Fara í aðalinnihald

Nýting auðlinda...

Var að hlusta á fréttir - mótmæli við íslenska sendiráðið í Bretlandi! Jú jú við vonda fólkið á fangaeyjunni ætlum að veiða nokkrar hrefnur og það í atvinnuskyni núna. Skamm skamm heimsku eyjaskeggjar.

Endilega kæru Bretar mótmælið svolítið - við hérna hinum megin við Atlantshafið höldum bara áfram að velta fyrir okkur hvers vegna í ósköpunum þið sendið ykkar veiðimenn til annarra ríkja að skjóta fólk.

Finnst alveg merkilegur tvískinnungur í Bretum og Bandaríkjamönnum þetta með hvalveiðar og selveiðar o.s.frv. Skil ekki af hverju þetta fólk eyðir ekki meira púðri í að stoppa sína eigin landa í drápum á venjulegu fólki í fjarlægum löndum!

Las nú í vor grein í mogganum - man ekki alveg hvernig þetta var sett upp. Ragnar Axelsson ljósmyndari hafði verið á Grænlandi (held örugglega Grænlandi). Þegar maður sá hann draga upp myndavélina varð hann hvumsa og spurði hvort hann væri frá einhverjum af þessum friðarsamtökum og jafnframt hvort hann hefði séð hænur skoppa þarna um? RAX gat róað gaurinn með því að hann vildi bara taka myndir - væri ekki þarna á vegum neinna samtaka. Gamli maðurinn fræddi hann þá á því að það væri svo skrýtið þetta fólk sem kæmi þarna til að stoppa nýtingu landsmanna á gæðum lands síns - talaði um að það ætti bara að éta hænur og slíkt. Málið er bara að þarna eru engar hænur!!! Alla vega ekki í því magni að hægt væri fyrir þorpsbúa að lifa á þeim - held að þær hafi einfaldlega ekki verið til staðar.

Fólk sem telur sig vita allt best en býr langt í burtu, þekkir ekki sögu þjóða né staðhætti, ætti kannski bara að halda sig við sína eigin þjóð og einbeita sér að heimahögum.

Ég alla vega ætla að styðja selveiðar og hvalveiðar og lundaveiðar og kanínuveiðar og hvað þetta allt heitir - svo lengi sem veiðarnar eru skynsamlegar og "mannlegar" - hvernig sem það er nú hægt. Alla vega held ég að fólk verði bara að horfast í augu við það að manneskjan er KJÖTæta - þrátt fyrir að sumir hafi kosið að leggja sér bara grænmeti til munns og svo býsnin öll af vítamínum til að bæta sér upp skortin þegar ekkert kjöt er í fæðunni.

Minn punktur er þessi - fólk verður að athuga aðstæður á þeim svæðum sem það er að skipta sér af. Þýðir ekkert að teikna krúttlega mynd af sel og garga svo "Ekki drepa krúttin"

Við Íslendingar gætum t.d. farið af stað með herferð um illa meðferð á svínum í Danmörku - það er örugglega ekki fallegt um að litast á svínabúum þar núna. Allt meira og minna risabýli sem minna á verksmiðjur. Þetta eru ekki bóndabæir lengur sem rækta svínin við mannlegri aðstæður!

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...