Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá ágúst, 2012

Kærar þakkir

Ég hljóp 10 km á laugardaginn var í Reykjavíkur maraþoninu. Þokkalega sátt við árangurinn, hljóp á undir klukkustund eins og ég ætlaði. Fannst það bara nokkuð vel af sér vikið í meiri hita en ég er vön (hleyp alltaf á seint á kvöldin) og án loðboltana minna sem alltaf skila mér heim :) Við hjónin fórum framúr klukkan 5:30 til að borða morgunverð og vorum komin í bæinn, Þjóðmenningarhúsið, klukkan 8:00. Þar hittum við ofursvala gengið okkar. Þau voru fjögur sem voru ræst klukkan 8:40. Olga, Halli og Orri hlupu öll 21,1 km hálfmaraþon. Þau stóðu sig frábærlega og náðu sínum markmiðum. Þrátt fyrir auma kroppa og verki á leiðinni kláruðu Orri og Olga hlaupið á fínum tíma. Halli kláraði með stæl og blés ekki úr nös - góður í kroppnum og hafði yfir engu að kvarta. Verulega svalur eftir frábæran árangur í að ná markmiðum sínum í vetur og sumar. Auðvitað er stefnan hjá honum að halda áfram á sömu braut næsta vetur. Baldvin hljóp heilt maraþon, ákvað það með ekki svo löngum fyrirvara og...

Run Forrest...

Jæja loksins ... hér kemur linkur á frú mig í maraþoninu á laugardaginn. http://www.hlaupastyrkur.is/hlaupid/keppandi?cid=7134 Vona að fólk setji það ekki of mikið fyrir sig að ég hleyp aðeins 1/4 af leiðinni og vilji styrkja Ljósið um eitthvað smávegis. Þetta eru frábær samtök þar sem gott er að koma og sækja sér styrk og félagsskap á erfiðum tímum í lífinu. Hef ekki leitað þangað sjálf, en þekki fólk sem hefur notið góðs af. Hafa ber í huga að ég er vön að hlaupa með félagsskap sem bókstaflega togar mig áfram og alltaf í mark. Þarna þarf ég að gera þetta alveg alein og óstudd þannig að þetta er áskorun sko... í alvöru. Takmarkið mitt er að hlaupa þetta undir klukkustund, sem er vel raunhæft markmið :) Endilega hafið Ljósið í huga þegar veskið ykkar er voða þungt af seðlum sem þið hafið bara ekki hugmynd um hvað á að gera við :) Later