Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júní, 2010

Heima er best

Er komin heim - hver hefði trúað því ? Ég er svo hress að ég svíf um á bleiku skýi - engin ógleði, ekkert lyfjamók og Höskuldur skrifaði ekki einu sinni lyfseðil fyrir verkjalyfjum. Bara taka Panodil eða Paratabs eftir þörfum. Ligg í fína rúminu MÍNU og hef það nice - horfi á Klovn með KBB. Vildi óska að ég hefði átt þetta rúm í síðustu tvö skipti samt líka. Þokkalega sem það hefði verið gott því þá virkilega þurfti ég á því að halda. En það er búið og nú bara lítill skurður, þvert á hálsinn reyndar í þetta sinn. Það var ekki skorið ofan í gamla örið eins og síðast því æxlin/eitlarnir voru töluvert aftar og ofar. Þannig að nú er ekkert sárt að borða eða neitt. Andaði sjálf í aðgerðinni, voru bara með öndunarvél á kantinum tilbúna ef út í það færi skilst mér. Minns er sumsé kominn heim byrjuð að rífa kjaft og skipa fyrir :o) The Boss

Tíst...

Gengur ágætlega að gera það sem ég vil vera búin með fyrir miðvikudaginn. Sultaði í gær og kláraði það. Þreif í dag, þó ég viti alveg hvernig þetta verður hjá mér á morgun - skítugt. Nú bíður mín lopapeysa sem ég á aðeins eftir að festa tölurnar á. Græja það núna bara - glápi á eitthvað í sjónvarpinu á meðan. Á morgun þarf ég að klára að græja allt sem viðkemur Danmerkurferð frumburðarins. Svo þarf líka að klára allt sem heitir mánaðarmót hjá Rögg og hérna heima. Ætla í garðinn á eftir líka og eftir matinn. Ekki veitir af - aðeins smá andlitslyfting áður en ég fer og verð óvinnufær í smá tíma. Hugsa að ég láti öðrum fjölskyldumeðlimum eftir að slá grasið. Sé til. BH er nú ekki byrjaður á því sem hann ætlar að græja fyrir mig. En það verður vonandi gert á eftir. Veit af fenginni reynslu að ég get ekki lesið uppdópuð og vitlaus að drepast í hálsinum. Þannig að ég dreif mig á bókasafnið og tók hljóðbækur. Maður verður að bjarga sér. Því miður sé ég ekki að ég geti eða nenni að hafa hjá mé...

Rabarbari

Er að sulta loksins - ætlaði að vera löngu búin að þessu. Setti fimm kg í pott og nú er bara að sjóða þetta og þrífa krukkurnar. Koma þessu svo í krukkur og þá erum við góð með rabarbarasultu fyrir árið fjölskyldan. Ég á hins vegar svona 15 kg í viðbót af rabarbara. Búin að taka hann upp og skera af honum endana. Ef einhver vill fá í sultu eða pie þá er hinn sami velkominn og má taka eins og hann vill á meðan birgðir endast. Það sama á við í haust þegar rifsið er tilbúið. Ég þarf svona 3-4 kg fyrir árið, jafnvel tvö. En á trjánum eru svona 20+ kg svo það eru allir velkomnir á meðan eitthvað er á trjánum, svo lengi sem ég fæ mín 3 kg lágmark ;o) Húsmóðir í sveitinni

Awesome

Fórum í morgun áleiðis að Botni í Hvalfirði. Hundar og menn spenntir að hefja gönguna. Ég var nú aðeins svona á nálum með allt þetta upp í móti. Er ferlega mikill ræfill í að ganga upp - get gengið endalaust á jafnsléttunni. Verð líka að segja að mér fannst skemmtilegra og auðveldara að fara niður þrátt fyrir að Ronja mín var mjög dugleg í toginu. Fórum vinstra megin við gilið upp. Vel bratt á köflum og geggjað útsýni og gljúfrið magnað. Endalaust hægt að dást að náttúrunni. Maður verður samt að vera vakandi og horfa fram fyrir sig og niður fyrir sig til að vera með á nótunum. Fylgjast með voffanum sínum sem er bundinn við mann. Erfitt að ganga upp sums staðar en vel þess virði. Komum að ánni uppi og ætluðum að fara yfir hana en sáum fljótlega að erfitt yrði að komast upp á fjallið hinum megin. Svo við gengum áfram upp okkar megin og fórum yfir ánna ofar. Eina sem ég gat hugsað var ÓNEI meira fjall hinum megin við ánna - erfitt, er að deyja. Fæturnir á mér bera mig varla... En það var ...

Í morgunsárið

Er að hlusta á Bylgjuna - Kristinn H. Gunnarson, fyrrverandi þingmaður, er að tala við þáttastjórnendur og gaur sem ég veit ekki hver er. OMG er maðurinn for real - var hann í alvöru á þingi. Hártoganir og orðaleikir í kringum lán og lánasamninga eru ótrúlegir. Maðurinn á hagsmuna að gæta - það hlýtur að vera því hann er sannfærður um að fólk vilji ekki borga lánin sín tilbaka. Bölvað pakkið vill bara borga það sem það tók að láni með eðlilegum vöxtum. Af hverju getur fólk ekki bara borgað tvöfalt það sem það tók að láni? Hann er bara ekki að skilja þetta. For crying outloud þessir kjánar allir eru að gera mig gráhærða. Dáldið svona eins og útlendingarnir allir - hátt og lágt settir - sem telja að Íslendingar vilja ekki borga krónu í þennan IceSave drullupoll. Þrátt fyrir að margoft hafi verið sagt að Íslendingar ætli að bera þær byrðar en vill að samið sé um vexti þannig að við eigum kannski séns. Er líka gapandi bit að lesa sumar sögurnar af fólki sem tók lán á lán ofan, atvinnulaust...

silly people

Hver sagði að Ronjan mín vildi ekki draga og væri bara drottning og allt það? Mín er sko eitthvað að sanna sig. Fórum Úlfarsfellið um daginn með Viktori og Sisku - Alexandra og Friðrik ásamt Spörtu og Töru komu líka upp en fóru niður svo aftur að bílastæðinu. Við hin gengum yfir og niður hinum megin og að Reykjalundi - þar var bíllinn hans Viktors og við gátum keyrt til að ná í bílinn okkar. Gengum 7 km á rúmum tveimur tímum. Ronja dró bara fullt á leiðinni upp og uppi og svo niður aftur, það var verra. Mátti hafa mig alla við að halla mér aftur til að vega upp á móti hressu tíkinni minni. Ánægð með hana. En sá líka að ég fer nú sennilega seint með hundana mína báða ein þarna upp eða upp eitthvað annað. Fer þá sennilega rassgatinu niður aftur því Úlfur gefur enga miskun og Ronja er að draga stíft líka. Hafði ekkert hreyft þau í dag og ákvað að draga KBB með mér í hjólatúr með þau til að vera fljótari og komast heim í rúmið. Er duldið þreytt svona í þessum útburði á morgnana en að fara ...

Note to self...

ALLTAF AÐ VINNA ALLT Í TÖLVU STRAX. Tók aðeins lengri tíma en ég gerði ráð fyrir að setja handskrifað úr stílabókinni í Excel hjá mér :o/ Á ennþá eftir tvær kvinnur. Og ég sem ætlaði að klára það í gær og then some. Rabarbarinn hefur það ennþá gott úti í garði. Geri ráð fyrir að grípa hann inn í dag. Fór samt til mömmu í gær til að vinna í lopapeysunni. Endaði þannig að hún saumaði niður listann fyrir mig því ég var bara ekki að gera þetta almennilega - ég og mínar tvær vinstri hendur og tíu þumalfingur - damn it. en nú á ég aðeins eftir að sauma niður listann að innan, fela nokkra enda (búin með 99% af þeim) og festa tölur og þá er peysan tilbúin til að pressa hana og daman getur fengið hana. Ef hún er ekki vaxin uppúr henni. Byrjaði á henni í febrúar. Kjánalegt að hafa hana svona lengi ofan í tösku án þess að gera nokkuð! Verð duglegri næst að halda áfram. Bar út með KEB í morgun - fín aðferð til að koma mér á fætur. Nú klára ég að slá inn í Excel og ríf upp rabarbarann og sé til hvo...

Átak

Well - ritgerðarsmíð í dag BArnið mitt verður að veruleika þó síðar verði. Í dag ætla ég að koma handskrifuðum upplýsingum í Excel og reyna að skipuleggja þetta allt þannig að auðvelt verði að skrifa uppúr þessu. Svo ætla ég að koma lista á blað yfir allt sem ég ætla að lesa til að afla mér upplýsinga frá spekingum sem vita allt betur en ég. Þegar þessu er lokið, vonandi í dag, þá er ég ready á safnið á morgun til að ná mér í fleiri og ítarlegri upplýsingar til að troða í Excel skjölin mín. Ritgerðin gengur svona hægt og bítandi. Verð að viðurkenna tregðu mína til að eyða öllum deginum dagsdaglega á safninu. Það er bara svo einstaklega döh að vera þarna og þurfa að fara í mat eitthvað annað - sérstaklega þegar maður er einn, frekar léleg í því. Steinunn reyndar er þarna líka mikið og við höfum stundum fengið okkur kaffi saman. Brýtur upp daginn. Svo hef ég skottast til ömmu í Miðtúni líka - aldrei leiðinlegt að spjalla við ömmuna sína. En ég hef oftar en ekki fengið mér bara hádegismat...

flutt út

Ég ákvað í gær að drífa í að slá grasið því ég vissi að það myndi sennilega rigna um helgina. Hélt ég myndi drukkna í eigin svita þarna því það var svo heitt úti. Ákvað að láta það eftir dóttur minni að tjalda litla tjaldinu bara þrátt fyrir rigningarspá. Hún er hæstánægð með þetta og svaf að sjálfsögðu þarna úti í nótt. Bara ein - engin vinkona í þetta sinn eins og alltaf áður. Henni er alveg sama, trítlaði bara út eftir sjónvarpsgláp og bauð góða nótt. Pabbi hennar var steinhissa og þegar hún kom inn aðeins aftur taldi hann víst að hún vildi ekki vera ein þarna. Bauð henni að hann myndi sofa líka úti í tjaldi, hvort hún myndi vilja það - "helst ekki" var svarið sem hann fékk. Henni finnst bara fínt að vera ein með bækurnar sínar. Í morgun kom hún inn til að borða og bursta tennur en hefur verið síðan úti í tjaldi. Vinkona hennar er í heimsókn hjá henni og þær eru þarna úti, koma ekkert inn. Þannig að drottningin er flutt út.... út í garð :o) Later

Æla upp í kok...

ætla ekki að tilgreina lánastofnun né lán né lántakanda EN - ætla að skrifa smásögu... Viðkomandi hringdi í lánafyrirtæki í fyrra vegna láns sem hann sá fram á að erfitt yrði að borga af næstu mánuði og ákvað að athuga hvort einhver úrræði stæðu til boða. Engin vanskil, aldrei neitt vesen, bara sá fram á erfiða tíma - jafnvel tímabundið (sem svo reyndist raunin). Svarið var þetta - já þú getur borgað vextina í sex mánuði og að þeim tíma liðnum verður þú að gera alveg upp og borga alla upphæðina sem búið er að fresta. Viðkomandi vildi vita hvers konar hjálp það væri eiginlega. Ef maður sér fram á að geta ekki borgað alla upphæðina af mánaðalegu greiðslunum, hvernig í andsk... ætti maður þá að geta borgað alla slummuna eftir sex mánuði eftir að hafa frestað vandanum???? Svarið "jú sko ef ríkisstjórnin gerir eitthvað". Lántakanda var þá öllum lokið og spurði stúlkuna hvort hún tryði þessu sjálf? Ákvað að harka af sér og hefur borgað hverja einustu fjandans krónu síðan og náð að ...

16 ár...

Í tilefni af brúðkaupsafmæli okkar hjóna þá læt ég þetta flakka því við erum svo góðir vinir og skiljum hvort annað svo vel og hann fyrirgefur mér allt... á endanum ;o) The man may be the head of the house but the woman is the neck and can turn the head any way she wants to Army Men are the best kind of husband...they can cook,sew,iron and are used to taking orders Verst að BH hefur aldrei svo mikið sem velt því fyrir sér að fara í herinn og er því ekki þessum eiginleikum búinn :o) I love being married. It's so great to find that one special person you want to annoy for the rest of your life. Husbands are proof that women have a sense of humor. BH fór að vinna í gær og var frameftir - eins og oft áður undanfarið. Vorum í símanum fram yfir miðnætti að kjafta, krakkarnir komnir í rúmið og ég á leiðinni í mitt. Á meðan ég blaðraði og við ákváðum að í tilefni þessa dag skyldum við fara út að borða og kannski í bíó og ég tók tannburstann minn út úr skápnum og var svona að kveðja þegar é...

My dogs live here

...My dogs live here, they're here to stay You don't like pets, be on your way... They share my home, my food, my space This is their home, this is their place You will find dog hair on the floor They will alert you're at the door They may request a little pat A simple "no" will settle that It gripes me when I hear you say "Just how is it you live this way?" They smell, they shed, they're in the way "Who asked you?" is all I can say They love me more than anyone My voice is like the rising sun They merely have to hear me say "C'mon, time to go and play" Then tails wag and faces grin They bounce and hop and make a din They never say "no time for you" They're always there to GO and DO And if I'm sad? They're by my side And if I'm mad? They circle wide And if I laugh they laugh with me They understand, they always see So once again, I say to you Come visit me, but know this too My dogs live here, they...

Árstíðabundið mont

KEB fór í gær kl. 15 og sótti einkunnir sínar á skólaslitum. Ég verð að viðurkenna að ég beið spennt eftir árangri hans því hann hefur verið mjög upptekinn í vetur og sérstaklega núna í vor. Allskonar hátíðir, sýningar, tónleikar, æfingar, keppnir, skólahreysti og fleira. Hann var reyndar sæmilega duglegur að halda sér að bókunum þegar að prófum kom. Tók sér frí frá blaðburði til að þurfa ekki að vakna alveg eins snemma og svona. En einkunnir hans eru metnar allt árið með verkefnum, ástundun, litlum prófum og svo stærri prófum í annalok. Svo ég var nokkuð spennt að sjá hvað kæmi út úr þessu hjá honum. Og það virðist vera að hann sé líkari föður sínum en móður hvað varðar próflestur og nám. Því þó hann hafi kíkt í bækur þá er ekki hægt að segja að hann hafi setið sveittur fram á kvöld og alla daga. Og hann brilleraði bara eins og venjulega - allt áttur, níur og tíur - ok ein sjö og sjöfimm - en við vorum spriklandi ánægð með gaurinn okkar :o) Svo fékk hann sérstaka viðurkenningu fyrir m...

operation "stupid"

Mig hefur lengi langað að skella mér á línuskauta. Hef ekki mikla hæfileika á því sviði en langar mikið að drífa mig. Ég var á rúlluskautum í gamla daga og skautum en það er ekki það sama. Held að ég þurfi smá tíma til að ná jafnvægi og færni. BH er farinn að tala um að hann langi líka að prófa. Og nú erum við ekki að tala um að fara bara ein á línuskauta heldur nota þetta sem smá líkamsrækt um leið og við hreyfum hundana. Jú jú þau eiga að sjálfsögðu að hjálpa okkur gamlingjunum aðeins og vinna fyrir okkur. Ég ætla að byrja á því að nota línuskautana hans KEB sem hann er löngu vaxinn uppúr. BH þarf að kaupa sér eitt par og svo þarf að sjálfsögðu að kaupa HLÍFAR. Það fer enginn á þetta á hlífa - sérstaklega verða hlífar settar á úlnliðina því mér skilst að algengast er að fólk brjóti sig illa þar eftir að vera lélegt á línuskautum. Þetta verður eitthvað verulega skrautlegt ævintýri en við skulum sjá hvort okkur takist þetta ekki. Svo þar til við náum smá tökum á þessu og getum staðið s...

Á réttri hillu?

Les sjaldan stjörnuspár - en það kemur fyrir. Var að lesa mbl.is á áðan og ákvað að kíkja á stjörnuspánna fyrir tvíbura. Gat ekki annað en hlegið... Þetta er það sem ég las: Tvíburar: Það sem þú gerir sannar hvað skiptir þig máli. Reyndu að komast til botns í málum sem tengjast erfðamálum, dánarbúi og hvernig eigum verður deilt milli manna. Ég mæti þá bara hress á Þjóðskjalasafn Íslands í fyrramálið eins og svo oft áður síðan í mars :o) Later

Heilbrigð augu

Fór með Úlfinn í gær í augnskoðun. KBB átti að vera mætt á karatemót kl. 13:20 og ég skutlaði henni til vinkonu sinni til að fá far. Rauk svo í Víðidalinn og vonaðist til að fáir væru að bíða og að ég gæti bara rokið inn og fljótt út aftur. Mætt þangað kl. 12:40. spurði konuna í miðasölunni hvort ég kæmist ekki með hundinn í augskoðun og hvar í húsinu hún væri. Bara hérna - og enginn hundur nálægt að bíða - YES. Svo sagði hún læknirinn kemur úr mat kl. 13:30. OHH svo ég mátti drífa mig bara heim aftur með hundinn og rjúka í Egilshöllina og sjá dótturina taka þátt í sínu fyrsta móti í karate. Hún lenti í þriðja sæti og var þokkalega sátt við það. Flottir krakkar þarna, margir að keppa í fyrsta sinn. Þetta var félagsmót og allt gert til að hafa sanngjarnt fyrir krakkana. Keppt eftir aldri og beltaröð. Svo dreif ég mig heim aftur sótti Úlfinn út í garð til HMS og DH. þar voru hundarnir bundnir við snúrustaur og höfðu það notalegt á meðan bræðurnir og AFD unnu hörðum höndum að því að moka ...

Gefst upp...

Rífst við KBB reglulega hérna og læt hana sko vita það að ég sé stærri en hún. KBB heldur uppi sterkum vörnum og heldur áfram að reyna að ná mér og tilkynna mér að nú sko sé þetta komið hjá henni. Tókum eina svona létta rispu áðan og ég dró hana að speglinum, big mistake... HUGE! Stóðum hlið við hlið mæðgurnar og ég varð að láta í minni pokann. Dóttir mín, 11 ára gömul hefur vaxið mér yfir höfuð. Ég er orðin minnst af mannfólkinu í fjölskyldunni, AGAIN. Hjúkk að ég hef alla vega hundana mína - þau verða ekki stærri en ég, þó þau komi upp á afturfæturna. Úlfur nær mér þó upp að andliti - krúttið mitt :o) Nú fer ég að segja við KBB eins og KEB þegar þau skjóta "já en hver er með stærri rass?" Og ég vinn every time - langt langt þangar til að þau eiga séns þar. KEB varð reyndar dáldið kindarlegur þegar ég sagði honum þetta fyrst - fannst þetta heldur undarleg keppni og ekki eftirsóknarvert að vinna hana - en fólk, maður verður að vinna með það sem maður hefur ;o) Dvergurinn :o)

fjármálahrun, aska, hrossasótt :o/

Vaknaði kl. rúmlega fimm í morgun. Bar út fyrir KEB og þar sem ég hafði samþykkt að hann tæki aukahverfi í dag lenti það á mér líka :o/ Hann ákvað í gær ásamt bekknum sínum að skella sér í útilegu yfir nóttina :o) Skemmtilegur bekkur sem hann er í. Yndislegt veður í þessum eina og hálfrar klukkustunda göngutúr mínum. Setti hundana út er ég kom heim því ég vissi að von væri á öskufalli í dag og þá hef ég þau ekki úti. Á skjáinn í eldhúsinu var komið "DUST" í veðrið svo ég fór út og náði í krílin mín aftur. Ronja er bara ekki að skilja þetta. Frúin vöknuð fyrir allar aldir, hleypir þeim út í yndislegt veðrið en dregur þau svo inn strax aftur. Svo sest hún niður og fær sér morgunmat ÁN þess þó að gefa þeim með sér. Æðir svo um á milli herbergja í tiltekt og sinnir því engu þó merki hennar séu skýr um að hún væri alveg til í að tjilla úti aðeins lengur. En hún fær að hanga inni eitthvað í dag í hitanum - við eigum eftir að kafna hérna í góða veðrinu með lokaða glugga :o) Veit af ...