Fara í aðalinnihald

Gleðilegt nýtt ár

Verð að hafa eina færslu svona 1. janúar 2010 - nú þarf maður að skrifa það nokkrum sinnum til að muna að ruglast ekki.

Hér hefur allt gengið sinn vanagang yfir hátíðarnar. Við erum aldrei svöng þessa daga, alltaf boð einhversstaðar og nóg af mat og skemmtilegu fólki. Hundarnir hafa haft það fínt eins og mannfólkið. Ronja eltist við flugelda og stjörnuljós í gær, var ekki að skilja af hverju við ríghéldum svona í hana. En Úlfur minn var ekki eins hrifinn. Honum var nokk sama um þessa einu og einu rakettu sem þaut upp framan af kvöldi. Og bara þokkalega spenntur eins og tíkin að komast út með okkur eftir skaupið en þegar alltaf jukust lætin þá hætti honum að lítast á blikuna og ákvað að vera inni og helst með smá væl og rauk aftur og aftur inn í búr til að leita öryggis. SBK var honum allan tímann til halds og trausts og við hin kíktum á hann reglulega og reyndum að fullvissa hann með knúsi og klappi um að allt yrði í góðu lagi.

Eins og áður voru allir nágrannar okkar hérna á spjallinu og við enduðum hérna inni í ostaköku og fíneríi. En þegar líða tók án nóttina og okkar gestir farnir þá fórum við yfir til Hörpu og Gumma þar sem Alda og krakkarnir voru einnig. Hér er nefnilega hefð fyrir því að krakkarnir vilja alltaf vakað aðeins lengur en fyrra gamlárskvöld. Verður erfitt þegar þau þurfa að fara að vaka nokkra sólarhringa til að slá metið síðan síðast :o)

Við vorum sammála um það hérna sem hér vorum að skaupið hafi nú bara verið fyndið í ár. Við gátum alla vega skemmt okkur og hlegið yfir vitleysunni.

Nýjustu fréttir af gelgju heimilisins er að hann fékk það í gegn á seiglunni að setja ps3 tölvuna inn í herbergið hans. KBB sætti sig við það gegn því að hún fengi aðgang þegar hún vill spila. KEB þótti það nú ekkert erfitt að samþykkja því hún fer svo sjaldan í tölvuna. Nú er hann alsæll þarna inni að skjóta og myrða sýndarhermenn - spurning hvernig þetta verður þegar skólinn byrjar aftur, það á eftir að reyna aðeins á þetta en öllu fögru var lofað :o)

Enn og aftur gleðilegt nýtt ár og vona að gæfan fylgi öllum í leik og starfi á nýju ári :o)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...