Ég er ekki í standi til að bera út með syni mínum þannig að faðir hans tók við hlutverki útburðarins. Hverfið sem KEB hefur verið með er ekki hérna í næstu götu og því förum við með honum. Erum að bíða spennt eftir einhverju hérna nær okkur til að hann geti farið bara einn út. BH er ekki alveg hress með þetta nýja jobb sitt en er alveg sjúr á því að þetta fer í ferilskránna, það er engin spurning. Um miðja viku var hann að því kominn að borga krakkanum bara fyrir að vera heima á morgnana í stað þess að brölta út í öllu veðri um hánótt. Hann getur náttúrulega ekki látið það fréttast um sig að hann fari snemma að sofa og því vakir hann hérna til miðnættis á hverju kvöldi og skríður svo framúr kl. 5:45 með bauga niður á hné hálfsofandi og fer út með stráknum.
En nú vaknar hann við fyrsta hanagal og rýkur af stað eins og elding. WHY? Þarf að spyrja? Hann er svo lukkulegur því einn morguninn mætti út á hlað stífmáluð húsmóðir nýstigin úr sturtu með sleikt hárið aftur í hvíta frotte náttsloppnum eins og engill í náttmyrkrinu. "Á ég ekki bara að taka þetta hjá þér?" Svo hann rétti henni blöðin og morgninum (og næstu morgnum) var reddað. Nú er ekki talað um annað en FrotteKroppinn (ekki flotta kroppinn) þegar þeir feðgar eru að fara af stað með blöðin.
Eins og gefur að skilja bíð ég spennt eftir að taka við blaðburðarstarfinu aftur. Því ég vona náttúrulega að það komi á móti mér brúnkusprautaður sterabolti ber að ofan, með hvítt handklæði um sig miðjan, og taki við blöðunum hjá mér einn morgunin þannig að ég geti gengið með aulaglottið það sem eftir lifir þess dags og sagt af því sögur þar til ég kemst í betra söguefni. En auðvitað væri betra að það myndi gerast svona með sumrinu, þá er meiri birta svo ég geti virt hann vel fyrir mér. Svo myndi ég segja Helenu á hverjum degi frá þessum massagaur og láta hana vita hvar hann býr svo hún geti mætt í felulitunum með sjónaukann og setið um hann þegar henni leiðist, jafnvel tekið myndir og sent áfram á netinu. Ef einhver vill þannig póst setji netfangið sitt bara hérna í comment að neðan, fullum trúnaði heitið :o)
DreamGirl

Ummæli