Fara í aðalinnihald

Engar myndir...

En það gerðist nú samt.

Við mæðgur ákváðum að nota snjóinn og hreyfa villingana okkar. Spenntum þau fyrir sleðann og skoppuðum af stað.

Hefði sent hana eina, eða farið bara ein, en ég treysti ekki að hún lendi ekki vandræðum og hún vildi ólm drífa sig í smá sleðaferð. Svo mamman ákvað að skoppa með dömuna. Gekk svona líka ágætlega. Eina sem ég dauðsá eftir var að hlusta ekki á innsæið, eins og oft áður, og fara í hlaupagallann. Ég skokkaði þetta meira og minna á meðan drottningin stóð á sleðanum og stýrði honum. Hefðum getað staðið á honum báðar stundum nema það var búið að skafa göngustígana of vel og sanda sums staðar líka. Bara hérna hjá okkur í Álfatanganum og í Þverholti sem var gott færi fyrir okkur.

Ég kvarta ekkert að hafa hlaupið þetta en mér var ansi heitt - það lak af mér svitinn. Var í ullarnærbuxum, ullarbuxum og softshell buxum - gönguskóm léttum og þykkum sokkum. Ullarnærbol og Vík flíspeysu og primaloft úlpu með húfu - góðan daginnn hvað það var of vel í lagt. Hlaupagallinn hefði verið fullkominn því þetta var ekki erfiður hlaupatúr. Fórum 4,5 km - göngustígarnir buðu ekki uppá að við nenntum að lengja í ferðinni. Ekkert varið í að koma með skíðin á sleðanum í henglum... látum fjölskylduföðurinn um það, enda hann sem lagar allt svona sjálfur.

Heimasætan var ekki lengi að átta sig á af hverju tíkin var höfð í D-beisli (rakkarnir í X-beislum) og hljóp laus með, þeir fastir saman með millitaum í hálsólarnar.

"Ronja gerir ekkert gagn, hún er nú eiginlega bara fyrir !" Svo mörg voru þau orð um litla sjálfstæða vandræðagemlinginn okkar. Og var hún þó þokkaleg svona miðað við oft áður. En hún þarf sína hreyfingu þannig að í svona ferðir er ekki sanngjarnt að skilja hana eftir heima.

Hundarnir fengu alla vega smá sprett og við mæðgur súrefni í lungun - þau liggja hérna sátt á gólfinu, litla drottningin í sturtu og ég bíð spennt eftir að skola af mér svitann... sem lyktar ekki vel þessa dagana sökum hormónaójafnvægis :/

Mikið óskaplega væri ég sátt við að það myndi snjóa aðeins meira og tolla svona kalt - svo bjart og fallegt í snjónum og gaman að fara út að leika sér :)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...