Hér eru jólin með hefðbundnu sniði. Við höfum verið hlaupandi á milli staða til að hitta fólkið okkar :o) Ronja kom með okkur til Lóu ömmu í gær - Svandís benti okkur á að hún gæti verið uppi hjá henni bara. Amma er alveg spök með heimsókn frá svona ferfættlingum. En þar sem við vissum að Tinni væri með Rúnari og okkar skotta er alltaf svo hress þá töldum við vissara að hún væri uppi á meðan hann væri niðri. Þau hittust pínu stund og það var fjör. Anna vildi meina að Tinni hafi bara orðið aðeins smeykur við þessa fjörugu tík. Hún er alltaf til í að leika - ALLTAF. Þurfum bara að vera vakandi yfir því að hún verði ekki svona áflogatýpa!
Eftir gott kaffiboð hjá ömmu héldum við til Betu ömmu í hangikjöt og tilheyrandi. Þar fékk Ronja að vera úti í bíl, enga ferfættlinga þar inn! Hjá Ömmu voru flestir komnir, svo gaman að sjá alla og það er alltaf mikið fjör - alla vega mikill atgangur. Dálítið mikið af fólki!
Heimilisfólkið á þessum bæ er mjög lukkulegt með allar fínu jólagjafirnar þetta árið. Allir fengu eitthvað fallegt.
Jólafötin í ár eru fín líka. KEB svo flottur í svörtu gallabuxunum og hvítu skyrtunni og vestinu sínu. Mamman plataði hann í þetta í einni búðinni eftir að hafa hlustað á hann tuða alla kringluna á enda um að þetta væri óþægilegt. Þrátt fyrir að hann hefði ekki einu sinni prófað. Mamman sniðug, fékk ungan strák sem var að afgreiða í Blend til að rétta honum þetta og benda á að þetta væri verulega svalt, gaurinn átti sjálfur svona vesti og skyrtu. Svipurinn frá KEB var óborganlegur, hann sá alveg í gegnum mömmu sína. Setti í brýrnar og horfði á mig með illskusvip en tók samt fötin. Svo var hann bara svona ljómandi lukkulegur með þetta, var ekki eins óþægilegt og hann hafði gert ráð fyrir.
KBB er alltaf ánægð með fötin sín - hún er skvísa þessi jólin í minipilsi og turkislitum bol og turkislitum skóm - litli verðandi unglingurinn.
Það toppar samt enginn mömmuna sem fékk jólakjól þetta árið. Minn kjóll er svartur með svona bleikri blómaröð vinstramegin við miðju framan á kjólnum. Svo er reyrt belti rétt ofan við mitti til að toppa lúkkið. Það er kreppa svo þetta er sannkallaður kreppukjóll - milli fjörtíu og fimmtíu ára gamall :o) Hann kemur frá ömmu Lóu - þannig að hann er ekki bara flottur, hann er virkilega spes og gaman að vera í honum. Mamma dró hann fram fyrir um tveimur árum og var í honum sjálf þau jólin. Ég er búin að hugsa um hann síðan og plataði hann til mín þetta árið.
Er alsæl með kápuna sem ég fékk frá eiginmanninum og krakkarnir toppuðu þetta í ár með því að gefa mér trefil og húfu sem passa svona fínt við kápuna. Hafði keypt mér kuldastígvél sem ganga við herlegheitin þannig að nú er ég tilbúin í veturinn 2009. KEB og KBB voru ánægð með fínu gjafirnar sínar. Segi ykkur betur frá þeirra jólagjöfum við betra tækifæri.
Vona að allir séu að njóta jólanna jafnvel og við hérna í Leirutanganum
Gleðileg jól

Ummæli