Fara í aðalinnihald

Sól sól skín á mig...

Elska þetta veður, af hverju eru ekki öll sumur svona? Það væri svo fínt að geta gengið að þessu vísu. Og fyrst kröfur eru komnar fram, þá vil ég að þetta byrji í apríl og standi til september. Bara hugmynd, nokkuð góð finnst mér.

Stelpurnar reyndu að sofa í tjaldi síðustu nótt, Una fór um 12 leytið, og Diljá og Karlotta komu inn um kl. 02. Það voru skuggar og eins og einhver væri að labba fyrir utan tjaldið. Já já það er líf í garðinum hjá okkur, bara eins og á Laugaveginum.

Lilja kom heim frá útlandinu í gær, alsæl með vel heppnaða ferð. Þeim Ingibjörgu (mágkonu hennar) leið vel í hitanum og höfðu það gott saman. Hún kom hlaðin gjöfum fyrir allt liðið - nema strákana sína ha ha ha, þeir voru nú nett móðgaðir. Mamma og pabbi fara til Kanada í dag, keyri þau út á völl á eftir. Þau verða í burtu í þrjár vikur, langur tími. En sennilega of fljótur að líða. Nú leggst ég í rannsóknir á netinu og plata mömmu til að kaupa fyrir mig föndurdót, það verður stuð.

Lítið á plani í dag annað en að rækta garðinn (meira bjarga honum, rífa upp arfa o.s.frv.). Annars er garðurinn í góðum málum, þetta mjakast hjá okkur ár frá ári. Bara eitt arfa, njólabeð eftir, setja stétt við bílskúrinn, smíða skúr (kofa) og þá erum við nokkuð sátt, bara að halda þessu við. Alltaf nóg að gera. Eftir að ég skutlast út á völl förum við í fiskibolluveislu hjá Björgvini og Ernu. Ég hef ekki eldað síðan á mánudag, alltaf eitthvað sem bjargar mér frá því þessa dagana. Afmæli hjá Pétri í gær, krakkarnir þar í pylsum og við hjónin ákváðum að styrkja Nings og borða þar frekar en að elda.

Gardínurnar sem við erum búin að bíða eftir í 6 vikur eru komnar - nú verða þær settar upp í eldhúsið og við getum tekið plastið niður. Það verður breyting til batnaðar, annars eru trén að vaxa loksins í þá hæð að skýla okkur frá götunni síðan við klipptum þau niður um árið. Þannig að fólk ætti ekki að þurfa að vera hrætt í vetur að keyra hérna framhjá á morgnana þegar ég stend á náttfötunum með hárið út í allar áttir að smyrja ofan í krakkana áður en þau fara í skólann. Við fáum líka loksins myrkvunargluggatjöld í svefnherbergið okkar. Erum búin að sofa í sólinni í sjö sumur og erum orðin frekar þreytt á að vera með glýju í augun á kvöldin og á morgnana þegar við vöknum. Þetta verður munur, nú er bara að píska Baldvin í að setja þetta upp, nenni ekki að bíða í aðrar 6 vikur eftir því.

Góða veðrið bíður, verið úti að njóta þess, vona að sem flestir séu í fríi núna, ef ekki takið ykkur þá sólarfrídaga alveg grimmt.

Sólarkveðja

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...