Við BH gengum yfir Úlfarsfellið í dag ásamt Lilju, KBB og Diljá og að sjálfsögðu óþekku Ronju. Hún var laus til að byrja með en þar sem hún missir heyrnina er út er komið þá var hún fljótlega sett í taum. Hún rauk af stað er hún sá mann með þriggja mánaða Labrador hund og sinnti engum boðum um að hafa sig hæga. Þar með var hún svipt frelsinu og BH hafði hana í taumi restina af ferðinni. Ég var nú dálítið hissa hversu margir voru að spóka sig þarna.
Við vorum rúma tvo klukkutíma á þessu ferðalagi. Óðum drullu upp að ökkla upp á fellið en enduðum í snjó og mjúkum mosa uppi á fellinu og á leiðinni niður. Þannig að við vorum ekki svo skítug er við enduðum heima ánægð með góðan göngutúr.
Í gær fórum við í Skálafell ásamt KBB og óþekku Ronju náttlega, og líka fjölskyldunni úr A6. Tókum með okkur sleða því takmarkið var að leika sér aðeins í snjónum. Þarna uppfrá var fullt af fólki, mest snjósleða og fjórhjóla liði. Þannig að við máttum passa okkur í þokunni að verða ekki undir. Við gengum upp að gili og lékum okkur þar að renna okkur niður. Mikið fjör. Ronja skoppaði þarna í kringum okkur og hafði gaman að snjónum. Hún mátti hafa sig alla við til að komast upp og niður í gilinu því snjórinn var sumsstaðar svo mjúkur efst á brúninni. BH og DH renndu sér hverja ferðina á fætur annarri þarna. Ég fór bara einu sinni - en það var gaman. DH endaði eins og snjókarl þrátt fyrir að vera klæddur svörtu frá toppi til táar. AFD var ekki alveg eins hress og við hin, var duldið þreyttur og fékk að kúra í fanginu á mömmu sinni sem alltaf er vel vopnuð af mat og drykk fyrir krílið.
Urðum að drífa okkur svo heim því myrkrið var að skella á ofan í þokuna og tengdó var búin að standa á haus allan daginn við matargerð. Allir spenntir að komast í kalkún í Klapparhlíðinni. Það klikkaði heldur ekki - mmm nammi namm. Það var heilmikið fjör, sextán manns í boðinu og allir höfðu mikið að segja svo lætin í okkur voru eftir því.
Grunar að ég eigi eftir að halla aftur augunum hérna í sófanum yfir sjónvarpinu eins og í gær - dálítið svona þreytt eftir daginn!
Later

Ummæli