Er að reyna að vera dugleg hérna heima - nota dagana úti þegar gott er veður. Var í dag í því að pússa vegginn við pallinn, grunnaði svo það sem ég er búin með. Veggurinn er svo flottur núna hérna inn að húsinu. Klára þetta vonandi á morgun alveg, þ.e. að pússa þetta það er leiðinlegast. En það á að rigna á morgun held ég þannig að sennilega verð ég hérna inni að þrífa. Náði loksins að versla líka, hef ekki farið í matvöruverslun síðan á fimmtudaginn í síðustu viku, geri aðrar húsmæður betur. Þetta er með því leiðinlegra sem ég geri, versla í matinn. Fór og hitti skólastelpur á Vegamótum, fengum okkur að borða saman og fengum uppdate hjá hópnum um hvað allir eru að gera, hafa verið að gera og eru að fara að gera. Tvær eru að skrifa BA ritgerð, ein að koma eftir 6 mánaða vinnu í Kabúl og önnur að fara í 6 mánaða vinnu í Kabúl. Nóg að gera hjá þessu fólki. Ég var í aðeins öðrum húsmæðrapakka, heima að hugsa um garðinn og gera pallinn fínan. En ég er alveg róleg byrja í brjálæðinu aftur í...