Það kólnaði svo snögglega í gær eitthvað að við áttuðum okkur ekki á því fyrr en við vorum orðin loppin á fingrunum hérna við matarborðið hjónin. Allir ofnar voru settir á fullt en það dugði eiginlega ekki til, tekur smá tíma að hita heilt hús. Ofnarnir voru á fullu hérna í alla nótt líka. Ég vaknaði kl. 5:30 í morgun við smá ýlfur. Svona mjálm í Ronju minni, vantaði augljóslega að komast úr búrinu sínu. Það var kalt í herberginu mínu því glugginn var opinn. En það var að sama skapi óskaplega hlýtt undir sænginni minni. Ég virðist vera sú eina sem vakna við svona smáhljóð í þessari fjölskyldu. Ég nennti svo innilega ekki framúr vitandi að sennilega þyrfti tíkin út að míga. BRRRR út? Já nei takk bara sama og þegið, veit hún ekki hvað er kalt þarna úti núna? En ég vissi líka að ef hún vælir á mig greyið þá er það aldrei að ástæðulausu. Hana vantar eitthvað. Svo ég skrölti fram og opnaði fyrir henni og hún rauk beint út úr búrinu sínu. Greinilegt að hún þurfti virkilega að komast fram. Sv...