Fara í aðalinnihald

You Go Girls

Flottar í íslenska fótbolta landsliðinu bökuðu Serbana. Spurning um að þær fari að kenna karlaliðinu hvernig á að gera þetta.
"Þú kaupir aldrei pæjuföt á mig" Já já daman er komin heim, ég keypti á hana topp í Zöru á hana og þetta var svona nafladæmi sem hún var hæstánægð með. En mamman var lítið hrifin og ég skipti honum og við keyptum annað í staðinn. Benti krílinu á það að hún væri bara alltaf pæja það þyrfti ekkert að bera naflann til að vera pæja. Hún var alsæl í Ölver og ætlar aftur að ári og þá að sjálfsögðu í Ölver, nennir ekki að ræða Vindáshlíð. Hún hefur aldur til að fara þangað á næsta ári, en hún fær alveg að ráða þessu. Ég er ánægð með hve vel tókst til og hversu ánægð hún er. Hún talaði stanslaust í 3 klukkutíma að segja mér sögur og syngja fyrir mig lög sem hún lærði. Kannast nú við nokkur síðan ég var sjálf að gaula þetta í KFUK. Nú er bara gaurinn eftir og ég vona að það sé eins gaman hjá honum og hann vilji fara aftur næsta sumar. Hann er reyndar að fara aftur í Skóginn í lok ágúst. Þá er feðgaflokkur og þeir bræður og pabbi Baldvins fara allir saman með syni sína. Hansi með sína þrjá og Baldvin með Kjartan Elvar og Björgvin með Anton og Jón Gísla. Vona að Björgvin komi líka, þeir feðgar komust ekki síðasta ár og var sárt saknað. Annars fóru Pétur Steinn og Gummi á síðasta ári og fara væntanlega aftur núna þannig að þetta er voða gaman og þau bíða allt árið eftir feðga- og feðginaflokki.

Fréttir dagsins eru þær að frúin er búin að pússa vegginn HALELÚJA og grunna hann líka allann. Þannig á morgun get ég vonandi borið á pallinn og vegginn og klárað þetta. Farið og keypt sumarblómin, svona áður en sumarið er búið.

Baldvin er að vinna lengi í kvöld þannig að það er bara ég og Karlotta í mat. Ætlum að grilla okkur pylsur og nú er byrjað að garga á mig um hungur so I got to go.

O&O

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með pallinn. Ég verð nú bara að koma að kíkja á ykkur þegar ég er komin í frí. Hehe þarf maður sumarfrí til þess að fara upp í Mosó. Lýtur allt út fyrir það :) kv Helga.
Lóa Björk sagði…
Allir velkomnir - það er orðið svo flott hérna að ég er að springa úr monti :)

Lóa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...