Er að reyna að koma mér út úr þessum keyra krílin út um allt pakka. Gengur ágætlega. KEB er mjög sjálfstæður að koma sér á milli staða í strætó, á hjóli eða labba. Erfiðara gengur að fá KBB til að labba á milli staða. Kemur kannski helst til af því að hún hefur ekki svo mikinn tíma að labba t.d. í tónlistarskólann á föstudögum. Á mánudögum og þriðjudögum fer hún með rútunni beint úr skólanum í íþróttir. Þá finnst mér ómögulegt að sækja hana ekki því hún er ekki búin fyrr en kl. 17. Það er langur dagur hjá barni í 3. bekk að vera að heiman í fullu fjöri frá kl. 8 - 17.
Er samt að reyna að koma henni í strætó. Reyndum síðasta föstudag, ég var ekki á bíl og nennti ekki veseni og sendi barnið í strætó með skýrum leiðbeiningum um hvenær hún ætti að fara út. Mín hringdi fimm mínútum síðar og taldi sig vera komna of langt. Hún komin eitthvað upp í Helgalandshverfi og mátti hinkra á meðan strætó kláraði hringinn og kom svo tilbaka. Þá sagði strætóbílstjórinn henni hvar hún ætti að fara út.
Taka tvö - sendi hana í strætó aftur núna. Hún lúmsk auðvitað, spurði hvort ég ætlaði ekki að keyra hana því þetta gekk nú ekki alltof vel síðast. Niii ég taldi að fólk lærði af mistökum sínum og vandaði sig betur næst. Hún brosti bara og sagði já það er rétt og svo fórum við aftur yfir það hvar hún ætti að hringja bjöllunni og fara út. Ekki hefur hún hringt eftir að hún fór svo ég geri ráð fyrir að allt hafi gengið vel. Verra þótti henni að þurfa að koma sér heim sjálf aftur, þarf sennilega að labba tilbaka. Neibb - hún var að hringja ætlar að taka strætó tilbaka :o) Fínt að komast útúr þessu keyra alla útum allt. Þau hafa haft það svo gott að mamman er alltaf til taks hérna heima og við höfum notfært okkur það. Nú hættum við því, alla vega svona eins og hægt er.
Later

Ummæli