Fara í aðalinnihald

Aldrei að segja aldrei

JJJIIII það er eins gott að það sjái þig enginn á leiðinni heim!

Tengdamóðir mín mælti þessi orð er ég var að fara frá Helenu í gær eftir að hafa ekki tekið eftir neinu óviðeigandi klukkutímann sem við spjölluðum þrjár saman. Eina sem Helena hafði til málana að leggja var - huh, ég færi nú svona út í búð ef ég þyrfti. Smá kynslóðabil!

Var í Þjóðarbókhlöðunni fyrir tveimur eða þremur árum með stelpunum í kaffíteríunni, þessari rándýru, þegar ég sá fullorðinn strák (um tvítugt - nógu fullorðinn) í náttbuxum í röðinni við afgreiðsluborðið. Held að það hafi verið í fyrsta sinn sem ég sá manneskju í náttfötunum úti - alla vega fullorðna manneskju. Man að mér fannst þetta fyndið - öfundaði hann sennilega dálítið því þetta er náttúrlega hrikalega þægilegur fatnaður. Aldrei myndi ég fara út í náttfötunum, það er nú allt í lagi að klæða sig áður en maður fer meðal fólks.

Ég á að vera dugleg að labba um, helst aðeins að fara út, lengra í dag en í gær. Og þegar Helena hringdi og bauðst til að koma með afgangsveitingar handa mér síðan deginum áður þá greip ég tækifærið og sagðist ætla að rölta til hennar frekar. Það þarf alltaf að sparka mér út í labbitúr, þarf að hafa einhvern tilgang - annan en að rölta í hringi. En yikes ekki nennti ég að klæða mig, ekki séns. Hárið sleikt aftur í tagl, náði að bögla því saman og svo bara spöng til að halda þessu í skefjum. Sokkar, skór og úlpa og ég rölti af stað, jebb á náttbuxunum - ferlega nice.

Svilkona mín og tengdamóðir tóku ekki eftir neinu, gerðu alla vega engar athugasemdir. Það var ekki fyrr en ég var að fara að rölta tilbaka að ég minntist á að ég vildi alltaf geta verið í svona þægilegum buxum. Þá fékk Lilja sjokkið - að láta sjá sig svona úti - ekki gott til afspurnar. Hún leyfði mér samt að rölta heim, lofaði að fara á milli húsa í hverfinu ekki upp á aðalgötu he he.

Seinna um kvöldið ákvað ég að skella mér á Sólón, hitta VN skvísurnar, bara smá stund - Helena fór með mér. Er nú að fatta það núna að sennilega hefur tengdamóðir mín haldið að ég færi þangað á náttbuxunum líka því hún beið þar til ég var tilbúin til að vera viss um að ég væri sómasamleg til fara - ég hlýt að hafa verið í lagi því ég fékk leyfi. Ef einhver er að velta fyrir sér hvað hún var enn að gera hjá mér eftir kvöldmat þá er rétt að það fylgi sögunni að hún er svo yndisleg að sjá okkur fyrir kvöldmat á meðan húsmóðirin er í hlutverki sjúklingsins. Hmm af hverju sér BH ekki um matinn? Because we would die - you know, of hunger!

PJ´s

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Thíhí síðasta setningin er óborganleg, hló upphátt. Baldvin lætur þú þetta fréttast hehe. ;) Kv Helga.
Lóa Björk sagði…
he he - og skammast sín ekki baun :o)
Honum til varnar þá er hann að vinna rugl mikið núna!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...