Ég var spurð í gær hjá tengdó - Lóa ætlar þú að fara á Korputorgið þegar það opnar á morgun?
HALLÓ - svarið var einfalt NEI ég á eftir að halda mig fjarri næstu vikur. Geðheilsa mín er mér of dýrmæt til að taka þátt í svona rugli. Hún stendur tæpt eins og er og ég geri ekkert til að raska andlegu jafnvægi mínu. Fyrir utan að ég sé bara ekki að ég eigi pening afgangs til að ráfa um og finna mér "bara eitthvað" til að kaupa. Það er alveg nóg að kaupa það sem í raun vantar á þetta heimili áður en ég fer að troðast í einhverja kássu af fólki til að versla drasl á góðu tilboði.
Niii ég er bara hérna heima að færa leiðinlegt bókhald kl. 8 á laugardagsmorgni - finnst það samt skárra en raðir við innganga og kassa í gerilsneyddum búðum.
Later

Ummæli