Það er orðið eins gott og ég ætla að hafa það. Svo því verkefni er þá lokið og allt sem átti að fara er farið :o)
Nú er það bara svefnherbergið - ætti ekki að taka langan tíma. Það er ekkert lengi gert að rífa allt úr fataskápunum og henda því í svartan ruslapoka. Þetta verður vonandi ekki eins og þarna um árið þegar BH stóð, sokka, nærfata og bola laus eftir þrifæði eiginkonunnar LoL Reyni að passa það í þetta sinn.
Hlakka til þegar þessu er lokið þá get ég einbeitt mér að öðru. Þjóðskjalasafnið er lokað á mánudögum. Það er ágætt svo sem þá get ég notað mánudaga í vinnu og nýtt þá hérna heima í eitthvað tilfallandi. Svo sit ég hina dagana á safninu. Þetta hefst allt saman - bara að koma sér í rútínu og þá ætti þetta að renna ljúft. Svo verða krakkarnir virkjaðir betur hérna heima. Drengurinn er nú voða duglegur, gerir það sem hann er beðinn um. Litla drottningin á eftir að ganga í allt líka - hún er samt duglegri að velja sér verkefni. Hún biður á hverjum degi núna um að elda matinn. Glætan að ég hafi eitthvað á móti því. Hún er rosa dugleg og það munar alveg um að hafa hana til að hjálpa þegar mikið liggur við. Held að henni finnist matseld móðurinnar samt heldur í einfaldari stíl en hún hefði haldið að matseld ætti að vera. "alltaf bara að skera niður í salat" henni finnst hún ekki gera annað. Hitt er bara grjón í pott og kjöt eða fiskur í ofninn eða á pönnuna. Ekki flókið svo sem. En þegar það eru afmæli eða matarboð þá er sko gott að hafa hana með því hún getur ALLT!
Bað hana á fimmtudaginn var um að ryksuga fyrir mig áður en ég kæmi heim seinnipartinn. Hún þurfti þess ekki - bróðir hennar var búinn að því óumbeðinn!
Ég er svo loðin þessa dagana að það er ekki fyndið. Þið haldið kannski að ég ætli að segja frá því að ég þurfi að raka eða vaxa á mér lappirnar eða undir höndunum eða eitthvað! Já nei - engar svo persónulegar upplýsingar - er bara loðin að innan og utan. Ferfætlingar heimilisins eru báðir að fella feldinn núna og það er ekkert hægt að lýsa því neitt í orðum. Gólfin hér eru nánast teppalögð þrátt fyrir að það eigi að heita parkett hérna. Það þarf að ryksuga eða moppa 2x á dag en það sér samt eiginlega ekki högg á vatni. Við reynum okkar besta samt að halda í horfinu.
Þessi blásari sem við keyptum er algjör himnasending. Reynum að flýta fyrir ósköpunum með því að blása þau. Gerðum það í gær og það fauk af þeim heil rolla - planið var heldur skrautlegt eftir okkur. Því miður var algjört logn - við svona tókum það mesta og hentum því. Rest verður bara að pirra nágranna okkar og íbúa Mosfellsbæjar almennt. Þrátt fyrir að hafa blásið af þeim tonni og tvöhundruð þá sér ekki á þeim að nokkuð hafi farið og enn fellur af þeim eins og þau fái greitt fyrir. Ætla að blása þau aftur á eftir. Eina góða við þetta er að nú eru þau bæði að missa feldin í einu - ekki fyrst annað og svo hitt. Þetta getur tekið alveg mánuðinn því þau eru ansi loðin. Undirfeldurinn er rosalega þéttur og fínn og kemur endalaust upp.
Ronja mín er enn meidd á fætinum. Stígur í hann núna en haltrar aðeins. Hún fékk því ekki að fara með Úlfi og BH. Þeir fóru ásamt Viktori og Sisku að hitta Jökul, Kristínu, Zizou og Keano. Þau ætla öll að skoppa saman í Heiðmörkinni á Hjallaflötum. Smá öfund hjá mér, er heima með Ronju litlu sem skilur ekki svona. Skilur ekki af hverju hún var ekki tekin með út.
KBB fór í hádeginu í Víðidalinn til SBK. Hún var tilbúin með allt sitt. kominn í íþróttabuxur (stuttar) og rauða fótboltasokka. ManUtd bolurinn var á kroppnum og síða hárið fær að njóta sín undir hjálminum. Var með afklippta sokka á hestinn og fingramálningu til að skella númeri á hrossið. Það er fótboltaþema í hennar atriði á Æskan og hesturinn sýningunni. Vona að allt hafi fylgt í pokanum og að þær vanti ekkert. Geri ráð fyrir að hún sé búin á fyrstu sýningunni sem byrjaði kl. 13. Hún er í öðru atriðinu eftir hlé. Ég ætla að kíkja á hana kl. 16. Ma og Pa ætluðu að reyna að koma þá líka svo ég ákvað að sitja með þeim.
Later

Ummæli