Fara í aðalinnihald

Skiptu þér af...

Las um litla drenginn sem pressan.is fjallaði um. Litla drenginn sem að lokum var myrtur af foreldrum sínum eftir margra mánaða pyntingar og ofbeldi af verstu gerð. Litla krílið var aðeins 16 mánaða. Læknar búnir að stuðla að því barnið var tekið af heimilinu og komið í fóstur aðeins til að félagsmálayfirvöld í Bretlandi fyndu ráð til að móðirin gæti fengið og "annast" barnið sitt. Þessari frétt fylgdi svo myndband en eftir að hafa lesið viðbjóðinn sem mamman og stjúpfaðirinn buðu barninu upp á, þá gat ég ekki horft á myndbandið. Þetta er sennilega í fyrsta sinn sem ég kíki ekki á mynd eða myndband sem fylgir frétt af þessu tagi, ég bara hafði ekki geð í mér til að sjá meira.

Þessi frétt og fleiri líkar ættu að vekja okkur til umhugsunar um öll þau börn sem búa við lélegt eða illt atlæti. Það á að tilkynna til yfirvalda ef maður heldur að eitthvað sé ekki eins og það á að vera. Og yfirvöld eiga að vera hæf til að sjá í hvelli hvort ástæða sé að hlutast til um málefni barna eða hvort aðeins þurfi að hjálpa fjölskyldu til að laga ástandið.

Las ljóð fyrir mörgum árum sem setið hefur í mér alla tíð síðan - hef kannski póstað því hér áður en mér finnst allt í lagi að rifja það þá upp.

"Misty"

My name is Misty
I'm only three,
My eyes are swollen
I cannot see,

I must be stupid
I must be bad,
What else could have
Made my daddy so mad?

I wish I were better
I wish I weren't ugly,
Then maybe my mommy
Would still want to hug me.

I can't speak at all
I can't do a wrong
Or else I'm locked up
All the day long.

When I awake
I'm all alone
The house is dark
My folks aren't home.

When my mommy does come
I'll try and be nice,
So maybe I'll get just
One whipping tonight.

Don't make a sound!
I just heard a car
My daddy is back
From Charlie's Bar.

I hear him curse,
My name he calls,
I press myself
Against the wall.

I try and hide
From his evil eyes,
I'm so afraid now
I'm starting to cry.

He finds me weeping,
He shouts ugly words,
He says its my fault
That he suffers at work.

He slaps me and hits me
And yells at me more,
I finally get free
And I run for the door.

He's already locked it
And I start to bawl,
He takes me and throws me
Against the hard wall.

I fall to the floor
With my bones nearly broken,
And my daddy continues
With more bad words spoken.

"I'm sorry!", I scream,
But its much too late.
His face has been twisted
Into unimaginable hate.

The hurt and the pain
Again and again.
Oh please God, have mercy!
Oh please let it end!

And he finally stops
And heads for the door,
While I lay there motionless
Sprawled on the floor.

My name is Misty
And I am but three,
Tonight my daddy
Murdered me.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
úff já - I say no more
kv. MSI

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...