Heimsótti Davíðs og Helenuson í kvöld aftur - já og foreldrana líka. Og hann er jafn æðislegur og í gær. Aðeins farin að láta heyra í sér, láta vita er hann er svangur og svona. Hann er svo mikil písl, samt fæddist hann 17,5 merkur og 54 cm. Karlotta sagði í gær þegar hún kíkti á hann í pínu stund: "Ég trúi ekki að ég hafi verið minni en hann" Og ég er alveg sammála henni, trúi því varla. Mín börn voru bæði tæpar 12 merkur. Gafst upp - ætla að prjóna lopapeysur á börnin mín. Karlotta er búin að suða af og til s.l. 6 mánuði. Ég hef staðfastlega neitað, held nefnilega að fljótlega verði ekki hægt að fá hana í peysuna því hún STINGUUUUR. Það var alla vega þannig alltaf þegar hún var um 5 ára og ég var að fá hana í lopapeysu. Þannig að það var tekið loforð af þeim báðum (hann fór að biðja um líka um helgina) að þau myndu þá nota peysurnar í allann vetur og ekkert múður. Nenni ekki að leggja á mig þessa vinnu ef flíkurnar eru ekki notaðar síðan. Mér finnst lopapeysur æði - finnst ...