Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2010

Eeeendalaust

Vorum að baða hundana - smá undirbúningur út í skúr. Plast sett yfir hurðarennurnar í loftinu, plast sem nær niður í gólf. Svo er meira plast sett til að loka alveg á móti bílskúrshurðinni. Þannig er komið smá "herbergi". Þetta gerum við til að hárin af hundunum fari ekki út um ALLAN skúr. svo settum við plötu upp á búkka - skrúfuðum hana fasta til að þau velti ekki. Svona á allt að vera ready hjá svona amatörum eins og okkur. Ronja var tekin fyrst og skellt upp á borð. Hún er svo dugleg þessi elska. Lætur þetta yfir sig ganga og segir ekki múkk. Bíður spök eftir að við klárum þessi ósköp. Henni finnst þetta ekki alveg skemmtilegt og er þeirri stund fegnust þegar við hleypum henni niður eftir blásturinn. Blésum hana og krossuðum fingur að einhver hár yrðu eftir á kroppnum. Og viti menn hún er bara svona ljómandi fín og flott litla drottningin mín. Það er svo endalaust verkefni að blása þessa hunda þurra. Þið ættuð bara að sjá hversu ofurræfilsleg þau verða þegar þau eru svona...

Snjór...

Er gjörsamlega að fríka út yfir þessum snjó - eins og karíus og Baktus í nammilandi. Er bara svekkt ef hann fer strax aftur - einhver sagði að á sunnudaginn yrði komin hláka. Er ekki alvega að meika það hins vegar. Best að nota tækifærið á morgun og veltast aðeins í snjónum með hundum og börnum svo maður missi ekki af þessu. Svo er ég með svipuna á BH að klára þennan sleða... Það verður hrikalega gaman þegar hann er tilbúinn. Verst að það væri best að vera með svona 4-6 hunda til að draga, spurning hvort við þekkjum ekki nóg af fólki núna til að lána okkur bara það sem uppá vantar ;o) Later

BROS

Mátulegt á mig að þurfa að rjúka út í morgunsárið og alla leið til Höfuðborgarinnar. Loksins þegar snjórinn lætur sjá sig og enn er skafrenningur og lélegt skyggni - skilyrðin sem ég hef beðið eftir í vetur - þá þarf ég að drífa mig út. En ég kvarta ekki, umferðin gekk hægt en hún gekk vel. Allir bara í rólegheitum að mjakast á áfangastað. Minn áfangastaður var Mjóddin. Þar hefur aðsetur tannréttingalæknir einn sem séð hefur um að róla sér í veskinu mínu undanfarin svona fjögur ár. Sonurinn var að mæta í þriðja tímann í þessum mánuði og nú var spenna í loftinu :o) Komið að því að LOSNA VIÐ teinana í efri gómi. Það tók okkur rétt tæpan hálftíma að keyra þessa vegalengd sem annars tekur okkur um 10 mínútur á venjulegum degi - ekki kl. átta að morgni til reyndar. En við náttúrulega gerðum ráð fyrir því og komum því á réttum tíma. KEB er svo lukkulegur með að losna við vírana - skrýtið að strjúka yfir tennurnar með tungunni og ekkert að trufla - allt svo mjúkt og fínt. Sérstaklega var hann...

How sad...

Sjaldan sem ég kippi mér upp við að lesa um stjörnurnar sem eru með allt í klósettinu vegna eigin bjánaskaps. En í þetta sinn varð ég pínu leið. Málið er að ein flottasta söngkona 9. áratugarins er gjörsamlega búin á því. Hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu síðustu árin. Nema þá helst vegna fíknefnaskandals af og til. Mér finnst leiðinlegt að sjá að svona hæfileikarík og falleg kona skuli tapa öllu niður. Horfði á þetta myndband og vorkenndi henni bara. Og til að toppa ömurlegheitin þá hefur hún látið blása í vörina á sér eins og flestar stjörnur virðast gera þessa dagana. OJJJ það er svo glatað að líta út eins og Andrés önd - málið er að allar þessar konur sem láta fylla í varirnar á sér eru töluvert betur útlítandi áður en það er gert. Whitney Houston á kannski eftir að gera góða hluti í framtíðinni en hún þarf alvarlega að taka sig saman í andlitinu áður en af því verður. Nú er ég engin sérstakur aðdáandi hennar. En þótti hún samt syngja nokkur góð lög á sínum tíma og þetta lag á...

STEINN

Við BH ákváðum að drífa okkur á Esjuna í morgun kl. 11. Linda og Nala komu með okkur og svo Freyr og Skuggi. Skuggi er þriggja ára Tjúi og hetjan gekk meira og minna alla leið upp og niður í flottu lopapeysunni sinni :o) Hann var alla vega sprækari en ég - púff - var að gefast upp í mesta hallanum. Fórum erfiðari leiðina upp en auðveldari niður. Eins gott því annars væri ég sennilega að skafa BH upp úr hlíðunum núna. Ég fékk að hafa Úlf efri partinn á leið upp. Minn dáldið grey og vantaði aðstoð. Stóð á blístri og lappirnar sögðu nei nei nei í sífellu. Magnað hvað lærin á mér eiga bágt alltaf þegar ég tek á því. Búið að vera svona síðan um 2006. En fólk - ég komst upp að Steininum fína og skrifaði í gestabókina. Það var fyrirfram ákveðið að staðnæmast þar og halda svo niður aftur. Erfitt að fara alla leið með hundana skilst mér - auðveldara kannski í sumar. Á leið niður skiptum við BH um hund, Ronja mín, drottningin og yndið mitt togar ekki eins og Úlfurinn. BH kallaði hana síberíusvin...

Stjörnumerkin...

Ég hef nú ekki spáð mikið í stjörnumerki og persónur fólks. En eins og flestir ef ekki allir þá hef ég skemmt mér yfir þannig vangaveltum samt. Þetta fékk ég í tölvupósti og fannst ansi sniðugt því ég gat alveg séð nautin, vogina og vatnsberan í hvelli og svo náttúrulega ljónið og... alla vega hló dálítið að þessu... Lesið þetta og hugsið um fólkið í þessum merkjum um leið. Hvað þarf marga hrúta til að skipta um ljósaperu? Bara einn, en það þarf margar perur. Hvað þarf mörg naut til að skipta um ljósaperu? Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu. Hvað þarf marga tvíbura til að skipta um ljósaperu? Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að ljósaperan er miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds lit hvers og eins sem kemur inní herbergið. Hversu marga krabba þarf til að skipta um ljósaperu? Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir atburðinn. Hversu mörg ljón þarf til að skipta um ljósaperu? Ljón skipta ekki um perur, í me...

Doktor Saxi...

Fór með soninn til læknis í morgun - krílin í vetrarfríi og því upplagt að nota morgunin í svona verkefni. Hann var á æfingu á miðvikudaginn, þau eru að æfa fyrir mót sem verður á sunnudaginn. Þessi vika var ansi þétt hjá honum því hann var að ljúka við hópverkefni ásamt nokkrum bekkjarfélögum, tónleikar á miðvikudaginn og æfing í fimleikum sem hann vildi alls ekki missa af. Miðvikudagurinn var því dáldið brjál. Skóli, heim að vinna með strákunum, 17:15 - æfing með píanistanum, tónleikar kl. 18, og við búin að fá í gegn að hann fengi að spila fyrstur til að geta hlaupið út strax og beint á æfingu sem byrjaði 16:30, en átti að ljúka kl. 19:00. Þannig að hann gat þá mætt í smá stund. Ég sat og fylgdist með þeim og sá drenginn skoppa af trampólíninu svona þrjá metra eða meira upp í loftið, kuðla sig saman í bolta, snúa sér í tvo hringi, opna kroppinn og reyna að lenda. Lendingin var ekki alveg komin og hann var að vinna í henni. Lenti eitthvað illa úr einu stökkinu með álag á annað hnéð o...

Litla drottningin

Hef haft það sem venju að tala um okkur drottningarnar á heimilinu/fjölskyldunni - hafið kannski tekið eftir því. Sjaldan sem ég tala um prinsessur. Það er helst vegna þess að við viljum allar ráða og drottningin hlýtur að vera sú sem ræður. Prinsessan er enn bara í læri hjá meistaranum ekki satt :o) Nú hefur ein drottningin enn bæst í hópinn. Og svo að við hinar sem öllu viljum ráða séum ekki í neinum vafa um að hér sé sönn drottning á ferðinni þá var henni gefið nafn sem tekur af allan vafa. Systir hans Arons Frosta hefur verið nefnd KATLA MARÍA ÍSIS. Skírnin verður síðar þegar fjölskyldan hefur safnað kröftum til að fá alla vitleysingana í heimsókn :o) Til hamingju með fallega nafnið þitt litla vinkona ! Until next time...

Group

Fyndnustu grúppur á facebook sem ég man eftir eru "I hate it when MC Hammer doesn´t let me touch anything" og svo "Is it ok if I give you pepsi instead of coke? - Is it ok if I pay with Matador money?"

SmáKríli

Hljóp yfir í gær þegar ég frétti að litla píslin væri komin heim til sín. Átti ekkert von á henni fyrr en í fyrsta lagi í dag. Þar sem móðirin hafði missti nánast helming blóðbirgða sinna í fæðingunni. En kjarnakonan og valkyrjan var fljót að birgja sig upp aftur og fékk að fara heim með píslina og jafna sig betur í faðmi fjölskyldunnar. Hvernig er það - eru öll nýfædd börn svona lítil og miklir hnoðrar? Þau stækka svo fljótt að maður er gleymir á hraða ljóssins hversu smá þau eru. Svo eru þau bara sofandi og afslöppuð á meðan maður hnoðast með þau. Voðalega notalegt að leyfa þeim að kúra í fangi sínu, alveg í kuðung. Hún hniprar sig þannig að hnén eru dregin alveg upp að brjóstkassa og þannig blekkir það hversu löng hún er í raun. Svo er hún náttúrulega alveg ómótstæðileg því hún er bara svo falleg. Líkist bróður sínum mikið og mér skilst að það passi ekkert annað nafn á hana en hans nafn :o) Foreldrarnir voru eitthvað að grínast með það! Það verður gaman að fylgjast með píslinni stæk...

Viðbót

Lítil dama bættist í fjölskylduna um kl. 19:30 3. febrúar - rétt þurfti aðeins að sparka í rassinn á henni til að hún myndi átta sig á að allir voru orðnir spenntir að kynnast henni. Móður og barni heilsast vel en við hin erum að fara á límingunum að fá að knúsa og kyssa litlu skvísuna. En bara svona í hófi, hún þarf víst eitthvað að fá að sofa og hvíla sig. Þær frænkur eiga því sitthvorn afmælisdaginn fyrst prinsessan kom ekki 2. febrúar. Þær verða einhvern tímann góðar saman, hætt við smá pústrum ef sú litla verður lík frænku sinni :o) Svo erfitt þegar allir vilja ráða ;o) Nú eru bræðrabörnin orðin átta talsins - fjórir drengir og fjórar stelpur. Þetta er með ráðum gert svo jafnt sé í barnabókhaldinu. Þannig að ef einhverjum dettur í hug að bæta í hópinn, þá verður hann að vera viss um að bæta einu til - og passa að það sé sitthvort kynið. Annars verður barnið gefið til ættleiðingar ;o) Ég get verið alveg róleg því ég bæti ekki við börnum héðan af :o) Mesta lagi einum hundi - nei tve...

Stelpurófur :o)

Litla daman er sátt og sæl með afmælisdaginn sinn, þá er takmarkinu náð. Nú bíðum við spennt eftir nýjustu viðbótinni í fjölskylduna. BH á von á lítilli bróðurdóttur í heiminn vonandi á morgun. Þrátt fyrir að hann hafi reynt hvað hann gat til að koma krakkanum út (jájá - hann reyndi það) með því að bregða mömmunni og ýta létt á magann við hvert tækifæri og tala krakkann út með góðu, m.a.s. í dag sendi hann SMS sem hljóðaði svona "BÚÚH". Ekkert hefur virkað en nú sér fyrir endan á biðinni. Óskum þess að allt gangi fljótt og vel fyrir sig og að lítil spriklandi stelpurófa birtist heilbrigð og flott í heiminn á Landsspítalanum þann 3. febrúar - til vara segjum við 4. febrúar :o) Later

Til hamingju Ísland...

Heimasætan hér er 11 ára í dag. Yikes þetta er fljótt að líða og enn fljótar þegar hún á í hlut. Held hún hafi verið hætt að vera litla barnið um fimm ára aldurinn. Sjálfstæðið og dugnaðurinn hefur alltaf verið hennar sterka hlið. Já nema svona þegar hún þarf að ganga að þjónum og spyrja um salernið þá allt í einu þarf hún stuðning. En að syngja, dansa, lesa upp, spila á fiðlu, segja brandara o.s.frv. fyrir framan fullt af fólki, kunnugu og ókunnugu, það er aldrei vandamál. Og reyndar bara spennandi og skemmtilegt. Við fórum inn í herbergið hennar í morgun og vöktum hana - hef hana grunaða um að vera löngu vaknaða þá - hún sagðist hafa verið að bíða eftir okkur. Engin afmælisgjöf í rúmið þetta árið. Afmælisbarnið varð að gjöra svo vel og fara framúr. Sagði henni að hún fengi gjöfina eftir skóla - hún var pollróleg, trúði ekki orði. Kannski það hafi verið vegna þess að ég sagðist hafa gleymt því að kaupa gjöf handa henni. Hún vissi svo sem aðeins hvað væri í vændum þennan afmælisdag. Ák...

Þjóðaríþrótt...

Flottir gaurarnir í íslenska handboltalandsliðinu - bronsið heim og allir glaðir. Voru reyndar aðeins að taka mig á taugum þarna síðustu mínúturnar í gær gegn Pólverjunum. En þetta hafðist á endanum. Til lukku með það drengir :o) Ég er að geðbilast á eigin leti og framtaksleysi - er núna að gramsa í því að borga laun og reyna að fara eftir þessum endemis skattabreytingu - af hverju að gera einfalt þegar við getum haft þetta svona ljómandi flókið og skemmtilegt. Verð reyndar að viðurkenna að þegar ég loksins settist yfir þetta þá er þetta nú einfaldara en mér fannst í fyrstu. Spurning hvort ég sé ekki að gera þetta almennilega - sýnist það. Ekkert jafnleiðinlegt og að reikna vitlaust út eitthvað sem viðkemur skattinum, maður fær það fimmfalt í hausinn og verkurinn er í mánuð eða tvo eftir svoleiðis árekstur. Annars sagði ágætur lagaprófessor að það væri þjóðaríþrótt Íslendinga að svíkja undan skatti. Væri sennilega komið frá forfeðrum okkar sem flúðu hingað frá gráðugum kóngum og svona ...