Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá október, 2009

Laugardagsrölt

Erum á leið í bæjarferð ég og krakkarnir - vantar smávegis og þarf að flækjast á milli búða. M.a. Ikea - ekki minn uppáhaldsstaður og sérstaklega ekki um helgar. Les svo í blöðunum að það er sko afmælisveisla og kaka kl. 13 - fátt sem ég nenni minna en svona troðningur. Ætla að vera farin þegar þetta byrjar allt saman :o/ En er heppin að hafa séð þetta áður en ég lagði af stað því síðustu helgi átti ég erindi í Hagkaup í Smáralind og þegar ég kem þar að ásamt BH komumst við að því að von er á hæsta manni í heimi fljótlega. Svo við þurftum að troðast þarna í gegnum hersinguna sem saman var komin til að heilsa uppá karlinn. Svo sá ég manninn er hann gekk í gegnum Hagkaup og framhjá snyrtivörudeildinni og VÁ hann er STÓR - yikes mar. Well farinn í bæinn og vona að ég verði komin heim um kl. 13. Það er töluvert skemmtilegra að eyða deginum úti í móa eða uppá fjalli með hunda hlaupandi í kringum mann (eða frá manni LoL). Við KEB ætlum svo í Salinn í Kópavogi kl. 17 á tónleika. Þar mæta tvei...

Kríli minn

Pjakkurinn okkar hann Úlfur er eins árs í dag. Hann fæddist hér í Mos 29. október 2008 ásamt systkinum sínum þeim Ylfu, Jasmín, Draumey, Tátu og Inuk. Þau eru undan Ylfu og Lisko. Við erum svo spriklandi ánægð með hann Úlf okkar að við sjáum ekki eftir því að hafa bætt honum í fjölskylduna. Þau Ronja og Úlfur eru ómissandi hluti af okkur núna og við tvífættlingarnir getum ekki hugsað lífið án þeirra :o) Í tilefni dagsins ætlum við að gefa þeim gott að borða - gotteríð verður kjötsúpu bein. Yummie! Svo kannski drífum við okkur bara um helgina og sleppum þeim lausum til að hlaupa frjáls í fyrsta sinn síðan í maí! Alveg kominn tími á það hjá þeim :o) Later

Röfl í lok vikunnar

Mér finnst umræðan hérna á klakanum um mansal ansi áhugaverð. Hélt fólk í alvöru að mansal þrifist ekki hér á Íslandi?? Og að halda að það sé fyrst núna í gangi er dálítill barnaskapur held ég. Þrátt fyrir að slík mál hafi ekki ratað til dómstóla eða komist í hámæli í fjölmiðlum þá held ég að mansal hafi tíðkast hér í langan tíma án þess að nokkuð hafi verið gert. Fyrirsagnir um að verið sé að útbúa einhverskonar áætlun eða aðgerðalista til að bregðast við mansali pirra mig bara. Af hverju er það ekki löngu búið? Af hverju eru svona áætlanir ekki tilbúnar og farið að vinna eftir þeim núna í stað þess að byrja núna fyrst á einhverri grunnvinnu? Það er ekki eins og að fólk hafi ekki vitað að mansal væri í gangi allt í kringum okkur - af hverju hélt fólk að mansal viðgengist ekki hér líka? Vona að opinberum aðilum sem vinna að þessum málum gangi vel að finna úrlausnir og hjálpa þessum ólánsömu konum. Og það væri ansi gott ef hægt væri að fangelsa þá sem stunda svona þrælahald - helst hend...

Yndisleg helgi

Við fjölskyldan áttum svo góða helgi saman... Kunningi BH fékk sér Boxer hvolp sem nú er orðinn fimm mánaða. Við hjónin fórum ásamt KBB upp í dal að kíkja krílið. OMG hvað hvolpar eru alltaf æðislegir. Hann var svo mikið krútt, hoppaði og skoppaði í kringum hundana okkar og vildi ólmur fá þau til að skoppa og hoppa með sér. Ronja setti upp drottningarsvipinn, sem hún svo undirstrikaði með fallegu tönnunum sínum og góðum urr-rokum öðru hverju. Eins gott að sýna þessu ungviði hver ræður í þessum samböndum. Úlfur var alveg til í að hoppa og skoppa með krílinu en lét aðeins heyra í sér og sýndi honum tennurnar líka þegar við átti. Kríli skyldi læra goggunarröðina í hvelli :o) En þau voru voða góð við hann samt - hann var ekkert étinn á staðnum neitt. Þetta eru samskiptareglurnar bara og okkur finnst alltaf jafn fyndið að fylgjast með þeim tjá sig. Við fjölskyldan erum hins vegar vanari því að hitta eldri hunda og því er það frekar nýtt fyrir okkur að það séu krílin okkar sem urra og sýna t...

Sjaldan fellur...

Var að lesa blöðin áðan og sé að það er allt vaðandi í útsölum... besta mál en ég er víst ekki að fara neitt að notfæra mér það. Spurði KEB hvort hann vantaði eitthvað en mundi ekki eftir neinu sjálf. Hann svona niii vantaði ekkert nýbúinn að bæta í skápinn sinn en nefndi þó að það væri þá kannski helst húfa sem vantaði á kollinn svona þegar fer að kólna. Ég mundi þá eftir að hafa gengið framhjá búð hérna í Þverholtinu sem aðeins er opin á milli 16 og 18. Þar voru fullt af húfum, reyndar mundi ég bara eftir stelpuhúfum. En við ákváðum að skella okkur bara og kíkja því klukkan var nýorðin 16. Urðum reyndar að drífa okkur því drengurinn þurfti að ná strætó 16:30 í fimleika. Gengum inn í búðina og mest voru þetta dömuhúfur sem blöstu við okkur. En pjakkurinn var ekki lengi að pikka út húfu sem hann vildi, tók svona um 5 sekúndur sléttar. Verð að viðurkenna að ég hefði aldrei valið þessa húfu handa honum, reyndar flottasta húfan í búðinni, en ég hefði ekki haldið að hann myndi vilja hana s...

Lífið í Mos...

Við BH fórum á sunnudaginn í langan hjólatúr með hundana með okkur. Þau drógu okkur alla leið yfir í Grafarholtið og stóðu sig bara vel. Ronja mín reyndar var orðin aum á leiðinni tilbaka því ein klóin á hægra afturfæti virðist hafa klofnað aðeins. Þannig að þrátt fyrir að viljinn væri fyrir hendi og hún alveg til í að spretta aðeins stundum þá var hún orðin hölt og aum. Ég vorkenndi henni svo en hún er svo mikill dugnaðarforkur og þrjóskupúki að hún skokkaði samt heim. Ég náttúrulega hjólaði með henni svo hún væri ekki að draga mig líka. Úlfur hins vegar er þindarlaus og þó hann sé orðinn þreyttur þá virðist ekki þurfa mikið til að hvetja hann áfram. Það hjólaði par framhjá okkur á meðan við vorum að athuga loppuna hennar Ronju og hann var friðlaus þar til hann var búinn að ná þessum vitleysingum sem voguðu sér framúr okkur :o) Tilgangurinn með ferðalaginu var að heimsækja Allý og Inga Garðar og fá að sjá litlu shih tzu hvolpana hennar Issey. Og þeir voru sko ferðarinnar virði - svo l...

Skiptu þér af...

Las um litla drenginn sem pressan.is fjallaði um. Litla drenginn sem að lokum var myrtur af foreldrum sínum eftir margra mánaða pyntingar og ofbeldi af verstu gerð. Litla krílið var aðeins 16 mánaða. Læknar búnir að stuðla að því barnið var tekið af heimilinu og komið í fóstur aðeins til að félagsmálayfirvöld í Bretlandi fyndu ráð til að móðirin gæti fengið og "annast" barnið sitt. Þessari frétt fylgdi svo myndband en eftir að hafa lesið viðbjóðinn sem mamman og stjúpfaðirinn buðu barninu upp á, þá gat ég ekki horft á myndbandið. Þetta er sennilega í fyrsta sinn sem ég kíki ekki á mynd eða myndband sem fylgir frétt af þessu tagi, ég bara hafði ekki geð í mér til að sjá meira. Þessi frétt og fleiri líkar ættu að vekja okkur til umhugsunar um öll þau börn sem búa við lélegt eða illt atlæti. Það á að tilkynna til yfirvalda ef maður heldur að eitthvað sé ekki eins og það á að vera. Og yfirvöld eiga að vera hæf til að sjá í hvelli hvort ástæða sé að hlutast til um málefni barna eð...

Oj veðrið...

Krakkarnir báðir heima með slen og slappir, KBB losnar ekki við þennan magaverk þrátt fyrir að hafa verið hitalaus síðan á Miðvikudag. Við ætlum að kúra okkur inni í dag, ég ætla að klára smá vinnu og svo ætlum við að hrúgast yfir mynd í sjónvarpinu og ég ætla að prjóna aðra ermina á peysuna sem á að vera á mig... en er sennilega of lítil - oh well, þá fær hana bara einhver annar! Later

Hóst hóst...

Ég sem hélt að stelpurófan gæti farið i skólann í dag... Það var svo sem ljóst í gær að svo yrði ekki, hún getur varla komið fram í hálfa mínútu og þá skortir hana þrek til að sitja upprétt eða standa. Illt í maganum líka, ekki svona æluverkir samt, hitalaust en vantar alla orku. En elskulegur bróðir hennar ákvað að halda henni félagsskap í dag og er heima hundslappur líka. Sem betur fer eru þau ekki hálfmeðvitundarlaus með háan hita og vesen, en þetta er hundfúlt ástand samt. Ég er búin að eyða vikunni í að spá í dag til að halda afmælið hans og var búin að setja laugardaginn sem markmið en þar sem ömmur og afar eru með læti yfir glötuðum tíma í sumarbústað og ég vil gjarnan eiga helgina fyrir okkur þá var ég komin á það að nota föstudagskvöldið - bjóða liðinu í mat kl. 19. Búin að fastsetja það í huganum þegar hann ákveður að vera heima í dag... og ég ákvað þá að það yrði ekkert afmæli um helgina :o) Hann getur þó ekki kvartað því á þriðjudaginn var lítið matarboð hérna, ma og pa og ...

Afmælisbarnið 14 ára gutti...

Frumburðurinn er 14 ára í dag - Finnst svo stutt síðan hann vakti okkur með látum aðfaranótt föstudagsins 6. október 1995. M.a.s. BH (sem ekkert man) man vel eftir þessari nótt og morgni :o) Það var ekkert rosa leiðinlegt að fá hann í fangið rétt fyrir klukkan sjö um morguninn - no wait, fengum hann víst ekkert í fangið fyrr en um áttaleytið sennilega því læknirinn rauk með kríla upp á vökudeild til að tékka á drengnum. En ljósmæðurnar sögðu að honum yrði sparkað strax niður aftur því hann væri heilbrigður og flottur strákur þrátt fyrir að koma 4 vikum fyrir áætlaðan komudag. Það gekk eftir og við fórum með hann heim fjórum dögum síðar og síðan þá hefur hann látið okkur snúast í kringum litla rassinn á sér :o) Hann fékk afmælisgjöfina sína í morgun. Rosa flotta úlpu sem gaurinn valdi reyndar sjálfur því ekki er mömmunni treystandi lengur til að sjá um fatakaup. Ég hins vegar neitaði að leyfa honum að fá úlpuna fyrr en í dag - innpakkaða og fína. Hann alveg hissa í morgun, setti upp clu...