Á rápi okkar hjóna í dag (kem betur að því seinna) segi ég - "Ég yrði brjáluð ef nágrannarnir settu upp blikkseríu í glugga hjá sér - ímyndaðu þér Gumma og Hörpu setja það í glugga hjá sér fyrir okkur til að bilast á." Svo sagði ég "Ok sko þessar sem svona breytast rólega á milli lita eru í lagi - en hitt er bara svo geðsjúkt eitthvað" Kem heim út Ikea (lofa segi frá því betur seinna), beygi inn í tangann og GETTU FOKKING HVAÐ! Nýi nágranninn á 2 er kominn með FOKKING VANGEFNA ÓGEÐSLEGA SNARBILAÐA jólaseríu stillt á manic mode í gluggann hjá einhverju krakka kvikindinu. Þetta þarf ég að horfa á út um eldhúsgluggann hjá mér og út um gluggann í stofunni - ÞAÐ Á AÐ BANNA ÞETTA HELVÍTI ! I shit you not - ég verð á kleppi í kringum jól og áramót, ef ekki fyrr, úr pirringi yfir smekkleysi mannkynsins. Later