Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá janúar, 2010

Hamingjuóskir

Amman mín á afmæli í dag - 88 ára gömul - geri aðrir betur :o) Hún býr enn heima hjá sér og alltaf svo notalegt að kíkja í heimsókn í Miðtúnið. Aðeins orðin þreytt í fótleggjunum og nú ber aðeins á því að hún sé byrjuð að gleyma atburðum. T.d. man ekki eftir því að KEB fermdist síðasta vor - enn meira hissa að sjá myndir af sér í veislunni því hún man ekkert eftir að hafa verið þar. En engu að síður fullfær um að sauma pínuponsu spor til að búa til skemmtilegar myndir, pússlar risapúsl og hefur ekkert fyrir því, ræðir heimsmálin og hefur skoðun á öllu, les heilmikið og fylgist vel með. Vona að ég verði svona flott 88 ára kerling með hvítt hár - (hún kallar sig alltaf kerlingu). Til hamingju með daginn amma mín :o)

Snilld

Hvernig er það - er rússneski björninn enn í hýði?? Það er bara BURST í gangi. Sit hérna að færa bókhaldið, hvernig ætli vaskurinn verði núna hjá mér? Einbeitningin er meira svona á sjónvarpinu í augnablikinu. En þar sem spennan er ekki alveg að fara með mig þá ætti þetta að sleppa :o) Sá auglýsingu fyrir heimavörn hérna í hléinu, karlar á leið í sjóinn að synda. Allt í einu fannst mér það pínu spennó - ég er alla vega búin að vera dugleg að safna einangrun í vetur. Spurning um að prófa bara - mér finnst ekkert alveg leiðinlegt í sjónum, því meiri öldur því betra. Svo er náttúrulega engu líkt að fara undir yfirborðið og skoða lífið í sjónum. Það er svo frábært - ætti bara að fara að kafa aftur og láta vaða hérna við Ísland. Skilst að það sé nóg að sjá hér og skoða :o) Well leikurinn að byrja - best að senda góða strauma yfir hafið til Vínar svo þeir haldi þessum snilldarleik áfram :o) Later

ÁFRAM ÍSLAND...

Held að ég þurfi hjartastyrkjand, róandi og kvíðastillandi áður en yfir lýkur. Orðin ansi þreytt á að landsliðið okkar spili snilldarleiki og endi alltaf í jafntefli - en það er þó betra en tap. Var að fara á límingunum síðustu mínútuna áðan á mót Króötum - Björgvin landsliðsmarkvörður er hetjan mín núna :o) Until next time...

Úlfur í Mos

Var hérna heima í dag þegar Úlfur byrjar að spangóla þvílíkt ámátlega hérna úti - kíki á þau og hann situr á kofanum og teygir höfuðið upp og gólar út í loftið. Er til eitthvað skemmtilegra en að eiga úlf í garðinum sínum? Þau voru nú ekki til fyrirmyndar í dag skötuhjúin hérna í 1b. Heyri allt í einu brjáluð urr og læti. Opna út á pall og hvæsi á þau, það er alltaf nóg til að þau hætti. Ekki í þetta sinn þó því þau heyrðu ekkert í mér, allt of upptekin við að kála hvort öðru. það eru bein þarna úti sem þeim þykja spennandi og grunar mig að Úlfur hafi fengið nóg af því að Ronja einokar þau eða svona leyfir honum að naga í pínu stund þegar henni hentar. Það er jú bóndadagurinn og því sjálfsagt að bóndinn fái að hafa sitt í friði, þó ekki nema þennan eina dag og kannski afmælisdaginn líka. Þau hlustuðu ekkert á mig þó ég væri komin út á pall, út í garð, uppað gerðinu, inn í gerðið. Með sitthvort bananabúntið í eyrunum og föst saman á andlitunum. Ronja var búin að bíta sig fasta á neðri k...

Kabúmm

Ég verð alltaf dálítið pirruð þegar ég heyri eða les fréttir um kjána sem búa sér til sprengjur úr púðri - rörasprengjur og þvíumlíkt. það er alveg vitað hversu alvarlegar afleiðingar þetta getur haft í höndum kjána sem ekki kunna með þetta að fara. Og það sannast ítrekað með því að þetta springur í höndunum á þeim. Oft eru þetta óharðnaðir unglingar sem finnst þetta mjög spennandi og sniðugt. Þetta eldist nú yfirleitt af þeim samt sem betur fer. Þrátt fyrir að hlakka ekki yfir óförum þeirra sem svo óheppnir eru að sprengja sig í tætlur þá verð ég víst að viðurkenna að ég hef litla samúð með þessum gaurum. Auðvitað er frábært þegar betur fer en áhorfir í fyrstu. En því miður fer ekki alltaf vel. Aumingjans vitleysingurinn sem liggur nú sofandi á spítalanum á ekki mína samúð - hann getur sjálfum sér um kennt og hann er orðinn fullorðinn. 23 ára gamall og enn að fikta með flugelda til að búa til sprengjur. Ég vona að hann nái bata en samkvæmt fréttum þá verður hann sennnilega ekki heill ...

Ást er...

Afi kaldi (Baldvin) og amma Lilja eiga 60 ára brúðkaupsafmæli í dag - geri aðrir betur á þessum síðustu og verstu (hjónabands)tímum :o) Í tilefni dagsins ætla gömlu hjónin ásamt börnum sínum og mökum að drífa sig út að borða og hafa það huggulegt. Hversu margir á mínum aldri munu fagna þessum áfanga þegar þar að kemur? Ég ætla að giska á..... hmmm ekki svo margir :oþ Later

Hressandi

Er að reyna að hypja mig út - það er langt síðan veðrið hefur verið svona "skemmtilegt" er ég þarf að drífa mig út með hundana. En ætla að drífa mig áður en það versnar - á víst að bæta í vindinn seinnipartinn svo það er ekki eftir neinu að bíða... :o) Ef ekkert heyrist af mér eftir tvo tíma eða svo þá hef ég fokið út í veður og vind, vinsamlegast leitið í þá átt sem Kári blæs - vona bara að það sé ekki á haf út :o/ Later

Nú er ég léttur...

Þegar verið var að ganga frá eftir matinn á laugardagskvöldið var KBB að pirra sig á að koma ekki gosflösku inn í ísskápinn. Hún vildi vita hvað allar þessar vínflöskur væru að gera þarna og spurði heldur hryssingslega "Hva, erum við byrjuð að drekka eða...?" Okkur foreldrum hennar þótti fyndið hvernig hún tók til orða - rosa meðvirkni í gangi, krakkinn bara með í dæminu ef foreldrarnir væru kannski byrjaðir að smakka vín. Þá vildi hún bara vita það svo hún gæti þá fengið sér í glas líka bara LoL. Allar þessar flöskur - þrjú stk. samtals eiga sér skýringar. Fengum heimalagað rósavín frá góðum vinum s.l. haust eða sumar. Fékk hvítvínsflösku eftir að hafa aðstoðað flott brjúðhjón s.l. sumar. Og karl faðir minn steingleymdi að opna kampavínið sem þau mamma komu með á gamlárskvöld. Nú eru allar þessar ágætu flöskur inni í ísskáp og taka allt gosplássið heimasætunni til mikils ama. Spurning um að skella í sig smá í kvöld yfir sjónvarpinu og búa til smá pláss fyrir gosið. Skál

Photos

BH setti myndir á flickr hjá sér - já já bara hundar, okkur finnst þau flott :o) Það er búið að vera rólegt hjá okkur hérna um helgina. Ég hékk heima í gær latari en venjulega. Hélt að það væri ekki hægt en kom sjálfri mér á óvart. Er reyndar að myndast við að prjóna peysu á lottuna mína svo aðgerðaleysið var ekki algjört. BH var öllu duglegri og snattaði eitthvað í kringum smíðina á sleðanum sem verður vonandi að veruleika sem allra fyrst. Viktor bauðst til að hjálpa honum við smíðina og það eru því allar líkur á að þetta fari að ganga eitthvað núna. Töluvert skemmtilegra að vera tveir að vinna saman en að rolast einn úti í bílskúr. Þeir voru saman í þessu í gær í kannski tvo tíma og græjuðu eitthvað og voru ánægðir með afraksturinn. Svo bara drífa þeir sig aftur og klára þetta með því að taka sér tíma öðru hvoru. Þetta verður svo gaman þegar þetta er búið. Er mest hrædd um að við þurfum annan sleða og a.m.k. tvo hunda í viðbót. Já já ekki brjálast neitt hérna. Staðreyndin er sú að tv...

We are the winners...

Ætla bara að skrá niður að við systur áttum snilldarleik í Badmintoninu í gær. Ég ætlaði varla að nenna að mæta því ég var þreytt og illa upplögð en ákvað að drífa mig vitandi að það væri bara hressandi. Eða kannski vegna þess að annars á ég systur minni að mæta :o) Í stuttu máli þá var þetta svona - fimm leikir og burst í þeim öllum, nema kannski þeim síðasta sem við rétt höfðum, þurftum 22 stig til að klára. Nú er ég að spá í að mæta ekkert aftur því það er sagt að best sé að hætta á toppnum. Það er nefnilega þannig að næst verður þetta sennilega eitthvað jafnara eða jafnvel öfugt. Þ.e.a.s. ef þeir mágar mæta aftur he he! Fór út í göngutúr áðan með LaVoffs sem er nú kannski ekki í frásögur færandi nema það að ég komst að því að ef tíkarskottið mitt væri hálft eins góður dráttarhundur og rakkinn þá væri ég sennilega í vondum málum :o/ Vorum að ganga Álfatangann og ég sé að það er köttur framundan á grasinu. Píslin hafði vit á að forða sér áður en við komum, en hundkvikindin mín fundu ...

Grasekkja

Karlinn í Belgíu að vinna og við krakkarnir og LaVoffs erum hérna heima í okkar rútínu á meðan. Já eða svona... Krakkarnir voru bæði heldur slöpp í gær eitthvað. Kannski prófin séu að fara svona með þau. KEB að drepast út kvefi og hausverk og tilheyrandi. Fór nú samt í skólann í gær en ákvað að liggja heima í dag til að safna kröftum. KBB er með einhverja magaverki - svona krampa einhverja. Veit ekki hvað það getur verið en hún verður eiginlega að harka það af sér. Þau eru bæði í prófum í skólanum - KBB í fyrsta sinn í svona alvöru prófum. Hingað til hafa verið lagðar svokallaðar kannanir og svo fá þau bara umsagnir. Kennarinn hennar hefur laumað því að mér að hún hafi verið að gera góða hluti í könnununum svo hún ætti að vera nokkuð góð með þessi próf. En litli letinginn minn klikkar ekki og reynir að sleppa létt við lestur og svona. Vill til að hún er hálfgerður límheili eins og bróðir hennar, ætli hún fljóti ekki langt á því. Um leið og drottningin frétti að faðir hennar ætlaði að b...

Að vera þjófur eða vera ekki þjófur?

Í jólaboði hjá nöfnu minni og ömmu fræddi móðurbróðir minn okkur á því að föðuramma hans hefði alltaf sagt að við værum afkomendur þursa og sauðfjárþjófa. Þetta þótti okkur verulega fyndið og hann bætti við að hún hafi nú þótt ættfróð kona svo þetta hljóti að vera satt :o) Svo ég get þá ekki núna með góðri samvisku, líkt og flestallir aðrir Íslendingar reyna, að segjast vera komin af höfðingjum og víkingum og því slekti öllu saman. Ég er bara ótýnd almúgakerling og með þjófagen í æðum mínum. Kannski þess vegna sem mér er svo illa við alla skatta og skyldur þrátt fyrir að standa skil á því öllu saman samviskusamlega. Þrátt fyrir að mér finnist svona nett kúl að vera afkomandi þursa og sauðfjárþjófa þá er með verulega misboðið að breskur lávarður leyfir sér að halda því fram að mér sé alveg sama þó að ég og þjóð mín pokketum 3,6 milljörðum og finnist það í góðu lagi. Ég kannast nefnilega ekki við að hafa fulla vasa fjár eftir þessa víkingaför okkar allra. Og þegar hann vælir eins og stu...

Hey Gaur!

Sonur minn keypti iphone fyrir tveimur árum síðan - mjög ánægður með hann og sérstaklega sáttur við að hafa safnað fyrir honum sjálfur :o) En hann er eins og margir aðrir drengir með dash af kæruleysi og slatta af klaufaskap í sínum beinum. Eftir að hafa misst gripinn alla vega 2x í gangstéttina á leið út úr bílnum, því hann ber allann heiminn í fanginu í stað þess að koma því haganlega fyrir í töskum eða vösum, þá missti hann gripinn enn einu sinni og í þetta sinn brotnaði skjárinn. Nú eru komnir margir mánuðir síðan og hann er enn jafngrútspældur og hefur talað nánast daglega um að reyna að laga þetta. Á leit sinni á netinu rakst hann á gaur sem tekur að sér að græja þessa síma fyrir fólk. Reddar varahlutum og kemur þeim á sína staði - m.a. skjái. Svo sonurinn sleppti sér af hamingju og vildi senda félaganum tölvupóst. Karl faðir hans sagði drengnum að hafa samband og lét hann um að skrifa bréfið. Hann í vinnunni en móðirin heima að borða brauð og fá sér te og lesa blöðin. KEB: MAAAM...

JÁ SÆLL

Ekki átti ég von á því að Herra Ólafur Ragnar myndi synja lögunum um IceSave staðfestingar. Samt svona eftir því sem við þurftum að bíða lengur þá fór ég að efast og hugsa að kannski fengjum við smá fjör í leikinn. Ákvað að glápa á gaurinn fyrst ég var hérna heima - frestaði göngu með hundana þar til bjart yrði og vann bara þar til hann hóf raust sína. Og hélt reyndar áfram að vinna þó hann malaði þarna á bakvið. Var viss um að hann synjaði svo var ég viss um að hann mynda staðfesta og svo sá ég að hann myndi synja er hann las lokin á ávarpi sínu. YES - hann var samkvæmur sjálfum sér - hefði ekki trúað því fyrir viku síðan. Þetta verður spennandi - sagan að skrifa sig sjálf núna kannski. Það verður alla vega smá fjör, hlakka til að heyra hvað Jóhanna og Steingrímur segja núna og hvort þetta fer alla leið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kaldhæðni örlaganna að Ólafur Ragnar, einn helsti leiðtogi vinstri manna á Íslandi um áraraðir, skuli kannski verða til þess að fyrsta vinstri stórn á Íslandi ...

Sunnudagur til hvíldar

Feðgarnir fóru með hundana ásamt Viktori og Sisku í léttan göngutúr. Frá Rekjalundi, yfir Helgafellið (af því Viktor nennti ekki í kringum það) og þaðan upp á Mosfell. Þeir eru enn á röltinu síðan um kl. rúmlega eitt. Dugnaðarforkar! KBB skottaðist yfir til vinkonu sinnar í hádeginu og er þar enn í góðu yfirlæti væntanlega. Ég er hins vegar heima og ákvað að nýta fjarveru fjölskyldumeðlima til að taka aðeins til og rétt þrífa ponsu lítið. Draslið sem safnast saman hjá einni fjölskyldu er ekkert grín - það mætti halda að hvert og eitt okkar héldi að það væri konungborið og því gerir enginn neitt til að hirða upp eftir sig :o/ Svo er ég í smá hugleiðingum um hvort ég ætti að henda tíkinni minni - hmm - why? Jú drottningin er enn og aftur að fella feldinn. Er að gera mig létt geggjaða á þessu. Rakkinn hins vegur er svo nískur að hann lætur varla eitt hár falla af sínum mjúka þykka æðislega feldi :o) En ég verð þá kannski að henda dóttur minni líka því löngu ljósu lokkarnir hennar leynast ...

Gleðilegt nýtt ár

Verð að hafa eina færslu svona 1. janúar 2010 - nú þarf maður að skrifa það nokkrum sinnum til að muna að ruglast ekki. Hér hefur allt gengið sinn vanagang yfir hátíðarnar. Við erum aldrei svöng þessa daga, alltaf boð einhversstaðar og nóg af mat og skemmtilegu fólki. Hundarnir hafa haft það fínt eins og mannfólkið. Ronja eltist við flugelda og stjörnuljós í gær, var ekki að skilja af hverju við ríghéldum svona í hana. En Úlfur minn var ekki eins hrifinn. Honum var nokk sama um þessa einu og einu rakettu sem þaut upp framan af kvöldi. Og bara þokkalega spenntur eins og tíkin að komast út með okkur eftir skaupið en þegar alltaf jukust lætin þá hætti honum að lítast á blikuna og ákvað að vera inni og helst með smá væl og rauk aftur og aftur inn í búr til að leita öryggis. SBK var honum allan tímann til halds og trausts og við hin kíktum á hann reglulega og reyndum að fullvissa hann með knúsi og klappi um að allt yrði í góðu lagi. Eins og áður voru allir nágrannar okkar hérna á spjallinu ...