöldin en daginn. En ég hef verið dugleg að prjóna yfir sjónvarpinu langt fram á nótt. Peysan og taskan að verða tilbúið. Verst að mig vantar meiri lopa, spurning um að redda því í dag til að klára fljótlega :o) Vinna í dag... hugsa í dag (gerist sjaldan)... skipuleggja í dag... fundur í dag. Virðist vera nóg að gera. Spurning um að drífa sig út í daginn og byrja svo ég nái að klára eitthvað af þessu. Byrja á því að skottast í apótekið fyrir ömmuna mína og kíkja á hana í smástund. Sníkja hjá henni Svörtuloft eftir Arnald svo ég geti sníkt Furðustrandir í framhaldi hjá henni eða SBK :o) Later

Gleðilegt nýtt ár :o)

Varð að pósta inn hérna færslu í dag - við hæfi svona fyrsta dag ársins. Vona að allir hafi haft það eins gott og við fjölskyldan yfir hátíðirnar. Nú fer hversdagslífið að taka við aftur. En þar sem hver dagur lofar góðu á nýju ári þá hlökkum við að sjálfsögðu bara til :o) Later