Árinu senn að ljúka - þetta líður ofsalega hratt. Best að njóta þess að vera til :o) Við erum búin að skoppa á milli jólaboða frá því á aðfangadag og ef ekki eru jólaboð þá erum við í afgöngum hjá tengdó. Í gær brá svo við að húsmóðirin hér þurfti að sjá um mat í fyrsta sinn í rúma viku. Og hvað gerði fyrirmyndarhúsmóðirin, jú hún reddaði pylsum á síðustu stundu. Best að hafa ekki of mikið fyrir þessu. Í kvöld lét hún svo fjölskylduna ganga sjálfala á meðan hún skellti sér á Vegamót og hitti háskólaskvísurnar. Við hittumst alltof sjaldan núna, áður var skrafað og slúðrað á hverjum degi en nú erum við allar komnar í sitthverja áttina. Hittumst fimm núna í fyrsta sinn í laaangan tíma. En það er alveg magnað hvað við dettum beint í gírinn, svona rétt eins og við hittumst síðast í gær. Takk fyrir kvöldið dömur, hlakka mikið til að hitta ykkur aftur vonandi sem allra fyrst. Er ég keyrði heim hringdi ég í krakkana (handfrjálst of course) og planaði flugeldakaup. Við skelltum okkur saman á sö...