KEB fór til hjúkkunar í skólanum 2. mars - svona hjúkrunarskoðun fyrir 9. bekk. Sjónin er eðlileg. Sem mér finnst reyndar skrýtið því hann sér ekki töskur og úlpur og föt sem skilin eru hér eftir út um allt. Pínu ósanngjörn því hann er öllu skárri en litla systir hans sem leggur undir sig húsið á hverjum degi. Hann er orðinn rúm 60 kg sem hæfir ágætlega hans hæð. Og svo er hann orðinn 176,5 cm á hæð. Sem mér finnst auðvitað mjög merkilegt. Því ég næ ekki 170 cm og samt er ég stærri en hann ;o)
Það vekur mikla lukku á þessu heimili að sleðinn, sem BH og Viktor hafa verið að smíða úti í bílskúr, er að taka á sig mynd. Þeir settu hann saman í gær þannig að maður sá hvernig hann verður. Svo á eftir að leggja lokahönd á eitthvað smávegis og svo bara binda hann saman. Þessi sleði er mjög stór - þ.e. mjög langur. Ég var eitthvað að gera grín að því og BH fékk smá svona sjokk og spurði er hann of stór?? Nei nei maður bara skellir honum á toppinn á bílnum, þetta er ekkert mál. Bara mátt ekki keyra undur göngubrú :o) Smá ýkjur!
Hlakka ekkert lítið til þegar þetta verður alveg tilbúið. Nú bíð ég spennt eftir páskahretinu sem klikkar aldrei - eins gott að það klikki ekki núna!
Later

Ummæli