Fara í aðalinnihald

My little dramaqueen !

Fyrr í haust komum við hjónin heim, ásamt voffalingum, eftir miðnætti. Það gerist reglulega. Við förum á milli 20 og 21 að hreyfa hundana, oft ásamt fleira fólki. Túrarnir taka einn til tvo klukkutíma eftir því hversu langir hringirnir eru sem við ákveðum að hjóla í það skiptið. Stundum er svo sest inn að spjalla pínu stund ef farið er heiman frá einhverjum.

Þetta kvöld komum við heim að ganga eitt eftir miðnætti. Og við mér blasti þetta neyðarkall á eldhúsborðinu.


Svo um mig fór nettur ónotahrollur um leið og mig grunaði samt hvað hugsanlega gæti verið málið. Ef ég hefði rétt fyrir mér, var ekki ástæða til að vekja barnið sem þurfti að vakna eftir fimm klukkutíma. En ef ekki þá þorði ég ekki annað en að hlýða.

Svo ég fór inn á gang og bankaði létt á hurðina að svefnherberginu, Skottulot, og opnaði svo og hvíslaði lágt og vakti krílið mitt.

Það var sem mig grunaði... mamma það er 80´s dagur á morgun í skólanum og ég veit ekkert hvernig ég á að vera!!!

Sagði henni að sofa róleg við myndum finna út úr þessu morgunin eftir.

Hún reyndar fór ekki með túberað hárið eða blásið svona eyru dæmi og ekkert. Sagði henni bara að vera eins og ma hennar hefði mætt í skólann á sínum tíma... í neon íþróttapeysu og baggí íþróttabuxum og HVÍTUM sokkum. Gróf upp gamla vasadiskóið mitt og spólu með lögum sem ég hlustaði á í gaggó. Þannig mætti hún... krakkarnir voru ekki að kaupa þetta - en hún mætti bara eins og 80´s unglingur á þeim tíma.... ekki eins og tvítug á leið á diskó :)

Vasadiskóið skoraði þó hærra... sérstaklega hjá kennurum sem könnuðust of vel við gripinn ;)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...