Fara í aðalinnihald

Falleg fyrirheit

Fór í líkamsrækt klukkan átta í gærmorgun - svo í göngutúr í tæpan klukkutíma með Ronju á Lágafellinu. Vinna svolítið og svona bara venjulegur dagur. Takmarkið var að fara snemma að sofa. Hringdi samt í SBK og athugaði hvort við ættum að hittast og skrappa/búa til jólakort um kvöldið eða næsta kvöld. Hún ætlaði að sjá hvernig það hentaði er hún væri búin að taka stöðuna i hesthúsinu.

Fengum okkur kvöldmat um sexleytið og BH fór út aftur - líkamsrækt og svo vinna, reyna að koma bilasolur.is í loftið. Þeir eru búnir að liggja sveittir yfir nýrri útgáfu. Eftir matinn slökknaði á mér - gjörsamlega búin eftir daginn. Spilar kannski smá inní að ég hef farið seint að sofa undanfarið.

Sofnaði yfir fréttum og Kastljósinu - krakkarnir furðu spakir að skipta ekki yfir á Simpson´s á stöð 2. Kannski hrædd um að móðirin myndi vakna og vera ekki hress með afskiptasemina. Sjálf efast ég um að ég hefði tekið eftir því. Aumingja HMS læddist hérna inn og kallaði ljúflega - Halló - Lóa - Lóa. Fékk tilbaka geðillskulegt JÁ. Ég var hálfsofandi og hélt að KEB væri að kalla á mig að koma til sín - var ekki að nenna því.

Vaknaði betur og baðst afsökunar - var búin að taka til ljósmyndapappírinn sem HMS vantaði svo hún gat hlaupið út strax aftur. Nú sofnaði ég ekki aftur - við krakkarnir horfðum á Simpson´s saman og skemmtum okkur ágætlega. SBK hringdi og spurði hvort hún ætti að koma? - NEI - HA - ekki? Varð að útskýra fyrir henni að ég hefði enga orku. Þannig að nú hittumst við ekki fyrr en í næstu viku í föndurgerð - báðar voða uppteknar eitthvað þessa viku. En hittumst í badmintonið á miðvikudaginn samt - ég þori ekki annað en að mæta. Verð að hafa skothelda afsökun ef ég læt ekki sjá mig, fæ annars að heyra það.

Rak krakkana inn í rúm rétt eftir kl. níu og fór sjálf inn í rúm klukkan tíu, eftir að hafa farið með voffa út fyrir nóttina. Hún er nú ekki vön að vera sett í rúmið svona snemma. BH tilkynnti mér að hann yrði frameftir nóttu að vinna - svo ég fór inn að sofa. Og auðvitað glápti ég aðeins meira á sjónvarpið - var svo vakin eftir klukkan þrjú af voffa sem vildi komast út að pissa og svo aftur um klukkan fimm - og svo aftur um sexleytið í morgun. Þá reyndar var BH að skríða heim og sinnti henni.

Þannig að maður er kannski ekki alveg jafn vel útsofinn þennan morgun eins og til var ætlast í gærkvöldi. En nú er bara að drífa sig snemma í rúmið aftur í kvöld eftir að hafa verið dugleg í dag :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...