Mig hefur lengi langað að skella mér á línuskauta. Hef ekki mikla hæfileika á því sviði en langar mikið að drífa mig. Ég var á rúlluskautum í gamla daga og skautum en það er ekki það sama. Held að ég þurfi smá tíma til að ná jafnvægi og færni. BH er farinn að tala um að hann langi líka að prófa. Og nú erum við ekki að tala um að fara bara ein á línuskauta heldur nota þetta sem smá líkamsrækt um leið og við hreyfum hundana. Jú jú þau eiga að sjálfsögðu að hjálpa okkur gamlingjunum aðeins og vinna fyrir okkur.
Ég ætla að byrja á því að nota línuskautana hans KEB sem hann er löngu vaxinn uppúr. BH þarf að kaupa sér eitt par og svo þarf að sjálfsögðu að kaupa HLÍFAR. Það fer enginn á þetta á hlífa - sérstaklega verða hlífar settar á úlnliðina því mér skilst að algengast er að fólk brjóti sig illa þar eftir að vera lélegt á línuskautum.
Þetta verður eitthvað verulega skrautlegt ævintýri en við skulum sjá hvort okkur takist þetta ekki. Svo þar til við náum smá tökum á þessu og getum staðið skammlaust, þá rífumst við um að vera með Ronju á okkar vegum. Því þið vitið að hún sko nefnilega dregur ekkert að viti LoL
Later

Ummæli