Fara í aðalinnihald

Erfa jörðina ?

Jörðin er dálítið eins og líkami okkar. Við eigum bara einn og þar þurfum við að "búa" alla ævi. Betra að fara vel með líkamann. Það er eins með jörðina okkar - það er bara ein og við förum með hana eins og skít. Fólk ber mátulega litla virðingu fyrir því hvernig það fer með jörðina. Ég er þar ekki undanskilin. Langar voða mikið að segja að ég sé umhverfisvæn og hugsi áður en ég framkvæmi og vera voða græn.

En ég er aldrei nógu græn sennilega. Nota bílinn meira en ég nauðsynlega þarf... þó mér finnist það alltaf nauðsynlegt og alls konar sem ég gæti gert betur, t.d. hér í garðinum okkar - nenni ekki moltukassa og eitthvað - en hendi þó aldrei grasi, það fer allt í beðin hjá okkur og heldur niðri arfa hjá tránum þar sem við erum sjaldan að spóka okkur.

Hins vegar spái ég aðeins í umhverfið. Ég hendi í ruslafötur... þó það sé bara lítið tyggjó (sæll hvað mér er stundum orðið illt í kjálkanum af því ég kemst ekki í rusl og tyggjóið löngu ónýtt). Ég endurnýti litla poka hérna heima til að hirða upp eftir hundana... hérna heima. Tek svarta/bláa poka með mér í göngutúra. Ég hef endurunnið pappír síðan 1995 og auðvitað plastið sem maður fær greitt fyrir. Rafhlöður fara í endurvinnslu og kertaafgangar og eitthvað svona meira sem ég man ekki í augnablikinu.

Í mörg ár hef ég notað innkaupapoka aftur og aftur... annars fyllist allt hérna af pokum og ég hendi þeim ekki beint í ruslið. Nota þá til að taka við ruslinu hins vegar... hendi þeim þannig. Á þessu ári kíkti ég í verslunina Víði og þar er hægt að kaupa (merkta þeim) tauinnkaupapoka. Sem ég ákvað að gera. Ég sé alls ekki eftir því - hrikalega góðir pokar og gott að raða í þá. Nei mér er ekki sama hvernig raðað er í pokana... spyrjið bara Baldvin - hann hefur oft verið beðinn um að láta vörurnar bara vera og borga á meðan ég set í poka. Það kemst endalaust í þessa poka - þeir eru svo stórir. Sennilega tekur annar pokinn jafn mikið og tveir Krónu pokar.

Af hverju er ég að nefna þetta ?

Af því ég var að horfa á þetta myndband og mér blöskraði. Þó að ég viti þetta allt saman. Það er bara svo lítið mál að minnka þessa plastpokanotkun. Margt smátt gerir eitt stórt :)

Jú ég viðurkenni að það kemur fyrir að ég gleymi fínu pokunum mínum frá versluninni Víði. En er alltaf - as in ALLTAF með poka frá disir.is í veskinu mínu. Ég á nokkra svoleiðis... keypti á útsölu hjá þeim. Pokarnir eru ekki eins hentugir og pokarnar frá Víði - en miklu meira smart ;) Og koma sér ferlega vel þegar maður skýst út í búð og vantar eitthvað smávegis. Þola mikla þyngd - hef troðið fullt af mjólk í þá og það sér ekki á pokanum. Svo á ég líka svona poka frá þeim sem ég get látið hanga eins og veski - (slingsax held ég). Þá hef ég notað er ég er að fara með hundana - treð aukafötum, hjálmi, línuskautahlífum og bara því sem ég er að fara að nota á mig í hvert sinn. Allt á einn stað - hefur komið sér súper vel :)

Svo nota ég þessa poka fyrir alls konar - prjónadótið mitt á leið í Skorradalinn, set í þetta dót sem ég þarf að drífa með mér á fundi - kom sér vel er ég sá um ræðukeppnina nú í haust - ferlega þægilegir pokar og notadrjúgir. Og svo miklu fallegri en Krónu/Bónus/Hagkaups plastpokarnir.

Ruslapokar ? Ég á enn nóg af Krónupokum (einhver farinn að fatta að ég versla helst í Krónunni?) Því maður þarf oft einn og einn poka - alla vega nógu oft til að eiga nóg af þeim. EN ég gerði smá verðkönnun. Keypti mér gráa pokarúllu (pokarnir eru með haldföngum, eru eins og Krónupokarnir, ekki eins þykkir samt) og þar kemur stykkið út á 11 krónur í Bónus. En ef maður kaupir poka á kassanum í verslunum þá kosta þeir 20 krónur... svo það er ódýrara að kaupa svona rúllu og nota sem ruslapoka.

Svo fann ég í Bónus poka - svona plastpoka eins og maður notar heima... stærri en nestispokarnir... þeir heita maispokar... eða eitthvað þannig. Þeir eiga að eyðast hraðar og vera náttúrlegri. Ég kaupi þannig og nota fyrir nestið hjá krökkunum t.d. Set nefnilega boxin þeirra í poka - þ.e. boxin með matnum... stundum sósa og eitthvað sem maður vill síður fá í töskuna ef boxið myndi leka. Og svo nota ég þá til að hirða upp eftir hunda þegar þeir hafa verið notaðir nógu oft undir box eða annað.

Smá svona umhverfispæling... skil nefnilega ekki fólk sem spáir EKKERT í neitt svona - mér er alveg sama hversu gamalt það er. Sumir tala fjálglega um að þeir verið hvort sem er dauðir þegar... Stundum hugsa ég ... kannski betra að það fólk drepist þá bara sem fyrst svo það hætti að menga jörðina svona og þeim er drullusama. Því þeir sem eiga að taka við jörðinni, afkomendur þessa fólks, og okkar allra, þeir geta ekki leyft sér þann munað að hugsa svona.

Ef enginn spáir neitt í hvernig við göngum um jörðina og hvernig gengið er á auðlindir hennar... þá verður engin jörð til að erfa fyrir þá sem á eftir koma.

En hey - ég verð dauð þá ekki satt ?- svo hvað kemur mér það þá við ?

Later


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...