Nú er úti veður vont, verður allt að klessu.
Það er eins gott að vera ekki með lausamuni þarna úti núna. Þeir koma þá kannski bara inn um gluggann og þá erum við í vondum málum.
Fór í bæinn og prófaði veðrið. Keyrði Kjartan og Pétur á Holtaveginn og fór með KBB í leiðinni í Hagkaup í Holtagörðum. Hún skipti þar nokkrum afmælisgjöfum og fékk nokkur PetShop dýr í viðbót. Það er dálítið leikið með þetta allt saman þessa dagana.
Ég er svona að vona að þetta ágæta veður verði gengið niður í fyrramálið - hætt við að við mæðgin verðum dálítið blaut og hrakin við útburðinn. Sennilega myndum við bara vera heima í svona látum - já held það bara. Það er ekki þess virði að deyja þarna úti fyrir Moggann.
Vá það er að bæta í vindinn hérna - mér er hætt að standa á sama - eldingar og GEÐVEIKAR ÞRUMUR. Nánast eins og í Florida um árið - þar var maður orðinn ansi vanur og kippti sér ekki lengur upp við smá ljósashow og læti á himninum. Held ég myndi drukkna ef ég færi út núna.
Spurning um að kveikja á nokkrum kertum og hafa það bara notalegt hérna inni í þessum látum - vona að rafmagnið haldi inni svo það sé hægt að glápa á sjónvarpið.
Kósí kósí

Ummæli
Góða ferð í skíðaferðalagið og komið öll heil heim :o)