Er svooo hress - vakandi síðan kl. 5. Ætlaði ekki að nenna framúr en veðrið var ekki nógu slæmt til að kúra lengur. Bárum út í tæpa tvo tíma í þessu líka ágætis veðri, ekkert hægt að kvarta yfir því. Komum svo heim og dunduðum okkur - las moggann, kríli í tölvuleikjum. Svo vantaði okkur að brenna þessari aukaorku sem við erum svo uppfull af hérna. Við KEB skelltum okkur í líkamsrækt. Nennti ekki í bæinn og prófaði World Class hérna í Lækjarhlíðinni - á staðinn sem ég ætlaði aldrei að láta sjá mig inná. Þoli ekki svona rými þar sem maður stendur í upplýstum sal og blasir við úti á götu því það er ekkert fyrir risastórum gluggunum. Sorry kæru arkitektar og flottheita fólk þetta er ekki að virka. Það eru fleiri en ég sem hafa ekki áhuga fyrir að vera eins og api í búri til sýnis rennsveittur og rauður í framan. Lét mig hafa það, nennti ekki í bæinn. Fyrir utan að ég rennsvitna ekki neitt því miður. Má ósköp ekkert reyna á mig - geri allt frekar létt, meira til að hita upp vöðvana og svo teygi ég heilmikið á eftir - aðalmálið eru teygjurnar til að losa um eitthvað í vöðvunum - bólgur eða eitthvað álíka stupid. Sem betur fer er tækjasalurinn ekki úti á götu líka.
Nú er bara málið að fara í bæinn og athuga hvort maður fái sómasamleg náttföt til að taka með sér á spítalann - jebb minns á leið inn á Landsa. Ekkert til að hafa áhyggjur af - enginn að fá sjokk hérna - ekkert alvarlegt. Er reyndar svo fílhraust að læknaneminn sem spjallaði við mig í innlögn á fimmtudaginn sagðist bara ekkert hafa við mig að tala mikið - ég væri svo hraust. Týpískt ég - fer á spítala til að láta slá mig niður. Fer inn í fínu formi og kem öll lemstruð út aftur, frekar öfugsnúið. BH spurði mig hvort þetta yrði mikið mál eftir að ég spjallaði við liðið á fimmtudaginn - niii held ekki, ekki meira en síðast. Það hnussaði bara í honum - já já þú setur viðmiðin kannski heldur hátt.
Spurning um að læra eitthvað í dag líka - já já bara á eftir, ef ég sofna þá ekki þegar ég kem heim á eftir - það er klassískt.
Solla stirða

Ummæli