Árið 1994 ákváðum við BH að gifta okkur 28. maí það sama ár. Búin að græja allt saman og við klár í slaginn. Þegar BH hringir svo í prestinn í mars eða apríl kemur í ljós að karlinn er alveg miður sín - upptekinn þennan dag og hafði ekki haft símann okkar til að láta okkur vita. Allt á fullt öllu raðað upp á nýtt og nú var 18. júní dagurinn sem við völdum. Sjö árum seinna varð þessi dagur, 28. maí, dagurinn sem ég lagðist undir hnífinn í fyrra skiptið. Verst að ég hafi ekki verið að blogga þá - það gerðist svo margt í framhaldinu sem ég væri til í að muna betur núna. Margt mjög spaugilegt sem gaman væri að eiga skrifað niður. T.d. þegar ég fór í myndatöku og þær notuðu skuggaefnið, eða þegar ég fór í seinni aðgerðina og þá til háls, nef og eyrnalæknis á Borgarspítalanum. Eða í innlögn í fyrra skiptið þegar skurðlæknaneminn var á spjallinu. Hún var líka yndisleg gamla konan sem lá með mér á stofu í seinna skiptið í febrúar 2004. Þýsk kona sem bablaði á þýsku uppúr svefni :o) Það sem hen...