Fann ekki endemis kassann og varð að slá grasið án hans og raka svo allt á eftir. Bölvað bull er þetta - garðurinn ekki næstum því eins fínn á eftir. Þyrfti að slá aftur á morgun þegar bletturinn hefur þornað meira, sló hátt í dag svo ég kæmist í gegnum þetta allt saman. Krakkarnir hjálpuðu mér og við vorum furðufljót að þessu, en ég er komið á sporið með nýjan kassa læt ekki bjóða mér þetta kjaftæði lengi. En það þarf að sérpanta gripinn - tala við einhvern í fyrramálið sem veit meira um málið og vona að hún geti bjargað mér. Annars verður keypt ný sláttuvél ekki seinna en strax, svo verður Baldvin lokaður inni í bílskúrnum þar til hann er orðinn þannig að hægt sé að ganga um hann eins og á eðlilegu heimili. Verst að hann myndi sennilega hverfa líka eins og flest annað sem endar þarna inni. Fór í að grófhreinsa þau beð sem ekki var búið að ganga á og á morgun ætla ég að byrja að gera þau almennileg - mikið svakalega verður gaman að vera úti í garði þegar þetta er búið. Hreinsaði aðeins úr rennunum hérna við pallinn, vona að það hætti að leka á okkur úr þeim eftir hreinsunina. Þvílíkur viðbjóður sem kemur úr rennunum, hef samt grun um að þetta hafi ekki verið eins slæmt og það getur orðið.
Ég er orðin hundleið á köngulóm, þessar hlussur eru hérna úti um allt hjá okkur - þvílíkur óþrifnaður af þessu utan á öllu húsinu. Ég ætla ekki að hlusta á eiginmanninn þetta árið nú verður eitrað upp í þakkantinn í þeirri von um að þessum viðbjóði fækki. Heyrði af fjölskyldu þar sem hreiður var fyrir utan herbergisgluggann hjá einu barninu og einn morgunin var allt morandi í þessum kvikindum inni í glugganum...ojjjjj.
Baldvin rauk út í morgun - beint upp í vél til Kaupmannahafnar, þaðan var flogið til Brussel og á morgun er það Tyrkland, Istanbúl. Nóg að gera, hann er væntanlegur heim á laugardaginn, eins gott að ég verði búin að fá útrás í beðunum og kassinn á sláttuvélina kominn áleiðis til landsins svo hann fái ekki bara hvæs og skammir við heimkomuna. Dálítið fúlt að þurfa að vera í síðerma peysu við þessa arfatínslu - annars rispar maður sig út um allt á handleggjunum, allur úti í sárum eftir daginn. Gleymdi mér aðeins í dag, hafði ýtt upp peysunni og sit uppi með stóra skrámu, ekki mjög smart né þægilegt. Verð náttlega að taka það fram að í allri garðvinnu er nauðsynlegt að vera með tónlist í eyrunum. Ég prufukeyrði nýja spilarann og virkar hann fínt, dempar óhljóðin í börnunum mínum þegar þau byrjað að tuða, stríða, garga og rífast í hvort öðru.
Moldvarpan

Ummæli
kv Fríðan Jákvæða