Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá október, 2008

Villingur

Á hvolpanámskeiðinu sagði annar leiðbeinandinn við mig að það væri alltaf einn hrekkjupúki á hverju námskeiði og að við ættum þennan eina í þetta sinn. Við BH glottum og vorum mjög hissa - hvað segirðu, okkur grunaði það nú ekki :o) Ég er samt ánægð með hana - hér var allt í drasli í gær. Við SBK dreifðum úr okkur með föndurdót og vorum eitthvað að þykjast, eða ég var að þykjast hún var að búa til rosalega flott jólakort. SBK hafði orð á því að henni þætti merkilegt að Ronja léti þetta allt saman í friði bara. Jú ég hef ekki staðið hana að því að tæta neitt þó það sé drasl á gólfunum, skórnir okkar og flíkur hafa sloppið alveg hingað til. Hún fær bara sitt nagdót og hefur látið það duga. Það á ekki að tala um svona - bara vera ánægður með ástandið og þegja. Í morgun þegar við KBB vorum að taka til hérna hjá okkur kom ég að Ronju með Celebration nammimola í kjaftinum - alsæl með súkkulaðið að bryðja pappírinn utan af. Reif þetta útúr greyinu sem var ekki ánægð. Mundi að það má ekkert ve...

Dýrið gengur laust

Við BH fórum á hvolpanámskeið í gær - tíma númer 2. Þar var innkall æft. Það er svona með því erfiðara sem Husky hundar þurfa að sætta sig við. Þ.e. að koma þegar kallað er á þá. Sjálfstæðið og þrjóskan er alveg að fara með þessa tegund. Við höfum nú samt ekki lent í því ennþá að hún komi ekki þegar við köllum á hana. Enda með gott nammi til að verðlauna hana, lifrapylsan er best. Okkur var kennt að ef hundurinn ætlar ekki að láta ná sér, kemur ekki þegar kallað er á hann, jafnvel hlaupið í burtu, þá á maður bara að taka á rás í hina áttina. Þá koma þeir á eftir manni. Þeir vilja ekki verða eftir. Ef þeir koma ekki þá heldur þá á maður bara að fela sig og athuga hvort þeir fari ekki að skima eftir manni, þá kallar maður á hundinn án þess að láta hann samt sjá sig. Leyfa honum bara að hafa fyrir þessu. Hundurinn á nefnilega að passa að týna ekki fólkinu sínu, fólkið á ekki að þurfa að passa upp á hundinn. Þó fólkið geri það samt vissulega. Fórum eftir námskeiðið í kjötsúpu til mömmu. Þa...

Skárri í dag

Vaknaði í morgun allmiklu skárri en í gær. Ekki þessi hálsverkur og pirringur. Svaf með buffklút um hálsinn - svínvirkar þegar maður er kvefaður. Margoft búin að prófa það. Amma hans BH kenndi mér þetta fyrir mörgum árum. Tilkynnti BH þetta í morgun en tók jafnframt fram að röddin væri verri - dálítið hás. Fékk svar sem við mátti búast - já er þá ekki tilvalið að þú þegir í dag? Ætlaði í hádeginu á fyrirlestur hjá Sagnfræðingafélaginu en ákvað að spara mér bensínið eftir að hafa haft mig til. Hlusta á þetta á netinu í staðinn. Vann frekar í ritgerðinni hérna heima og fór svo ein upp á Lágafellið með Ronju. Aðeins að leyfa henni að hlaupa, hún er miklu sáttari á kvöldin eftir að hafa fengið að hlaupa um. Þetta gekk ljómandi vel, var hrædd um að lenda í veseni kannski ef við myndum hitta eitthvað fólk. Hún er svo forvitin, rýkur á allt sem er spennandi. Hún spókaði sig þarna á öðru hundraðinu á milli þess sem hún kastaði mæðinni smá stund. Magnað hvað smá snjór getur verið skemmtilegur. ...

Misskilningur

Keypti um daginn svona Vorrúllur til að stinga inn í ofn. Hugsaði með mér að prófa eina svona máltíð og athuga hvort krakkarnir gætu borðað þetta. Gott í skólann - tilbúinn matur í grillið. Við BH og KEB vorum sest til borðs þegar daman birtist inn úr dyrunum og spurði forviða hvað væri í matinn. Pabbi hennar sagði henni að þetta væru vorrúllur. Ha vorrúllur - heyrðum við hana endurtaka - já já. Smakkaðu bara þetta er ágætt. Eftir að hafa tekið lítinn bita var ojað - langaði ekki í meira. Mamman reyndi með góðu að fá hana til að borða aðeins meira því þetta vendist ágætlega. Hún hélt áfram og borðaði smá og eftir að hafa borðað svolítið spyr krakkinn mjög svona hissa - heitir þetta í alvöru HORKÚLUR. Við sprungum úr hlátri - eh nei VORRÚLLUR. KEB hló einna mest því hann hafði heyrt hana endurtaka fyrst HORKÚLUR og mamman og pabbinn svöruðu já já endilega komdu og smakkaðu. Kannski ekki skrýtið að krakkinn hafði litla lyst á matnum. Mamman

Vetrarfrí

Krakkarnir eru í vetrarfrí í skólanum þessa viku. Ég var alveg búin að plana þetta. Ég ætlaði að fara í leikfimi annan hvern morgun, svo á Þjóðskjalasafnið og krakkarnir yrðu heima og myndu sjá um voffann sinn sem svo sárt var grátbeðið um. Okkur BH var sagt strax af mörgum er við vorum að spá í þessi hundakaup að "börn fá sér ekki hund". Auðvitað ekki og við alveg meðvituð um það og sjáum ekki eftir NEINU. Hún er svo ljósi punkturinn í þessari fjölskyldu - ásamt fullt af fleiri ljósum punktum. En ég bara er svo meðvituð um það þegar hún liggur ein heima inni í búrinu sínu að ég reyni alltaf að hafa þann tíma í lágmarki. Tek hana með mér ef ég sé fram á að það sé betra en skil hana eftir ef ég veit að þau verða á undan mér heim. Öll mín plön eiga það til að fara út um þúfur - hef ég sagt það áður? Vaknaði í morgun og fór ekki í líkamsrækt. Fór með KEB að bera út því hann tók Leirutangann fyrir Pétur í nokkra daga. Vaknaði með hálsbólgu þrátt fyrir að hafa sofið með sjal um há...

Sunnudagsmorgun

Í gærmorgun vakti Ronja mig með ýlfri um að komast út - var hundlöt og langaði að sofa aðeins lengur. Var svo heppin að KEB er morgunhani og sinnti krílinu. En ekki fékk ég að sofa mikið lengur samt. Síminn hringdi... kl. 9 á sunnudagsmorgni, alveg róleg gott fólk, smá næði svona um helgar væri gott. BH vaknaði og tók símann - sem var ágætt því annars hefði ég þurft að brölta yfir hann til að grípa símtækið, það kemur stundum fyrir. Hellooo - enskumælandi í símanum. Gerði ráð fyrir að þar væri Walther að hringja frá Belgíu, þau hafa áhyggjur af okkur og tékka reglulega því það dynja hryllingsfréttir af Íslandi um alla Evrópu. Þegar leið á samtalið gerði ég mér ljóst að þetta var alls ekki Walther - hmm ég var ekki að ná því hver gæti hafa verið að hringja. BH fullvissaði viðkomandi um að við hefðum það ágætt þó við ættum eftir að sjá hversu mikið þetta á eftir að hafa áhrif hjá okkur. Værum með augun opin eftir verkefnum og hvernig við ætlum að halda okkur gangandi. Spurði svo viðkoman...

Krútt

BH er uppi á lofti - já já það er loft hérna, er að ganga frá rafmagni inn á bað í innstunguna. Kominn tími til því það eru "bara" tvö ár síðan við tókum baðherbergið í gegn. Ronja veit ekki alveg hvernig hún á að vera - glápir þarna upp um gatið og sér hann hverfa yfir eldhúsið - fer inn í eldhús og horfir upp... en sér bara loftið, enginn gaur. Hún er ekki að ná þessu, hljóta að vera galdrar. Svo liggur hún fyrir framan tröppurnar í þvottahúsinu og ýlfrar ámátlega öðru hverju. Svo þegar BH kom niður aðeins áðan þá var honum fagnað eins og þjóðhetju. Hún er bara ekki ánægð með að hann skuli vera þarna uppi! Later

Mr. & Mrs.

Við BH fórum í gær til HMS og DH og spiluðum Mr. & Mrs. við þau og BH og ESG. Ég er hissa að ég sé ekki með harðsperrur í maganum eftir átökin. Það er langt síðan ég hef hlegið svona rosalega mikið á einu kvöldi. Þvílíkt hugmyndarflug, þvílíkar spurningar og aðeins of mikið af persónulegum upplýsingum. Það var oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sem ég baðst vægðar og vildi fara heim. Ef einhver er leiður eða þunglyndur eða vantar bara að hlæja með skemmtilegu fólki þá mæli ég með þessu. BH þolir ekki að spila - er tapsárari en allir sem ég þekki. Sonur hans reyndar erfði það og verður brjál ef hann ekki vinnur. Eftir fyrstu umferð þá skít töpuðum við BH og mér var tilkynnt að það ætti að spila til að vinna - ég yrði að hugsa svörin mín þannig. OK - I´ll try. Mér fór að ganga betur og við unnum þetta á endanum - þrátt fyrir að hafa verið svikin um nokkra tugi bónusstiga sem hinir skráðu samviskusamlega hjá sér þegar við átti. BH var ekki ánægður með mig þegar ég svaraði kannski...

AAAHHH

Hér var búið að undirbúa fólkið í fjölskyldunni andlega í vikunni að það yrði tiltekt og þrif á laugardeginum og ALLIR þyrftu að hjálpa til. Því mamman á heimilinu ætlaði ekki að eyða öllum deginum í þetta ein. Það var enginn neitt spriklandi ánægður með þetta fyrirkomulag. Ég vaknaði seint í morgun sökum þess að við BH gláptum á sjónvarpið til kl. þrjú í nótt. Langaði mikið að slaufa þessum þrifum bara, nennti þessu ekki. En vegna þess að heilbrigðiseftirlitið myndi renna á lyktina ef við drifum ekki í þessu ákvað ég að bíta á jaxlinn og byrjaði að skipa fyrir. Það gekk betur en ég þorði að vona. Krakkarnir tóku sín herbergi og svo þegar þau voru búin þá sendi ég þau öfug inn aftur til að gera þetta almennilega. Það jók ekki vinsældir mínar hjá þeim. Bað BH um að ryksuga teppin því KEB ætlaði að ryksuga en veigrar sér við að taka þau almennilega. Það endaði þannig að BH ryksugaði allt saman. Er hann var hálfnaður tilkynnti hann mér að húsið væri bara til að henda því - þvílíkt mikið a...

Mjá

Hef aldrei nennt Bond, James Bond. Hér áður nennti ég ekki að sjá myndirnar í bíó og var ekkert spæld þó ég sæi ekki þessar myndir á vídeó eða í sjónvarpinu. Satt að segja þoli ég ekki hugmyndina um flotta, klára, fyndna gæjann sem er umkringdur kvenkyns fávitum sem óvart eru ofurkroppar sem hann svo riðlast á, segir svo eitthvað hnittið á þeirra kostnað. Ekki eitthvað sem ég gat séð sem bara skemmtun - en það er nú bara ég. Hef aldrei haft skoðun á hver er besti Bond-inn, finnst þeir frekar eitthvað hallærislegir. Sean Connery er gamall - hver er að missa sig yfir gaur sem var súkkulaði á sjöunda áratugnum, erum að tala um sextíu og eitthvað. Hef heldur aldrei verið mikið fyrir súkkulaði-gaura, eru eitthvað svo mjúkir, eiginlega svona hvolpar. Roger Moore, eigum við að ræða hann eitthvað. Hann er kannski helsta ástæða þess að Bond fór í mínar fínustu taugar, besservisser from hell! Og ekki svo myndarlegur heldur og þær steinliggja allar fyrir honum, ekki mjög trúverðugt. Nema þá helst...

Að læra eða ekki læra!

Er að drífa mig á Þjóðskjalasafnið að "stalk" nokkarar konur síðan á 19. öld. Reyna að klára þessa ritgerð einhvern tímann. BH að ýta við mér í gær, hvort ég ætti ekki að vera að læra. Pikka inn á tölvuna það sem ég er búin að skrifa í stílabókina. Það myndi flýta fyrir er það ekki? Döh - jú jú langaði bara að fá að vera þreytt í friði og glápa á sjónvarpið! Fór frekar í að ryðja myndum inn á Flickr, en var svo stoppuð af þannig að ég set inn myndir aftur þegar ég get - hrúga af myndum á leiðinni. Ég er svona að velta fyrir mér til hvers ég er að rembast þetta við að klára námið, þarf ég endilega að klára þessa ritgerð? Málið er að á milli þess sem ég fæ freistandi bréf í tölvupósti um að stækka á mér typpið, rosa tilboð á viagra svo ég geti látið mína heittelskuðu æpa og emja endalaust, tilboð frá einmana stúlkugreyjum sem þrá ekkert heitar en samskipti við mig, þá fæ ég mjög reglulega bréf um að ég þurfi ekkert að leggja á mig námið og erfiðið. Ég get keypt mér bara BA gráð...

Hvolpanámskeið

Við hjónin fórum á hvolpanámskeið í gær - vorum tæp á tíma, einu sinni sem oftar. Mæting kl. 19, var í Badminton til 18. Þá þarf að bruna heim og sjá um að gefa liðinu að éta og koma reglu á hlutina og rjúka svo upp í Mosfellsdal. Í stuttu máli þá gekk það ekki upp. Plataði Hörpu til að gefa KBB að borða með þeim, KEB var kominn í fimleika og ætlaði að koma sér sjálfur heim í strætó. Á leiðinni komum við hjónin við í hraðbanka til að geta borgað í fyrsta tíma eins og ætlast er til. Ég hafði kortið tilbúið og nánast rauk út úr bílnum á ferð - damn it - hljóp tilbaka og náði í rétt kort, nota aldrei þetta debetkort. Meira damn it - átti engan pening, allt inn á BH reikningi og hann ekki með kortið. Mættum því peningalaus í þeirri von um að vera ekki rekin heim aftur. Lofaði að borga í næsta tíma eða fá að millifæra, sem ég gerði í morgun. Þetta gekk nú vel hjá okkur. Við ákváðum að BH yrði aðal hvolpaþjálfarinn, ég ætla nú samt að fara líka og fylgjast með. þetta gekk ljómandi vel, hún e...

Þarfnast ekki útskýringa!

BH er búinn að segja hérna í gegnum árin alveg reglulega - Þetta eru ekki raunverulegir fjármunir - sápukúlur sem munu springa! Verðbréfadrengurinn Það þurfti enga spekinga til að ímynda sér að illa gæti farið - m.a.s. fimmtán ára gagnfræðanemi var með á nótunum. Sorry, svekkt og sár...

Marita

Fór á forvarnarfund í Lágafellsskóla í gær. Magnús frá Marita samtökunum var kominn aftur til að fræða foreldra og börn um skaðsemi fíkniefna. Hann fjallaði nú um ýmislegt fleira sem þarf að hafa í huga, t.d. tölvunotkun barna, auglýsingar sem beint er að börnum og fleira. Eins og í fyrra var þetta fróðlegt og þarft að láta lesa yfir sér hversu alvarlegt það er þegar einhver byrjar að fikta við þessi efni. Gaurinn er óvirkur fíkill, búinn að vera óvirkur í rúmlega 11 ár en segist enn í dag taka einn dag í einu. Það liggur við að mann langaði að gráta þegar horft var á heimildamyndina sem hann sýndi okkur. Það er svo sorglegt að horfa á foreldra og börn lýsa baráttu sinni við fíkniefni og fylgifiska þeirra eins og vændi, geðtruflanir, afbrot og fleira svona skemmtilegt. Það var þokkalega vel mætt á fyrirlesturinn - betur en í fyrra alla vega. Maður er svo grænn að maður heldur að þetta komi nú ekki fyrir manns eigið barn, en það er eins gott að vera vakandi og tala við krílin sín áður e...

Ronjaskagonja

Vissi að það myndi gerast einn daginn - áður en við fengum hana vissi ég að það myndi gerast einn daginn. Eftir að hún kom grunaði mig að það myndi gerast þegar hún væri ekki með hálsólina á sér - þá ómerkt, ekkert nafn eða símanúmer. Hundurinn er oft án hálsólarinnar hérna inni hjá okkur - svona til að feldurinn sé fallegur, pjatt í okkur. Á laugardaginn varð ótti minn að veruleika - hún slapp út! Ég settist við tölvuna 13:40 - sá þá Remind-er í Outlook-inu mínu. KBB átti að mæta til Írisar í fiðlu 13:30. Endemis, búin að gleyma því og nú var krakkinn orðinn 10 mínútum of seinn og var úti með Mímí að ganga með hund - ekki okkar hund. Hringdi í Írisi og rauk út í hurð, kíkti út - gargaði á stelpuna en fékk ekkert svar. Á móti var Gummi að koma út úr bílskúrnum - vink og hæ. Hvort KBB væri hjá þeim - niii. G: Átti Ronja að fara út? L: Ha? G: Átti Ronja að fara út? L: Nei - ha fór hún út? Leit út aftur, enginn hundur - jú jú hún kom fyrir hornið tilbaka - AAAAAA - Kallaði á hana - reyndi...

Vikulok

Fór í vikunni í foreldraviðtöl í skólanum hjá krökkunum og að venju eru þetta stillt og prúð börn. Kennarinn hennar KBB er ánægð með hana og ítrekaði að hún væri flott stelpa og gaman að hafa hana í bekknum. Grunar nú að flestir fái að heyra þetta - er uppbyggjandi og gott að vita að krakkinn sé vel liðinn í skólanum. KBB fékk að koma sínum hugmyndum og athugasemdum að og ekki stóð á þeirri litlu (sem er þó ekki mjög lítil). Kennarinn var yfirleitt sammála henni og tók undir kvartanir og ætlaði að bæta úr því sem hún gæti og var þegar búin að kvarta yfir öðru. Þær voru því á pari vinkonurnar - alveg á sömu bylgjulengd. KEB fékk góða umsögn hjá öllum kennurum en eitthvað er gelgjan að segja til sín því hann hefur bæði verið að koma seint í tíma (sem ég vissi reyndar) og gleyma heimavinnu (sem ég vissi líka). Svo var heimilisfræðikennarinn eitthvað að ekki hress með fíflagang og kjánalæti í fyrstu tveimur tímunum. KEB svaraði fyrir sig fullum hálsi - átti svar við öllu, eins og oft áður....

Fyndið?

BH: eru þeir að grínast LBK: hvað ertu gamall? BH: 36 ára LBK: þá ættir þú að vita að ríkissjónvarpið grínast ekki með val á sjónvarpsefni fyrir landsmenn. Það var okkur báðum ljóst er við horfðum á danska heimildamynd um danskan mann fá asíska brúði sína samþykkta sem danskan ríkisborgara þarna um árið á Barðaströndinni! Ok - íslensk sjónvarpsmynd í sýningu núna, veit ekki hvað hún heitir. Er um tvo samkynhneigða glímumenn sem halda sambandi sínu leyndu. Enn hef ég ekki séð neinn brosa, allir mjög alvarlegir með skeifu bókstaflega. Allt mjög íslenskt við þessa kvikmyndagerð. Allir að drepast úr þunglyndi og leiðindum - ein kona dáin og allt í volli! Nema hjá mér - alltaf þegar ég lít upp og á sjónvarpið er nærmynd af andliti og fýlan lekur af því - mér finnst þetta mjög fyndið. Svo er verið að glíma og það er eins og þeir séu að dansa karlarnir saman. Þetta er svo ömurlegt allt saman að það er ekki hægt annað en að hlæja - vona að fleiri sjá spaugilegu hliðina á þessari mynd því annar...

Snilld

Finnst lagið Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn frábært. Það á svo vel við núna. Var að reyna að setja linkinn af youtube hérna inn en það gekk illa. Mæli með að þið hlustið á lagið - youtube.com og leita að pabbi minn! Rich bitch

Skjótt skipast veður...

Ég hef aldrei upplifað það áður að skammast mín fyrir að vera Íslendingur. Í fyrsta sinn á ævinni mundi ég ekki segja stolt frá því í útlöndum hvaðan ég sé! Þetta er vond tilfinning. Sérstaklega því ég tel mig ekki hafa gert nokkuð til að þurfa að skammast mín! Ég öfunda ekki Íslendinga sem búa erlendis, eru í námi erlendis eða á ferðalagi. Var að lesa frétt áðan um konur sem voru reknar úr búð í Danmörku fyrir það eitt að vera íslenskar. Segir reyndar meira um kaupmanninn en blessaðar konurnar. Gamlir karlar í Hull á Bretlandi líka ægilega kátir yfir óförum íslendinga - vona að þeir geispi golunni þá sáttir við réttlætið sem þeir telja sig hafa fengið núna. Magnað hvað fréttaflutningur er yfirgengilegur og hefur mikil áhrif. Ég er nú ekkert að komast að því núna neitt, þetta hefur verið svona lengi. Fréttamenn draga bara fram það sem þeim hentar - sannleikur kemur því ekkert við. Um daginn í öllum þessum látum með Gordon Brown og félaga þá datt mér í hug kvikmyndin Wag the dog . Sú my...

Takið af ykkur skóna

LBK - Damn - ég gleymdi íþróttaskónum mínum síðast er við vorum í íþróttahúsinu! BH - Hvernig getur þú gleymt þeim? LBK - Fór úr þeim við skóhillurnar og fór í útiskóna mína og skildi hina eftir! LBK - Æ þeir hljóta að vera þarna bara í hillunum! BH - Já örugglega, það passar enginn í þá! Þetta þótti honum ægilega fyndið :o) Later

Today

Er að reyna að vera dugleg - það er bara of mikið að gera á þessu litla heimili að staðaldri. Skil ekki hvernig fólk fer að því að báðir foreldrar vinni fulla vinnu og eftirvinnu og aukavinna og svo aðra vinnu á kvöldin. Held þetta sé eitthvað að róast samt. Er að reyna að skipuleggja mig og fara eftir dagsplaninu. Það gengur svona misjafnlega - ég er engin Helena ;o) Ætlaði í morgun í líkamsrækt í tíma - prófa það aftur og gá hvort kroppurinn þoli það. EEEnnn KEB átti tíma hjá tannréttingalækni og því datt það upp fyrir. Planið að fara þá seinnipartinn í staðinn. Er við komum heim fór ég í smá göngu með Ronju svo hún gæti aðeins hreyft sig. Fór svo í vinnuna rétt aðeins að klára smávegis tók svo voffa greyið og fór í Þjóðskjalasafnið að reyna að byrja. Hún var úti í bíl allan tímann - frá kl. rúmlega 11 til kl. 14:30. Það heyrðist ekki píp í henni - bara chilla. En minns var með mega samviskubit, sérstaklega þegar krakkarnir voru komnir heim og hún enn úti í bíl. Hefði frekar viljað a...

Handrukkarar?

Það var um daginn Kompás þáttur sem vakti athygli um handrukkara. Verð að viðurkenna að ég hafði ekki nokkra samúð með aumingjanum sem var laminn. Ekki til í mínum beinum samúð með svona skíthælum. Verst bara að hann var ekki laminn meira, slæmt að hann gat gengið út sjálfur af slysó. Dálítið hart, ég veit. Þekki þennan dúdda ekki baun, hef aldrei haft nokkuð af þessum mönnum að segja - ekki nokkurn skapaðan hlut. Hins vegar leiðist mér fólk, og það er góður slatti af því þarna úti, sem aldrei borgar skuldir sínar. Fær pening eða hluti eða afnot af eignum sem þá á að borga tilbaka en gerir aldrei. Ég þoli ekki þegar fólk skuldar peninga og ber sig aumlega og segist ekki eiga aur, það sé nú allt svo erfitt í lífinu. Nú þá kannski hefði það ekki átt að notfæra sér þjónustuna sem það ætlaði (ekki) að borga fyrir. Fullorðinn maður í fyrirtækjarekstri (skíthæll) tilkynnti manni sem hann var í viðskiptum við "að peningar vaxa ekki á trjánum vinur minn" HA hvað segirðu - ég sem fer ...

Til hamingju...

með afmælið Helena - 25 ára skvísa :o) Svandísi fannst þú heldur ung. Spurning um að þú drífir þig meira og reynir að ná okkur :o) Hlakka til að koma á eftir - elska þessa hugmynd - afmælisboð og ég Á að mæta í náttfötum. Hrikalega þægilegt - nú verður ekkert mál að borða yfir sig ;o) Until then...

Farin að sofa

Er frekar rauðeygð með bauga núna. Sofnaði við sjónvarpið um kl. 22:30 - leyfði mér það því ég þurfti að sækja mömmu og pabba í Leifsstöð í nótt. Þau áttu að lenda kl. 01:15 en fluginu seinkaði til 2:15 og svo aftur seinkun til 2:46 og þau lentu 2:51. Nennti ekki að fara að sofa þegar komst heim kl. rúmlega fjögur - ákvað að vaka og bera út með KEB, koma þeim í skólann og leggja mig svo. Gnótt

Good luck

Rændi þessum af spjalli sem ég var að skoða :o) An American said: *"We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash."* *And an Icelander replied: *"We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no cash! Later

KREPPA

Það er lítið sem hægt er að segja gáfulegt um þessa kreppu sem flæðir yfir okkur með þvílíkum látum að við stöndum varla í lappirnar. Verð að viðurkenna nettan kvíðahnút í maganum yfir þessu öllu saman. Segi bara eins og Svava vinkona í gær, venjulega tala stjórnmálamenn niður öll vandræði en í dag ítreka þeir alvarleika fjármálakreppunar og reyna eins og þeir geta að vara fólk við hinu versta. Hvað á maður þá að halda? Ástandið hlýtur þá að vera enn stærra en maður getur ímyndað sér. Maður sem sagt vonar það besta en býst við hinu versta. Það væri óskandi að þessum snillingum hér og annars staðar í heiminum takist að snúa þessu ástandi við. Ég skil vel gremju fólks sem hefur fjárfest með sparifé sínu í "öruggu hlutafé" í bönkunum. Og mikið skil ég konuna sem ég heyrði segja frá samskiptum sínum við Landsbankann fyrir helgi. Hún fór og ætlaði að færa fé yfir á venjulegan bankareikning en var ráðlagt frá því, allt væri í svo góðum málum. Eftir helgina höfðu peningar hennar guf...

ekki gera ekki neitt

Gekk með syni mínum í morgun og bar út moggann, við vorum á góðum tíma og komum snemma heim. Í rólegheitum kom ég börnunum í skólann eftir að þau höfðu borðað kreppu morgunmat - hafragraut. Kl. átta hlustaði ég á fréttir og heyrði að bensínið myndi sennilega hækka í dag og það jafnvel verulega. Eins og oft áður stóð bíllinn minn nánast bensínlaus hérna fyrir utan svo ég hugsaði að best væri bara að drífa sig núna út og ná í bensín á greyið. Þetta er í fyrsta sinn sem ég læt svona fréttir stjórna mínum bensínkaupum. Þetta lá bara svo beint við - bensínlaus, krakkarnir farnir í skólann, ekki að gera neitt sérstakt - alla vega ekkert sem ekki mátti bíða. Svo ég fór út og tók bensín á 176 kr. lítrann hjá N1 og nokkuð sátt ók ég heim á leið. Svo eftir að hafa tekið til hérna eftir veisluna í gær og endurraðað húsgögnum og rennt yfir gólfin með moppu þá settist ég við tölvuna að lesa fréttir. Mér féllust hendur, það er ekki nokkur leið að sjá neitt fyrir hérna. Bensínið lækkaði í dag í 167 k...

Púst

Virðisaukinn greiddur, báðar afmælisveislurnar búnar. Já það þýðir ekkert minna en tvær eða fleiri veislur fyrir nútímabarnið. Ein fyrir félagana og hin fyrir fjölskylduna. Nú tekur bara við ritgerðin - púff þarf að læra að skipuleggja mig - og koma KBB í gegnum samræmdu prófin í næstu viku, lesa yfir ritgerð fyrir KEB, koma mér vel af stað í líkamsrækt og eitthvað fleira sem ég man ekki - jú reyna að vinna meira jafnt og þétt til að vera ekki í svona stressi hver mánaðarmót. bleh KEB var lukkulegur eftir afmælið á laugardaginn með vinum sínum. Buðum þeim að koma í vinnuna til okkar. Þar var spilað pool, leikin two player í körfubolta, og horft á bíómynd. Vorum þarna í fjóra klukkutíma að skemmta okkur. Þeir fengu sér pizzu sem rann ljúft niður, við poppuðum með myndinni - kvikindið ég, krakkinn með teina og má ekki fá popp. En hafði keypt súkkulaði líka svo mér var fyrirgefið. Bakaði tvö stykki gulrótakökur sem KEB pantaði. Félagarnir með það á hreinu að það þyrfti að bíða eftir Agnar...

Opnaði kl. 8 í morgun

Ég var spurð í gær hjá tengdó - Lóa ætlar þú að fara á Korputorgið þegar það opnar á morgun? HALLÓ - svarið var einfalt NEI ég á eftir að halda mig fjarri næstu vikur. Geðheilsa mín er mér of dýrmæt til að taka þátt í svona rugli. Hún stendur tæpt eins og er og ég geri ekkert til að raska andlegu jafnvægi mínu. Fyrir utan að ég sé bara ekki að ég eigi pening afgangs til að ráfa um og finna mér "bara eitthvað" til að kaupa. Það er alveg nóg að kaupa það sem í raun vantar á þetta heimili áður en ég fer að troðast í einhverja kássu af fólki til að versla drasl á góðu tilboði. Niii ég er bara hérna heima að færa leiðinlegt bókhald kl. 8 á laugardagsmorgni - finnst það samt skárra en raðir við innganga og kassa í gerilsneyddum búðum. Later

Lítill ferðalangur

KBB var að hringja, langaði að vita hvar Áslaug og fjölskylda býr. Ég spurði hana hvort hún væri orðin kvefuð - jú það stóð heima. KBB: ég vaknaði sko þrisvar í nótt LBK: nú það var ekki nógu gott KBB: einu sinn af því að ég var að knúsa Gunnhildi... he he - bara krútt!

Gull

KEB: Ha hver ætlar að kaupa hundinn okkar og gera pels úr honum? Þessi skemmtilega athugasemd kom í kjölfar þess að ég rak augun í auglýsingu frá Eggerti feldskera. Ég spurði BH "hvaða nítján ára strákur heldur þú að myndi láta sjá sig í svona pels?" BH spurði á móti "hvað er málið? - með þennan hund". Hundurinn í auglýsingunni var eitthvað ekki að höfða til húsbóndans á þessu heimili. Enda bara einn hvolpalingur sem er uppáhalds. Drengurinn greip þetta svona skemmtilega öfugt. Í dag vildi KEB að ég hjálpaði honum með ritgerðina sem hann er að töfra fram um Jón Sigurðsson. Hann var ekki að finna neitt um Stöðulögin og ekki um fjárkláðann. Og drengurinn var ekki að ná þessu með peningana - klæjar peninga? Þarf að taka það fram að ég tapaði mér úr hlátri. Hann varð nú dálítið kindarlegur er hann fékk að vita allt um fjárkláðann. Hann var nú heppinn - mamman á nefnilega ritgerð um stöðulögin og svo leshefti úr skólanum þar sem fjallað er bæði um fjárkláðann og stöðulög...

Komið á hreint

Þá er það opinberlega staðfest að dóttir mín er með svo svæsna vaxtarverki að hún þarf að hætta í fimleikum. Í gær var tíminn alveg ómögulegur og hún gat lítið verið með. Var að fá símtal frá bæklunarlækninum sem lét taka af henni röntgenmyndir á þriðjudaginn var. Og hann staðfesti allt sem heilsugæslulæknirinn hafði áður sagt. Þannig að það er truflun á vaxtarlínunni við hnéð og sinin þarna kemur sér eitthvað skrýtið fyrir á milli og veldur þannig verkjum. Þetta varir til svona 16 - 17 ára aldurs - frekar hart. Hún má í raun gera allt sem hún treystir sér til, misjafnt hversu slæm þau eru af verkjum. En þar sem hún kvartar sáran ætlar hún að hætta í fimleikum til að eyðileggja ekki á sér hnén fyrir fullorðinsárin. Frekar fúlt því henni þykir óskaplega gaman að skoppa á þessum trampólínum hjá Ármanni. En hún einbeitir sér þá bara að sundinu núna og tekur betur á þar. Það var þá ágætt að hún byrjaði þar í haust því nú eru biðlistar eftir að komast að. Later

Spennandi

KEB á afmæli á mánudaginn - Venjulega er ég alveg tilbúin fyrir það. Í þetta sinn er allt frekar laust í reipunum. Hvað vill 13 ára strákur í afmælisgjöf? Sennilega verður strákapartý hérna á morgun, lítið mál að hrista það framúr erminni. Svo á mánudaginn verður fjölskyldunni boðið í mat. KBB er að fara á strengjamót í Keflavík alla helgina og því er helgin ekki notuð í afmæli fyrir fjölskylduna. Þarf eitthvað að fara að undirbúa þetta allt saman. Frekar róleg eitthvað búin að vera og það er að koma í bakið á mér núna eins og svo oft áður. Eins og þetta sé ekki nóg þá er virðisauki á mánudaginn og ég á eftir að græja bókhaldið aðeins of mikið til að reikna það allt út. Þannig að leti mín verður til þess að nú þarf að bretta upp ermarnar og vinna fram á kvöld. Smá tímaþröng - spennandi að sjá hvort ég vinni úr þessu öllu saman eða enda á Kleppi eftir helgina. Lazy Daisy

HA

SNJÓR - alveg róleg. Ég er ekki til í að veturinn sé kominn svona snemma, nema hann láti sig þá hverfa snemma líka. Hef reyndar ekki trú á að þessi snjór tolli lengi. Síðan KEB fæddist hefur ekki snjóað fyrir 6. október á höfuðborgarsvæðinu - ekki svo ég muni. KBB var alveg spriklandi lukkuleg með þessa snjókomu. Ég sá mig tilneydda til að minna hana á að síðasta vor var hún orðin ansi þreytt á snjó og kulda. Farin að kvarta og kveina og beið óþolinmóð eftir sumrinu. Svona er þetta maður vill alltaf það sem maður hefur ekki - snjó á sumrin og hita á veturna. Later

Laus Voffi

Fór í vinnuna í morgun með hundinn. BH var hérna en DH var fjarri góðu gamni með veikan pjakk heima. Hundurinn fékk því að skoða sig aðeins um, er annars bundinn hérna inni hjá okkur. Var eitthvað fúl yfir að vera bundin svo við leyfðum henni að skottast um. Vissum alveg að þegar hún væri búin að þefa nóg hérna út um allt þá myndi hún leggjast niður og hvíla sig á góðum stað, sem hún gerði. Eftir hádegið kom DH - Ronja ekki sátt við að vera bundin þá svo ég leyfði mér að losa hana og vonaði að hún myndi bara leggjast og láta lítið fyrir sér fara eins og áður. NII ekki að gera sig - hún stökk hérna eitthvað af stað og skrensaði svona smart á parketinu þannig að við BH skelltum uppúr, því við vorum að fylgjast með. DH hins vegar var í alvöru að vinna og spyr svona í rólegheitum "voru þetta nokkuð skórnir mínir?" Hélt kannski að krílið væri að smjatta á þeim. Við BH vorum fljót að svara honum neitandi - bæði í kór. Ég sagði honum svo í framhaldi - "ef þetta hefðu verið skór...

Brrr

Hvað er með þennan kulda? Er komið haust? Rigningin og rokið eiga ekki vel við mig og því líkar mér betur sólin og kuldinn. En eitthvað þarf ég að læra aftur að klæða mig. Fór í Fjárborgina til SBK í gær, taldi mig þokkalega klædda í lopapeysu og úlpu, m.a.s. með vettlinga. En eftir að hafa staðið dágóða stund og horft á Ronju hlaupa á eftir Týra í þeirri veiku von að hann samþykki hana sem leikfélaga, þá var ég bara að frjósa. Er búin að reikna það út að eftir veturinn verð ég hraust og sterk, alger valkyrja - eða víkingur. Eða (finnst það jafnvel líklegra) krónískur lungnabólgusjúklingur með hor í nös. Málið er að ég þarf reglulega að hlaupa út með krílið að pissa (hún er farin að segja til ALLTAF yeehaw). Venjulega hleyp ég út á stuttermabolnum, það hefur verið hægt hingað til. Nú hins vegar verður maður að finna næstu nálægu úlpu áður en maður rýkur út. Annars fær krílið ekki tíma til að klára málið - því maður er stokkinn inn áður en maður veit af. Later