Ætla bara að skrá niður að við systur áttum snilldarleik í Badmintoninu í gær. Ég ætlaði varla að nenna að mæta því ég var þreytt og illa upplögð en ákvað að drífa mig vitandi að það væri bara hressandi. Eða kannski vegna þess að annars á ég systur minni að mæta :o)
Í stuttu máli þá var þetta svona - fimm leikir og burst í þeim öllum, nema kannski þeim síðasta sem við rétt höfðum, þurftum 22 stig til að klára. Nú er ég að spá í að mæta ekkert aftur því það er sagt að best sé að hætta á toppnum. Það er nefnilega þannig að næst verður þetta sennilega eitthvað jafnara eða jafnvel öfugt. Þ.e.a.s. ef þeir mágar mæta aftur he he!
Fór út í göngutúr áðan með LaVoffs sem er nú kannski ekki í frásögur færandi nema það að ég komst að því að ef tíkarskottið mitt væri hálft eins góður dráttarhundur og rakkinn þá væri ég sennilega í vondum málum :o/ Vorum að ganga Álfatangann og ég sé að það er köttur framundan á grasinu. Píslin hafði vit á að forða sér áður en við komum, en hundkvikindin mín fundu lyktina af greyinu þegar við nálguðumst staðinn þar sem hann hafði setið. Nú var fjör og sko líka TOGAÐ. Þau ætluðu að hlaupa af stað og á eftir kettinum og ég mátti hafa mig alla við að halda þeim í skefjum. Þau náðu að toga svo rosalega að ég togaðist áfram aðeins og mátti svo taka á öllu sem ég átti til að halda þeim og toga tilbaka - púff, hefur örugglega verið fyndið á að horfa en tók fljótt af.
Er ég var komin niður í Túnahverfi sá ég að það voru hálkublettir og reyndi að passa mig. Gleymdi mér samt og rann við og féll niður á annað hnéð. Sem betur fer stoppuðu hundarnir strax til að sjá hvað hafði hrist jörðina þannig að ég datt nú ekki alvarlega. En nógu vont var það til að rispa á mér hnéð eins og á krakkaskotti sem flýgur á hausinn. Sem betur fer kom samt ekki gat á buxurnar mínar, það hefði verið verulega spælandi.
Karlinn er í skýjunum núna - á leiðinni heim. Fer á eftir út á völl að sækja hann. Hann tilkynnti að ekkert yrði keypt í fríhöfninni, hvorki í Belgíu né hér heima - það er allt svo dýrt :o( Var að vona að ég fengi kannski belgískt súkkulaði til að smjatta á, mmmm, en nei það var á rugl verði eins og evran er núna svo við hjónin ákváðum að sleppa því! Sem er kannski eins gott því frúin er að reyna að minnka sætindaát á kvöldin eftir matinn :o)
Later

Ummæli