Spurning um að leiðrétta sig þegar maður hleypur aðeins á sig! Var fúl yfir háu leigubílafargjaldi frá flugvellinum að hótel KEA á föstudagskvöldið 21. nóv. Já sko það var bara ekkert svona dýrt - var 1.410 kr. ekki rúmlega 3000 kr. eins og mig minnti. Enda var þetta eitthvað fáránlegt hjá mér. Þá er það komið á hreint - einu sinni sem oftar þá hef ég rangt fyrir mér. Er orðin aðeins of vön því, eins og barinn hundur þegar fólk rengir mig og segi bara já og amen því oftar en ekki þá man ég bara illa. Það var ekki þannig hérna áður en ég verð víst að venjast því núna!
Alveg magnað hvað ég rugla orðum (þú veist Helena) og ríf svo kjaft yfir að ég hafi nú sagt það sem ég ætlaði að segja. Er reyndar hætt því - segi bara, "er það - sagði ég það" Það er allt í rugli í kollinum á mér stundum, fólk getur hlegið að því en mér finnst það alltaf minna og minna fyndið :o) Á það líka til að segja nafnið á einhverjum allt öðrum en ég er að tala við! Það er slæmt, fólki líkar það ekki vel, sérstaklega ekki bestu vinum og vinkonum. Þeim finnst lágmark að ég viti hvað þau heita. Sem betur fer er þetta ekki vandamál, er ekki alveg að verða klikkuð. Ekki strax alla vega, verð góð svona um fimmtugt. Amma, sem er rúmlega áttræð, segir reglulega - heyrðu góða, hvernig verður þú þegar mínum aldri er náð? - Púff amma mín, ég vil ekki einu sinni hugsa það. Óska þess bara að vera eins flott og þú ef ég næ svo háum aldri ;o)
Later

Ummæli