KEB tók þátt í fimleikamóti FSÍ í dag. Mótið var haldið í Ármanns-salnum, þannig að hann var á heimavígstöðvum. Honum hefur farið mikið fram síðan hann tók fyrst þátt í móti í haust, svo mikið að mamman sér mikinn mun í hvert skipti. Og í dag kom árangurinn í ljós, hann fór heim með 4 verðlaunapeninga, keppti í sex greinum. Fékk tvö silfur og tvö brons. Nú er bara að vinna í að ná gullinu. Hann klúðraði gólfæfingum glæsilega, gleymdi sér alveg og var dreginn niður fyrir að gera ekki ákveðnar æfingar - kemur ekki fyrir aftur. Ég náttúrulega sá það ekkert, fannst hann bara flottastur eins og alltaf, hann þurfti að segja mér að hann hefði gleymt sér. Nú er bara stefnan að ná betri árangri og komast upp um þrep svo í kjölfarið. Hann er í fjórða þrepi þannig að stefnan er bara upp á við. Annars er aðalmarkmiðið að hafa gaman að þessu og geta alltaf meira og meira, það er mesta fjörið og það hefur honum gengið vel hingað til. Er með skemmtilegum strákum í hóp og að gera skemmtilegar og krefj...