Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá desember, 2008

Hmm

Árinu senn að ljúka - þetta líður ofsalega hratt. Best að njóta þess að vera til :o) Við erum búin að skoppa á milli jólaboða frá því á aðfangadag og ef ekki eru jólaboð þá erum við í afgöngum hjá tengdó. Í gær brá svo við að húsmóðirin hér þurfti að sjá um mat í fyrsta sinn í rúma viku. Og hvað gerði fyrirmyndarhúsmóðirin, jú hún reddaði pylsum á síðustu stundu. Best að hafa ekki of mikið fyrir þessu. Í kvöld lét hún svo fjölskylduna ganga sjálfala á meðan hún skellti sér á Vegamót og hitti háskólaskvísurnar. Við hittumst alltof sjaldan núna, áður var skrafað og slúðrað á hverjum degi en nú erum við allar komnar í sitthverja áttina. Hittumst fimm núna í fyrsta sinn í laaangan tíma. En það er alveg magnað hvað við dettum beint í gírinn, svona rétt eins og við hittumst síðast í gær. Takk fyrir kvöldið dömur, hlakka mikið til að hitta ykkur aftur vonandi sem allra fyrst. Er ég keyrði heim hringdi ég í krakkana (handfrjálst of course) og planaði flugeldakaup. Við skelltum okkur saman á sö...

Ofurhugar

Hérna er MUST SEE fyrir unga ofurhuga og sprengivarga. Þekki einn sem var að fikta og allt sprakk í höndunum á honum. Kom í fréttunum og svona skemmtilegt. Hann svona lúsheppinn að halda höndunum blessaður, held jafnvel að hann hafi róast aðeins eftir þetta. Svo á ég frændur sem hafa verið heppnir hingað til og hafa vaxið upp úr svona sprengiþörf, þeir hefðu nú alveg haft gott af því að sjá þessa mynd. Held að börn hafi gott af því að fá svona áminningu fyrir áramótin. Alla vega ætla ég að sýna mínum börnum þetta á morgun. Smelltu hér til að sjá af hverju fólk ætti bara að skjóta upp stöðluðum flugeldum, ekkert að vera að bæta og breyta þessu sem kemur frá Kínverjunum. Later

Fruss

Þingmaður hvetur fólk til að kaupa ekki flugelda í ár. Hvernig væri að fólk sleppi því heldur að kaupa sér áfengi um áramótin. Það væru heldur dauf áramót án flugeldanna. Það væru ekki aðeins börnin sem myndu sakna þeirra. Viss um að fáir af þeim sem ekki drekka myndu sakna þess ef fólk sleppti áfenginu! Svo finnst mér alveg sjálfsagt að fólk kaupi flugeldana hjá björgunarsveitunum - fólkinu sem alltaf er boðið og búið að rjúka upp á eftir vitleysingunum sem vaða af stað í brjáluðu veðri, koma og negla þakplötur í öskrandi stormi o.s.frv. Kabúmm

Crazy people

Hér sjáið þið nýjasta fjölskyldumeðliminn, þetta er Úlfur. Hann kemur til okkar vonandi 1 janúar 2009. Þeir sem vilja sjá hann í eigin persónu eru að sjálfsögðu velkomnir any time. Loony!

Úlfarsfellið

Við BH gengum yfir Úlfarsfellið í dag ásamt Lilju, KBB og Diljá og að sjálfsögðu óþekku Ronju. Hún var laus til að byrja með en þar sem hún missir heyrnina er út er komið þá var hún fljótlega sett í taum. Hún rauk af stað er hún sá mann með þriggja mánaða Labrador hund og sinnti engum boðum um að hafa sig hæga. Þar með var hún svipt frelsinu og BH hafði hana í taumi restina af ferðinni. Ég var nú dálítið hissa hversu margir voru að spóka sig þarna. Við vorum rúma tvo klukkutíma á þessu ferðalagi. Óðum drullu upp að ökkla upp á fellið en enduðum í snjó og mjúkum mosa uppi á fellinu og á leiðinni niður. Þannig að við vorum ekki svo skítug er við enduðum heima ánægð með góðan göngutúr. Í gær fórum við í Skálafell ásamt KBB og óþekku Ronju náttlega, og líka fjölskyldunni úr A6. Tókum með okkur sleða því takmarkið var að leika sér aðeins í snjónum. Þarna uppfrá var fullt af fólki, mest snjósleða og fjórhjóla liði. Þannig að við máttum passa okkur í þokunni að verða ekki undir. Við gengum up...

HJÁLP

Syni mínum er ekki annt um geðheilsu móður sinnar - púff. Hann gaf systur sinni ABBA sing star í jólagjöf og nú eru þær vinkonurnar, KBB og Diljá að syngja hástöfum í stofunni hjá mér ABBA lög. Ekki bara það heldur dansa líka og þetta er engin smá innlifun því þær þekkja og kunna öll þessi lög. Yikes - held ég klæði mig bara og drífi mig út í snjóinn með Ronju minni :o)

Jóla jól

Hér eru jólin með hefðbundnu sniði. Við höfum verið hlaupandi á milli staða til að hitta fólkið okkar :o) Ronja kom með okkur til Lóu ömmu í gær - Svandís benti okkur á að hún gæti verið uppi hjá henni bara. Amma er alveg spök með heimsókn frá svona ferfættlingum. En þar sem við vissum að Tinni væri með Rúnari og okkar skotta er alltaf svo hress þá töldum við vissara að hún væri uppi á meðan hann væri niðri. Þau hittust pínu stund og það var fjör. Anna vildi meina að Tinni hafi bara orðið aðeins smeykur við þessa fjörugu tík. Hún er alltaf til í að leika - ALLTAF. Þurfum bara að vera vakandi yfir því að hún verði ekki svona áflogatýpa! Eftir gott kaffiboð hjá ömmu héldum við til Betu ömmu í hangikjöt og tilheyrandi. Þar fékk Ronja að vera úti í bíl, enga ferfættlinga þar inn! Hjá Ömmu voru flestir komnir, svo gaman að sjá alla og það er alltaf mikið fjör - alla vega mikill atgangur. Dálítið mikið af fólki! Heimilisfólkið á þessum bæ er mjög lukkulegt með allar fínu jólagjafirnar þetta ...

Eignarhaldsreglur hundsins

1. Ef mér líkar það, á ég það. 2. Ef ég var með það í munninum, á ég það. 3. Ef ég næ því frá þér, á ég það. 4. Ef ég var með það rétt áðan, á ég það. 5. Ef ég sá það fyrst, á ég það. 6. Ef ég þefa eitthvað upp, á ég það. 7. Ef það virðist vera mitt, á ég það. 8. Ef eitthvað brotnar, átt þú það.

Stal þessu...

af hundasíðu sem ég var að skoða og stóðst ekki mátið: ÁÐUR EN ÞÚ KEMUR Í HEIMSÓKN.... 1. Hundarnir lifa hérna, ekki þú. 2. Ef þú villt ekki að hundarnir séu nálægt þér, haltu þig fjarri húsgögnunum. 3. Já, þeir eiga suma ljóta siði. Það geri ég og þú líka, þannig að hvað meinarðu? 4. AUÐVITAÐ lykta þeir eins og hundar. 5. Það er þeirra siður að lykta af afturendanum á þér. Þú mátt lykta af þeirra ef þú villt. 6. Mér líkar miklu betur við hundana heldur en við flest fólk. 7. Í þínum augum eru þeir hundar. Í mínum augum eru þeir ættleidd börn sem eru stór, loðin, ganga á fjórum og tala ekki skýrt. Mér finnst ekkert af þessu vandamál. 8. Hundar eru betri en börn. Þeir borða minna, biðja ekki um peninga, eru auðveldari í þjálfun, koma oftast þegar kallað er, keyra aldrei bílinn þinn, hanga ekki með drekkandi og dópandi vinum, reykja ekki né hafa áhyggjur af tískunni, ganga ekki í fötunum þínum, og þurfa ekki gríðarlega mikla peninga í fyrir háskólanámi Ég er ekki sammála þessu öllu kannsk...

Myndir

Er að hlaða inn myndum á Flickr síðuna mína. Skrifa við þær í rólegheitum næstu daga. Myndirnar af krökkunum og Ronju eru ekki alveg eins og við vildum, ekki eins skýrar og flottar en læt þær flakka samt. Svo eru myndir þarna síðan á laugardaginn var, er við hittum nokkra voffa og eigendur þeirra. Og meiri hundamyndir - myndir af námskeiðinu sem Ronja tók að sér að hrauna yfir í prófinu :o/ skemmtið ykkur :o)

Helv... hundurinn

Við erum ekki vinkonur núna! Fór með Ronju á Lágafellið í gær svona til að leyfa henni að hlaupa í snjónum og hafa hana ferska í prófinu fína sem var um kvöldið. Hún er búin að vera svo dugleg hjá mér þessa viku að ég var alveg búin að gleyma þrjóskupúkanum (kannski ekki alveg) og hrekkjupúkanum sem er í þessu skotti. Á Lágafellinu kom hún alltaf er ég kallaði, fór aldrei of langt í burtu frá mér. Gekk við hæl er ég kallaði hana til þess - beið sitjandi og standandi úti á bersvæðinu. Algerlega eins og hugur minn. Það var svo gott að vera þarna uppfrá í þessu veðri - birtan æðisleg, snjórinn ósnertur nema rétt á göngustígnum búið að hreyfa aðeins við honum. Í vikunni höfum við farið í göngutúra og hún gengið fínt við hæl. Gert hlýðniæfingarnar hérna heima og gengið svona glimrandi vel. Alveg góð með okkur og no worries. Las svo blöðin yfir sem við höfum fengið í tímum til að rifja upp efnið. Það var nefnilega krossapróf. Kom í prófið í gær og allir bara nokkuð brattir og gekk bara svona...

Tásan

KBB kom heim í gær úr skólanum og vildi vita hvort ég sæi mun á stóru tánum á henni. Jú önnur var aðeins þrútin. Hún sagðist finna mikið til í tásunni sinni og með mikill vandlætingu tjáði hún mér að hjúkkan í skólanum hefði ekkert athugavert séð og sagði ekkert að henni. Hún tók þátt í jólakór tónleikum í skólanum í gær - voða gaman að sjá þessa krakka syngja saman. Þetta voru bæði krakkar úr Lágafellsskóla og Varmárskóla. En á leið héðan þá komst hún ekki í skóna sína fyrir verkjum, stal mínum skóm sem henni þótti betri því þeir voru víðir og góðir. Er við komum heim aftur og búin að borða þá var verkurinn farinn að færast upp fótlegginn upp að hné. ARG - nenni ekki svona. Tásan var þrútin en engin venjuleg einkenni sýkingar sjáanleg og ekki vildi krílið meina að hún hefði rekið tánna í einhversstaðar eða sparkað í neinn. Letinginn ég nennti ekki á læknavaktina, hringdi samt þangað til að spyrjast aðeins fyrir. Beið í tuttugu mínútur eftir hjúkku í símann. Allann biðtímann kom reglul...

Gert er ráð fyrir stormi...

Í gærmorgun var ég að horfa út um eldhúsgluggann og velti fyrir mér að bjóða vinkonu minni í göngutúr á Lágafellið. Hún gæti þá hlaupið laus og veðrið var skítsæmilegt og spáin ekki sérstök um kvöldið. En ákvað að láta vinnuna ganga fyrir og fór ekki neitt. Að kveldi dags sagði ég BH að hundgreyið mætti nú alveg við göngutúr, klukkan ekki nema 21:30 og veðrið dýrvitlaust. Létum það ekki stoppa okkur og drifum okkur út, mjög vel klædd í hlýjar og vatnsheldar flíkur. Urðum holdvot á 10 sekúndum sléttum, vettlingar okkar beggja rennandi en fötin voru að halda sæmilega. Það var sums staðar svo mikið rok að við stóðum ekki í lappirnar. Nokkrum sinnum hallaði ég mér fram og lét vindinn um að halda mér uppi - svona eins og litlu krakkarnir gera, alla vega ég þegar ég var litli krakki. Svo ef vindurinn kom á hlið við okkur þá hölluðum við í 40 gráður í vindinn til að okkur yrði ekki feykt eftir götunni :o) Hundurinn? Hún var sko að hafa það gott í veðrinu, þetta er Husky veður, því verra því b...

Stretching it

Hvolpanámskeið - eina sem ég virðist hugsa um þessa dagana - í gær. Það var eftir því tekið að Ronja hegðaði sér betur og virtist ekki eins mikill púki og á mánudaginn. Enda var ekki ekki búin að vera alveg skemmtileg við hana, haft hana svona mátulega afskiptalausa og ekki gefið baun eftir gagnvart henni. T.d. núna er svona að með smá svona væl til að láta vita að ég mætti nú alveg sinna henni pínuponsu - bara eitthvað - bara smá. Við vinkonurnar vorum búnar að ganga í marga hringi, hundurinn laus í restina, hoppandi yfir upphækkun, gangandi í kringum stól og vaðandi í gegnum smá hindrun. Sat og stóð eins og ég bað hana. Allt gekk svona ljómandi fínt. Og þá þurfti að reyna á þolrif litlu frekjunnar minnar. Allir hundarnir áttu að leggjast í öðrum endanum á salnum með jöfnu millibili. Við áttum að segja þeim að bíða og labba svo í burtu í hinn endann. Þegar ég er komin þangað segir Ásta "nú bíða þeir þarna í 10 mínútur" HA - róleg, hélt hún væri að grínast - 10 MÍNÚTUR. Ég un...

Er það bara ég?

Eða er það aðeins of mikil tilviljun að gaur hafi játað á sig skipulagningu 9/11 dramað allt saman rétt áður en Bush hypjar sig úr embætti. Er með óbragð í munninum eftir að hafa heyrt þessa frétt. Búin að sjá of margar bíómyndir eða eitthvað, er alla vega ekki að kaupa þetta. Non believer

Stóra fýlan

Fórum í gær í aukatíma á voffanámskeiðið. Það var einróma samþykkt að mæta einn mánudag núna í desember í stað þess að vera í prófi í hundaskólanum 24. desember kl. 19, allir bara eitthvað uppteknir þá. Litla skottan mín stóð sig ágætlega en er á púkaskeiði. Ásta vildi meina að gelgjan sé að kikka inn svona þessa dagana. Hún á bara eftir að versna. Sagði mér að hætta væla svona í henni og hrósa of mikið. Taka á henni með hörku og mátulegri fýlu. Þetta var upprifjunartími og við byrjuðum á að láta hundana bíða liggjandi í eina mínútu. Okkur Ronju gekk ljómandi vel, hún steinlá - já eða svona, hún alla vega lá og beið. Aðeins svona að fylgjast með í kringum sig og hafa auga með samnemendum sínum. Hún var "skemmtilegust" þegar hún átti að bíða sitjandi - var bara ekki stuði. Lagðist alltaf niður, ALLTAF. Ég mátti ganga nokkrar ferðir tilbaka og hífa hana upp á rassgatið. Endaði þannig að Ásta náði í langt band, krækti í hálsólina hennar. Nú var daman bara toguð upp úr fjarlægð þ...

Pestarbæli

BH tók við af KBB, steinlá allan laugardaginn. Missti af fjölskylduhitting í Perlunni hjá föðurfjölskyldu sinni. Við krakkarnir drifum okkur en stoppuðum ekki lengi. Nema KBB sem fékk að vera eftir og fór heim með DH og HMS. Það var ekki hægt að draga hana nauðuga í burtu, allir að föndra stjörnur og voða kósý. Við KEB drifum okkur heim, hann hefur ekki þolinmæði í svona mannfagnað of lengi. Sérstaklega þegar frændur hans tveir eru ekki á staðnum. BH var heima að deyja og vantaði aðstoð. Ég fór í búð og keypti bláberjasúpu og bruður - hann telur það allra meina bót er ælupest gerir vart við sig. OJJ mér verður bara flökurt við tilhugsunina um þessa súpu. Var sjálf frekar pirruð og leið ekki vel. Var kalt, með hausverk og eirðalaus. Endaði á því að leggjast upp í rúm (pestarbælið) ræna sænginni minni og skjálfa þar úr kulda frá kl. 18 til 21. Þá tók BH teppið sem ég hafði sett um fæturna á honum og breiddi það yfir mig og svo sængina þar á eftir. Það virkaði svona líka fínt því mér varð...

Hreinlæti

Skítastandardinn er mismunandi á milli einstaklinga. BH spurði mig í gær hvort ég hefði ekki sett rysuguna hérna í gang undanfarið. Neibb tveir dagar liðu án þess. Bar því við að ég nenni ekki að hlusta á hana á meðan ég er að vinna. Eitthvað fannst hundinum orðið tími á að rysugan sinnti sínu jobbi. Sat hérna í stofunni þegar ryksugan fór af stað. Var frekar hissa því hún er ekki stillt á tíma. stóð upp og kíkti fram og sá Ronju standa yfir kvikindinu sem var að rjúka af stað, hundurinn var jafn hissa og ég. Henni þótti þetta eitthvað minna fyndið samt. Later

Æla og dauð tönn

Við KEB vorum mætt kl. 8:30 í morgun til tannréttingalæknisins, alltaf svo hress. KBB hafði kvartað í morgun undan magaverkjum, mamman tók lítið mark á því. Því miður þá er henni oft illt í maganum á morgnana og fyrsta veturinn hennar í skóla var hún reglulega heima vegna magaverkja þó ekkert amaði svo að henni um daginn. Þannig að hún er send í skólann þrátt fyrir kvart og kvein. Sem betur fer fékk ég ekki ofurreikning frá lækninum eins og ég átti von á. Hélt að það ætti að gera eitthvað stórkostlegt í dag en þetta var bara svona eins og venjulega. Er ég spjallaði við lækninn hringdi síminn, skólinn, ég skellti á. Hélt að Lilja væri að hringja og ætlaði að hringja í hana seinna. EEnn svo hringdi BH, þá fór ég svona að átta mig á að sennilega væri KBB lasin. Skellti samt á hann líka - var að spjalla við lækninn ennþá. Spurði hann um tönnina fínu, hún er mjög sennilega að drepast. Vildi vita hvort þessi rótfylling yrði vandamál vegna teinana. Sem betur fer verður það nú ekki. Þessum tan...

Rétt skal það vera

Spurning um að leiðrétta sig þegar maður hleypur aðeins á sig! Var fúl yfir háu leigubílafargjaldi frá flugvellinum að hótel KEA á föstudagskvöldið 21. nóv. Já sko það var bara ekkert svona dýrt - var 1.410 kr. ekki rúmlega 3000 kr. eins og mig minnti. Enda var þetta eitthvað fáránlegt hjá mér. Þá er það komið á hreint - einu sinni sem oftar þá hef ég rangt fyrir mér. Er orðin aðeins of vön því, eins og barinn hundur þegar fólk rengir mig og segi bara já og amen því oftar en ekki þá man ég bara illa. Það var ekki þannig hérna áður en ég verð víst að venjast því núna! Alveg magnað hvað ég rugla orðum (þú veist Helena) og ríf svo kjaft yfir að ég hafi nú sagt það sem ég ætlaði að segja. Er reyndar hætt því - segi bara, "er það - sagði ég það" Það er allt í rugli í kollinum á mér stundum, fólk getur hlegið að því en mér finnst það alltaf minna og minna fyndið :o) Á það líka til að segja nafnið á einhverjum allt öðrum en ég er að tala við! Það er slæmt, fólki líkar það ekki vel, ...

Bleh

Í gærkvöldi varð afturhvarf á þessu heimili til ársins 1994 - við hjónin fórum í það mál að setja fjármálin okkar upp í excel aftur. Gera okkur grein fyrir í hvað við erum að eyða og hversu mikið. Þ.e. þessir föstu gjaldaliðir - húsið, bíllinn, matur og allt þarna á milli. Nú verður athugað hvar hægt sé að skera niður til að vera ekki alltaf á vonarvöl um hver mánaðarmót. Við höfum nú samt verið að skera niður heilmikið í allt haust eins og allir aðrir. Svona verið að glíma við ósiðina og þetta reddast viðhorfið. Ég eyddi öllu kvöldinu í að raða bókhaldinu okkar sem ég hef trassað samviskusamlega allt árið. Þannig að nú ætti það að vera komið 95% í möppu tilbúið þegar ég þarf svo að græja endemis skattskýrsluna eftir áramót. Mikið getur maður orðið þunglyndur á að skoða reikningana sína frá janúar fram í desember, það hækka bara afborganirnar, alveg sama hvað maður borgar mikið. En það er ljós í myrkrinu. Ég er farin að sjá á einum og einum greiðsluseðli fyrir endann á láninu, það er a...

Jamm

Þegar fólkið á þessu heimili ætlar að vera almennilegt þá mistekst það stundum. Ég lá uppi í rúmi í morgun þegar BH var að fara í vinnuna, var nú samt varla sofandi og heyrði að verið var að raða í uppþvottavélina. Ohh, ætti að vera gleðiefni en hann fékk bara geðillskulegt garg "ÞAÐ ER EKKI ÓHREINT Í UPPÞVOTTAVÉLINNI" Fullur vaskur af leirtaui eftir morgunin, krakkarnir nýfarnir í skólann, og BH ætlaði að vera svo almennilegur að setja allt á sinn stað. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau setja óhreint með hreinu í vélina. Ég varð því að tilkynna mínum manni að þegar vélin er tóm, eða óhreint í henni þá væri ekki fullur vaskur af diskum. Ég raða beint í vélina. Gleymdi alveg að taka það fram að þetta mættu þau svo gjarnan gera líka :o) Grumpy

Hundalíf

Helgin fór ekki alveg eins og áætlað var en við náðum að setja jólin upp hérna inni hjá okkur samt. Það var einungis fyrir þrákelkni KBB sem sparkaði feðgunum út í skúr að ná í kassana niður og svo pískaði hún móður sína áfram í að setja þetta allt saman á sinn stað. Að sjálfsögðu hjálpaði hún við þetta allt saman. En þetta var gert á laugardagskvöldið, ekki um morgunin eins og ég hafði ætlað - minns svaf of lengi til þess. Við fórum í hundana þessa tvo daga og höfðum einstaklega gaman að. Gengum til Eddu í Hlíðartúnið að skila trjáklippum síðan í sumar. Tókum voffa með þó við vitum vel dálæti hennar á svona skepnum. Eftir að hafa spjallað smá stund og fengið laufabrauðsenda úti á tröppum þá héldum við tilbaka. KBB kom með okkur og bað BH hana um að hringja í ömmu sína og athuga hvort heitt væri á könnukvikindinu svo við gætum komið við hjá henni. Jú hún ætlaði að redda því, amman klikkar ekki. Er við vorum komin í Klapparhlíðina gengum við framhjá blokk þar sem ég sá fólk horfa mikið ...