Fara í aðalinnihald

silly people

Hver sagði að Ronjan mín vildi ekki draga og væri bara drottning og allt það? Mín er sko eitthvað að sanna sig. Fórum Úlfarsfellið um daginn með Viktori og Sisku - Alexandra og Friðrik ásamt Spörtu og Töru komu líka upp en fóru niður svo aftur að bílastæðinu. Við hin gengum yfir og niður hinum megin og að Reykjalundi - þar var bíllinn hans Viktors og við gátum keyrt til að ná í bílinn okkar. Gengum 7 km á rúmum tveimur tímum. Ronja dró bara fullt á leiðinni upp og uppi og svo niður aftur, það var verra. Mátti hafa mig alla við að halla mér aftur til að vega upp á móti hressu tíkinni minni. Ánægð með hana. En sá líka að ég fer nú sennilega seint með hundana mína báða ein þarna upp eða upp eitthvað annað. Fer þá sennilega rassgatinu niður aftur því Úlfur gefur enga miskun og Ronja er að draga stíft líka.

Hafði ekkert hreyft þau í dag og ákvað að draga KBB með mér í hjólatúr með þau til að vera fljótari og komast heim í rúmið. Er duldið þreytt svona í þessum útburði á morgnana en að fara seint að sofa líka. Ronja bara spræk - rosa gaman þegar þau eru svona dugleg. Þau hafa verið frekar löt svona síðustu hjólatúra svo þetta var skemmtilegt. Þurfti að stoppa með Ronju og hirða upp (sturta niður) eftir hana. Sá ekki fyrr en eftirá að KBB hafði mætt hundi. Úlfur alltaf hress að hitta aðra hunda svo ég fékk smá sjokk og spurði hvort hún hefði lent í vandræðum - niii hún bjargaði sér alveg. Sá hundinn löngu áður en að honum kom og fór bara af hjólinu og hélt í kvikindið. Var svo ánægð með hana - ekkert panik á dömunni minni.

Nú liggja greyin hérna hjá mér alveg búin á því og hvíla sig fyrir átök morgundagsins. Við BH ætlum með Viktori og Sisku upp að Glym. Fórum einu sinni "landleiðina" að honum en ætlum núna að fara uppfyrir. Það var mikið ævintýri að labba upp að honum með ánni. Þurftum að krossa hana nokkrum sinnum og það er ansi straumhart sumsstaðar. Minns sem var um tuttugu kg léttari (já já) gekk þarna ásamt vöskum mönnum sem stundum þurftu að halda mér niðri svo ég myndi ekki fljóta bara í burtu LoL Viss um að núna myndi ég þurfa að halda þeim niðri ;o)

Ritgerðin liggur því niðri á morgun geri ég ráð fyrir þó ég reyni að græja eitthvað annað kvöld og svo er bara að vera dugleg á fimmtudaginn að fletta prestþjónustubókum :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...